Hefur þegar fengið starfstilboð Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir að það að ganga í gegnum erfiðleika hafi mótað hana mest. Áslaug gengur stolt frá störfum sínum á þingi en segist munu sakna þess að takast á um framtíð landsins. Starfstilboð eru þegar farin að berast Áslaugu sem er nýkomin heim úr meistaranámi í Bandaríkjunum. 11.6.2026 16:24
„Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir að aðild að Evrópusambandinu myndi bæta kjör almennings verulega með lægra matvælaverði og lægri vöxtum. Atkvæðagreiðslan í ágúst snúist ekki um aðild heldur hvort hefja eigi aðildarviðræður. 10.6.2026 21:22
„Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina afvegaleiða með áherslu sinni á Evrópusambandsaðild. Evran sé engin töfralausn og ríkisstjórninni færi betur að horfa sér nær og taka til í ríkisfjármálunum. 10.6.2026 20:28
Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) fara fram á Alþingi í kvöld og verða sendar út í beinu streymi á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 19:40. 10.6.2026 19:00
Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings, málið hafi verulega almenna þýðingu. Steina var í lok febrúar sakfelld í Landsrétti fyrir manndráp af gáleysi. 10.6.2026 17:44
Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest. 9.6.2026 22:03
No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Við hvetjum almenning til að hafna þessum lögum og beita öllum ráðum við að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd,“ segja samtökin No Borders í yfirlýsingu í tengslum við lög sem samþykkt voru á Alþingi í dag sem heimila stjórnvöldum að setja á fót svokallaða brottfararstöð. Samtökin hafa meðal annars beitt sér fyrir réttindum flóttafólks. 9.6.2026 20:28
„Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ „Þar sem ég er í námi í Manchester hef ég fengið að kynnast Uber og þeirra starfsháttum,“ segir Már Gunnarsson í samtali við fréttastofu. „Ég vona af öllu hjarta að það fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi.“ 9.6.2026 17:59
Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Fimm karlmenn voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi tíu daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur. Mennirnir eru grunaðir um að hafa staðið að innflutningi kókaíns og amfetamíns með Norrænu. 9.6.2026 16:05
Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Fimm kærur hafa verið lagðar fram vegna fyrirhugaðs flutnings Kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46. Íbúar lýsa yfir áhyggjum af því að starfsemi verði hafin í húsinu áður en niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála liggur fyrir. Undirskriftasöfnun stendur yfir á island.is og hópur íbúa krafði framboðin um svör fyrir borgarstjórnarkosningar. 7.6.2026 17:25