Morðhótunum rignir yfir leiðtogalausa Repúblikana Þingmenn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings greiddu í dag atkvæði gegn því að gera Jim Jordan að þingforseta. Þetta var í þriðja sinn sem þingmenn höfnuðu honum og lá í raun fyrir áður en atkvæðagreiðslan fór fram að hann yrði ekki þingforseti. 20.10.2023 15:20
Þóttist vera gína og fór svo ránshendi um tóma verslun Saksóknarar í Varsjá hafa ákært 22 ára mann fyrir rán en hann er sakaður um að hafa rænt verslun með því að þykjast vera gína. Maðurinn stóð hreyfingarlaus í glugga verslunarinnar með poka, þar til starfsmenn fóru heim án þess að átta sig á því að hann væri þar inni. 20.10.2023 10:13
Dælan fer á flakk Strákarnir í Dælunni ætla á flakk í kvöld og láta reyna á hvort þeir séu kunnugir staðháttum á Íslandi. Flakk er leikur á vef Já, þar sem spilarar giska á hvar þeir eru staddir á landinu. 19.10.2023 20:31
Hálfétinn hvítháf rak á land í Ástralíu Hræ hálfétins hvítháfs rak nýverið á land í Ástralíu. Svo virðist sem hákarlinn hafi verið rifinn í tætlur en talið er að háhyrningur hafi banað dýrinu. 19.10.2023 16:09
Játar og gæti borið vitni gegn Trump Lögmaðurinn Sydney Powell, sem tók virkan þátt í tilraunum Donalds Trump, fyrrverandi forseta, við að reyna að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020, hefur gengist við brotum sínum í Georgíu. Hún hefur gert samkomulag um að bera vitni gegn öðrum sakborningum, þeirra á meðal Trump, og var dæmd á sex ára skilorð. 19.10.2023 15:29
Árásir gerðar á herstöðvar Bandaríkjanna Bandarískir hermenn eru sagðir hafa slasast lítillega í drónárásum á herstöðvar Bandaríkjanna í Írak í gær. Tveimur drónum var flogið að al Asad flugstöðinni í vesturhluta Íraks og einum að annarri herstöð í norðurhluta landsins. 19.10.2023 14:20
„Aldrei verið jafn þungt yfir Ísrael“ Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir Hamas, Hezbollah og bakhjarla þeirra í Íran vilja færa Mið-Austurlönd aftur til tíma stríða, þrælkunar og útrýmingar. Hann segir heiminn allan þurfa að standa með Ísrael í baráttunni við þennan „ás hins illa“. 19.10.2023 12:04
Fékk færri atkvæði í seinna skiptið en vill reyna aftur, aftur Hinn umdeildi bandaríski þingmaður Jim Jordan gerði aðra atrennu að embætti forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær. Hann fékk þó færri atkvæði en í fyrstu atkvæðagreiðslunni og þrátt fyrir það vill hann reyna aftur. 19.10.2023 11:09
Fjórum F-16 flogið til Íslands á morgun Bandarísk flugsveit kemur með fjórar F-16 orrustuþotur til landsins á morgun og mun taka við loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland. Umrædd sveit kemur frá Þýskalandi og telur 120 liðsmenn. 19.10.2023 09:55
Hver átti sprengjuna? Mikil óvissa ríkir um það hver beri ábyrgð á sprengingunni sem varð við al Ahli Arab sjúkrahúsið á Gasa í gærkvöldi. Strax eftir sprenginguna lýsti heilbrigðisráðuneyti Gasa, sem stýrt er af Hamas, því yfir að hundruð hefðu fallið og særst og beindu forsvarsmenn Hamas-samtakanna spjótum sínum strax að ísraelska hernum. 18.10.2023 14:26