„Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í dag að setja ætti meira púður í það að koma upp bækistöð á yfirborði tunglsins. Það ætti að gerast áður en Donald Trump, forseti, yfirgefur Hvíta húsið. Einnig stendur til að skjóta kjarnorkuknúnu geimfari af stað til Mars árið 2028. 24.3.2026 20:00
Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir undirbúa það að senda um þrjú þúsund fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda. Hlutverk þeirra yrði að styðja við aðgerðir gegn Íran. Einnig er verið að senda landgönguliða á svæðið. 24.3.2026 18:02
Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Klerkastjórnin í Íran hafði um nokkurt skeið komið öryggis- og eftirlitsmyndavélum fyrir víðsvegar um landið til að fylgjast með og sporna gegn andófi. Ísraelskir hakkarar hafa í gegnum árin hakkað sig inn í margar þessara myndavéla, auk annarra sem finna má í verslunum og víðsvegar annars staðar, og hafa þær verið notaðar, með aðstoð gervigreindar, til að finna ráða- og embættismenn sem ráðnir hafa verið af dögum. 23.3.2026 23:00
Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Björgunarsveitarmenn hafa haft í nógu að snúast á mörgum vígstöðvum í dag. Vegum hefur verið lokað víða um land og hefur þurft að koma fólki sem setið hefur fast til aðstoðar. 23.3.2026 21:29
Landsbankinn hækkar einnig vexti Forsvarsmenn Landsbankans tilkynntu í dag að vextir yrðu hækkaðir. Hækkanirnar eru á milli 0,15 upp í 0,35 prósentustig eftir því hverslags lán er um að ræða en fyrstu breytingarnar tóku gildi í dag og hinar taka gildi á föstudaginn. 23.3.2026 20:13
Rýma hús á Seyðisfirði Ákveðið hefur verið að rýma hús á Seyðisfirði vegna snjóflóðahættu. Um tíu manns munu þurfa að yfirgefa heimili sín klukkan átta í kvöld. 23.3.2026 19:20
Sakar Orbán og félaga um landráð Péter Magyar, sem kannanir benda til að sé líklegur til að velta Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, úr sessi í komandi kosningum þar í landi, segir að meintar uppljóstranir milli Búdapest og Moskvu um leynilegar upplýsingar Evrópusambandsins verði rannsakaðar. Kannanir benda til þess að flokkur Magyars geti sigrað Fidesz-flokk Orbáns í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði. 23.3.2026 19:10
Hátt í hundrað skjálftar út af Reykjanesi Hátt í hundrað jarðskjálftar hafa greinst út af Reykjanesi eftir að skjálftahrina hófst þar upp úr hádegi í dag. Stærsti skjálftinn varð um klukkan 16:30 en hann var 4,1 að stærð. 23.3.2026 18:09
Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Ýmsir ráðamenn í Íran segja Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafa sagt ósatt í dag. Þeir segja engar viðræður við Bandaríkjamenn eiga sér stað en fyrr í dag sagði Trump að viðræður hefðu gengið vel á undanförnum dögum og því hefði hann gefið þá skipun að stöðva árásir á orkuinnviði í Íran í nokkra daga. 23.3.2026 17:53
Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Bandarískur ríkisborgari virðist hafa tekið stjórn á öflugustu glæpasamtökum Mexíkó. Juan Carlos Valencia González mun hafa tekið fljótt við stjórn Jalisco New Generation Cartel, eða JNGC, stundum CJNG, eftir að sjúpfaðir hans Nemesio Oseguera Cervanter, eða „El Mencho“, var felldur af hermönnum í Mexíkó í síðasta mánuði. 19.3.2026 17:52