Fyrstir undir 18 ára aldri til að kjósa Tímamót urðu í lýðræðissögu landsins í dag á Höfn í Hornafirði þegar fyrstu kjósendurnir undir átján ára aldri tóku þátt í almennum kosningum. Það voru þeir Ingólfur Vigfússon og Maríus Máni Jónsson, sem eru báðir 17 ára og kusu um hvort aðal- og deiliskipulag, um þéttingu byggðar Innbæ á Höfn, skuli halda gildi sínu. 21.6.2023 16:02
„Fólk verður bara að taka mynd af sér“ „Vinsamlegast kyssist,“ stendur á nýju skilti í Ólafsvík sem sveitarstjóri vonast til að verði aðdráttarafl í bænum. Regnbogastígur á Kirkjutúni var málaður í gær við hliðina á Ólafsvíkurkirkju og undir Bæjarfossi. 21.6.2023 14:10
Stafi af hræðslu við fólk af erlendum uppruna Félagsmálaráðherra segir sögur af því að ríkið hafi yfirboðið leiguhúsnæði, sem hafi orðið til þess að íbúar hafi neyðst til að leita annað, eigi ekki við rök að styðjast. Fleiri sögur, svo sem af miklu áreiti hælisleitenda, geti stafað af hræðslu við hið óþekkta. 21.6.2023 11:23
„Íbúðamarkaður ekki kólnað eins og ætla hefði mátt“ Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7% milli apríl og maí og hefur vísitalan nú hækkað fjóra mánuði í röð. 21.6.2023 09:52
Verður sendur úr landi á morgun og óttast að verða fallbyssufóður Hælisleitandi, af mongólskum uppruna og með rússneskt ríkisfang, óttast það að verða fallbyssufóður í innrásarstríði Rússa þar sem hann verður að óbreyttu sendur úr landi með lögreglufylgd á morgun. Hann vill hefja nýtt líf í Georgíu, þar sem kærasta hans er nú búsett, en fær vegabréf sitt ekki afhent frá Útlendingastofnun og eru örlög hans því í höndum spænskra yfirvalda, þar sem hann hafði fengið spænska vegabréfsáritun inn á Schengensvæðið. 19.6.2023 07:00
Hinn látni hafi verið meðleigjandi þess grunaða Karlmaður á fertugsaldri er sagður hafa verið meðleigjandi þess sem hann er nú grunaður um að hafa orðið að bana í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði, aðfararnótt 17. júní. Hann situr nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins. 18.6.2023 23:59
„Nú er ég bara dottinn í það“ „Ég er nú bara dottinn í það hérna í Borgarnesi, þó ekki á rafskútu,“ segir Brynjar Níelsson léttur í bragði þegar blaðamaður sló á þráðinn til að leita viðbragða við vendingum í ráðherraliði Sjálfstæðisflokks. Lyklaskipti verða í dómsmálaráðuneyti á morgun þegar Guðrún Hafsteinsdóttir tekur við sem dómsmálaráðherra af Jóni Gunnarssyni, sem valdi sér Brynjar sem aðstoðarmann fyrir um átján mánuðum síðan. 18.6.2023 22:41
Fyrsta stiklan fyrir raunveruleikaþátt Squid Game Ný stikla fyrir raunveruleikaseríu í anda dystópísku þáttaseríunnar Squid game er lent. 18.6.2023 22:06
Lést sjö dögum eftir að hafa lifnað við í eigin jarðarför Kona sem lifnaði við í eigin jarðarför í síðustu viku er látin, viku eftir að atburðurinn átti sér stað. Hún lést af völdum heilablóðfalls, 76 ára. 18.6.2023 18:37
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar fjöllum við um yfirvofandi ráðherraskipti, en í dag samþykkti þingflokkur Sjálfstæðisflokksins tillögu Bjarna Benediktssonar um að Guðrún Hafsteinsdóttir tæki við embætti dómsmálaráðherra af Jóni Gunnarssyni. Skiptin ganga formlega í gegn á ríkisráðsfundi á morgun. Við heyrum frá formanninum, tilvonandi og fráfarandi ráðherra og prófessor í stjórnmálafræði. 18.6.2023 18:04