„Ég veit að við verðum í toppbaráttunni“ „Þetta lítur mjög vel út,“ segja landsliðskonurnar Dagný Brynjarsdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir sem ætla sér að berjast um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta með Selfossi í sumar. 29.5.2020 20:00
Federer sló Ronaldo og Messi við og er sá tekjuhæsti - Tvær konur á topp 100 Svissneski tennisspilarinn Roger Federer þénaði mest allra íþróttamanna á síðustu 12 mánuðum samkvæmt yfirliti sem Forbes birti í dag. 29.5.2020 19:30
Mörg lið líkleg til afreka í Lengjudeild: „Slys ef að Eyjamenn færu ekki upp“ „Þessi samningur skiptir félögin í deildinni gríðarlega miklu máli,“ segir Haraldur Haraldsson, formaður Íslensks toppfótbolta, eftir undirritun samninga við Íslenskar getraunir um að 1. deildir karla og kvenna heiti Lengjudeildir í sumar. 29.5.2020 19:00
Grátlegt jafntefli hjá Guðlaugi Victori og félögum Guðlaugur Victor Pálsson lék sinn þriðja leik á sjö dögum þegar Darmstadt gerði svekkjandi 1-1 jafntefli við Greuther Fürth á heimavelli, í þýsku B-deildinni í fótbolta. 29.5.2020 18:30
Fjölnismenn fljótir að fylla skarð Helenu Fjölnir hefur ráðið Dusan Ivkovic sem nýjan þjálfara meistaraflokks kvenna í fótbolta en hann tekur við starfinu af Helenu Ólafsdóttur sem hætti í vikunni. 29.5.2020 18:06
Pepsi Max-spáin 2020: Reynir á unga menn í Grafarvogi Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fjölni 11. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar. 29.5.2020 10:00
„Hlægilegt“ að tala um of há laun í kvennaboltanum Helena Ólafsdóttir, knattspyrnuþjálfari og stjórnandi Pepsi Max-marka kvenna, segir laun kvenna í fótbolta ekki komast nálægt því sem að karlarnir fái og að hlægilegt sé að heyra talað um að knattspyrnukona á Íslandi fái „of há laun“. 29.5.2020 07:00
Dagskráin í dag: Stórmeistaramótið í CS hefst, Sportið í dag og fallbyssur velja bestu mörkin sín Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar. 29.5.2020 06:00
Agla María hyggst klára námið og vanda valið fyrir atvinnumennsku „Ég er mjög spennt. Loksins er maður byrjaður að spila á æfingum og það er bara fínt að fara að keyra þetta í gang,“ segir Agla María Albertsdóttir, landsliðskona í fótbolta. Hún segir ljóst að Breiðablik ætli sér Íslands- og bikarmeistaratitil í sumar. 28.5.2020 23:00
Spilaði ekki leik í fyrra en er í banni: „Lét eitthvað út úr mér sem ég hefði ekki átt að segja“ „Þetta er ótrúlegt. Ég veit ekki hvort maður á að vera að segja frá þessu?“ segir Guðmundur Þór Júlíusson, leikmaður HK, sem þrátt fyrir að hafa misst af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla þarf að taka út leikbann í fyrsta leiknum í Pepsi Max-deildinni í sumar. 28.5.2020 22:00