Fjórtán ára stúlka í langt bann fyrir að dópa Fjórtán ára rússnesk sundstelpa hefur verið dæmd í langt bann eftir að hafa orðið uppvís að notkun anabólískra stera. 4.11.2024 07:02
Dagskráin í dag: Glódís getur komist á toppinn Besti miðvörður heims í fótbolta kvenna, samkvæmt kjörinu um Gullknöttinn, verður í sviðsljósinu á Vodafone Sport í dag. 4.11.2024 06:03
Kennir sjálfum sér um uppsögnina Bruno Fernandes skoraði loks í dag sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð, í fyrsta deildarleiknum eftir að Erik ten Hag var rekinn. Hann kennir sjálfum sér um brottreksturinn. 3.11.2024 23:01
Eygló best allra á EM og Erla fékk þrjú brons Eygló Fanndal Sturludóttir átti fullkomna lokaheimsókn á Evrópumót U23 ára í ólympískum lyftingum sem lauk í dag í Póllandi. 3.11.2024 22:20
Hetjumark hrifsað af Mikael og félögum í blálokin Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson og félagar í Venezia voru nálægt því að krækja í stig gegn stórliði Inter á San Siro í kvöld, í ítölsku A-deildinni í fótbolta. Inter vann þó, 1-0. 3.11.2024 21:56
Skellur hjá Frey sem var án Patriks og varamarkmannsins Kortrijk, liðið sem Freyr Alexandersson stýrir, varð að sætta sig við 4-0 skell gegn Anderlecht í dag í belgísku 1. deildinni í fótbolta. 3.11.2024 20:33
Logi í bann fyrir mótmæli og Júlíus efstur Íslendinga Fjöldi Íslendinga var á ferðinni í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Titilbaráttan er hnífjöfn nú þegar þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu. 3.11.2024 20:21
Sveindís enn í hlutverki varamanns Sveindís Jane Jónsdóttir hefur fá tækifæri fengið í byrjunarliði Wolfsburg það sem af er leiktíð og hún kom á ný inn á sem varamaður í kvöld, þegar liðið vann Freiburg 3-0 í þýsku 1. deildinni í fótbolta. 3.11.2024 19:50
Guðmundur Bragi öruggur á vítalínunni Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði fimm mörk fyrir Bjerringbro-Silkeborg, þar af síðasta mark liðsins, í 28-28 jafntefli við TMS Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. 3.11.2024 19:29
Ómar með fimm fyrir flugið til Íslands Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson fögnuðu 30-27 sigri með Magdeburg gegn Lemgo í kvöld, í þýsku 1. deildinni í handbolta. 3.11.2024 19:02