Dying Light 2: Enn gaman að sparka dusilmennum og uppvakningum fram af húsþökum Dying Light 2 Stay Human er hinn fínasti framhaldsleikur sem bætir að mörgu leyti á grunni forvera síns. Það er enn ógeðslega gaman að sparka uppvakningum og vondum körlum af húsþökum. 15.2.2022 08:45
GameTíví: Allir á móti öllum í GTA Strákarnir í GameTíví ætla heldur betur að berjast sín á mill í kvöld. Það gera þeir á svokölluðum „stunt“-brautum í leiknum GTA Online. 14.2.2022 19:30
Maturinn á Super Bowl: Vængirnir étnir í tonnatali Eins og undanfarin ár fylgdust fjölmargir Íslendingar með Los Angeles Rams sigra Cincinnati Bengals í Super Bowl í gærkvöldi og í nótt. Það er þó ekki öllum auðvelt að vaka svona langt fram á nótt og til þess þarf oft mikla orku. 14.2.2022 14:31
Allar auglýsingar Super Bowl á einum stað Super Bowl var í gær og LA Rams urðu meistarar NFL-deildarinnar. Það er þó fyrir mörgum aukaatriði en auk þess að vera úrslitaleikurinn í NFL-deildinni er hann einnig mjög mikilvægur fyrirtækjum og auglýsingastofum. 14.2.2022 12:37
Kafað í fyrstu stiklu Rings of Power Amazon Studios birtu í gær fyrstu stiklu nýrra þátta sem gerast í söguheimi Hringadróttinssögu. Þættirnir Rings of Power gerast þúsundum ára á undan sögunni um Frodo, Sam, Aragorn og félaga. 14.2.2022 11:01
Segir nýjustu bylgju Covid bera Hong Kong ofurliði Carrie Lam, leiðtogi Hong Kong, segir nýjustu bylgju Covid-19 sem gengur nú yfir eyjuna vera að bera heilbrigðiskerfið þar ofurliði. Smituðum hefur fjölgað hratt þar á undanförnum dögum en í byrjun mánaðarins greindust um hundrað smitaðir á hverjum degi en í gær greindust 1.300. 14.2.2022 09:51
Kappaksturskvöld í Sandkassanum Strákarnir í Sandkassanum setja góðu dekkin undir í kvöld og keppa í kappakstri í leikjunum Trackmania og GTA Online. 13.2.2022 19:30
Tók leynileg gögn með sér til Flórída Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, tók leynileg gögn með sér til Flórída eftir að hann steig úr embætti. Sum gagnanna voru merkt sem „Top Secret“ sem er ein hæsta leyndarskilgreining bandarískra stjórnvalda. 10.2.2022 23:40
Minnsta reikistjarnan fannst á braut um nágranna okkar Stjörnufræðingar hafa fundið þriðju reikistjörnuna á braut um einn af okkar nálægustu grönnum. Reikistjarnan fannst á braut um rauða dverginn Proxima Centauri, sem er einnig þekkt sem Alpha Centauri C, og tilheyrir þriggja stjörnu sólkerfi sem er það næsta okkar eigin sólkerfi. 10.2.2022 22:44
Galadriel og Elrond mæta aftur í Rings of Power Fyrsta stikla Amazon-þáttanna Lord of the Rings: The Rings of Power verður sýnd í hálfleik á Super-bowl um helgina en upphitunin fyrir það er þegar hafin. Vanity Fair birti í dag myndir af nokkrum af aðalpersónum þáttanna og sagði frá hluta þess sem þættirnir eiga að fjalla um. 10.2.2022 21:23