Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 höldum við áfram ítarlegri umfjöllun um sjávarútveginn en ljóst er að útgerðin hefði greitt um tíu milljörðum minna í veiðigjöld á árunum 2011 til 2017 ef núgildandi lög um veiðigjöld hefðu gilt á tímabilinu. 11.2.2021 18:00
Larry Flynt, stofnandi Hustler, er dáinn Larry Flynt, hinn víðfrægi og mjög svo umdeildi stofnandi klámritsins Hustler, er dáinn. Hann var 78 ára gamall og dó á heimili sínu í Los Angeles í dag. Dánarorsök liggur ekki fyrir. 10.2.2021 23:46
Réttarhöldin gegn Trump: Segja Trump hafa vitað í hvað stefndi Sækjendur fulltrúadeildar Bandaríkjaþings vörðu fyrsta kvöldi málflutnings síns í að færa rök fyrir því að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefði sigað stuðningsmönnum sínum á þingið þann 6. janúar. 10.2.2021 23:24
„Ég veit að ríkið gaf hálfan hund í fyrra“ Átján manns bíða eftir því að fá blindrahunda en Blindrafélagið ræður einungis við það að úthluta tveimur slíkum hundum á ári. Hvorki ríki né sveitarfélög taka þátt í kostnaðinum. vegna blindrahunda. 10.2.2021 20:58
Andrés fann samhljóm með Pírötum Andrés Ingi Jónsson, alþingismaður, segist hafa fundið samhljóm með þingmönnum Pírata. Hann hafi skoðað sig vel um og að endingu ákveðið að ganga til liðs við þá. 10.2.2021 20:23
Hafði ekki hugmynd um að Zoom gæti gert sig að ketti og svo internetstjörnu Lögmaðurinn Rod Ponton hafði ekki hugmynd um að Zoom gæti breytt honum, fyrst í kött og svo í internetstjörnu en er að reyna að gera sitt besta til að takast á við frægðina. 10.2.2021 19:18
Arion banki fer úr einum milljarði í tólf og hálfan Arion banki hagnaðist um 12,5 milljarða króna á síðasta ári. Þá var afkoma bankans af áframhaldandi starfsemi 16,7 milljarðar króna á árinu. Arðsemi eiginfjár var 6,5 prósent. 10.2.2021 18:23
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum berum við saman arðgreiðslur stærstu útgerðarfyrirtækjanna annars vegar og álögð veiðigjöld á þau hins vegar. En í gær birti Fiskistofa yfirlit yfir greiðslur veiðigjalda á síðasta ári og lækka þær um 1,8 milljarð milli ára. 10.2.2021 18:00
Olíumengun í Elliðaánum Starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur fengu í dag tilkynningu um olíumengun í Elliðaánum. Þá barst olía út í árnar úr frárennsli fyrir ofan stíflu Árbæjarmegin í Elliðaárdalnum. 10.2.2021 17:41
Bein útsending: Annar dagur réttarhaldanna gegn Trump Annar dagur réttarhaldanna gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fer nú fram í öldungadeild Bandaríkjaþings. Réttarhöldin byrjuðu klukkan fimm að íslenskum tíma og munu bæði sækjendur og verjendur flytja opnunarræður sínar fram á kvöld. 10.2.2021 17:26