„Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Lögmaður konu, sem vísa á úr landi á morgun og er alls ekki ferðafær samkvæmt læknisvottorði, segir það algjörlega forkastanlegt ef stjórnvöld svari ekki beiðni þess efnis að brottvísun verði frestað á grundvelli vottorðins. 12.5.2024 22:03
Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Vladímír Pútín hefur tekið ákvörðun um að skipta út varnarmálaráðherra hans Sergei Shoigu fyrir Andrei Belousov. Shoigu hefur verið varnarmálaráðherra í tæp tólf ár en verður nú skipaður aðalritaði öryggismálanefndar Rússlands. 12.5.2024 19:59
Samfélagið í áfalli vegna málsins Sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir samfélagið í áfalli vegna meintrar frelsissviptingar, líkamsárásar og fjárkúgunar í heimahúsi í Reykholti. Gerendur eru sagðir tengjast fjölskylduböndum. 12.5.2024 19:09
Skilyrði að koma Borgarnesi á kortið Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson gerði það að skilyrði fyrir því að kynna stig Íslands í Eurovision, að fá að koma Borgarnesi á kortið í leiðinni. Þangað flutti hann fyrir ári síðan, nýtur sín vel og segir það merki um að hann sé að eldast og þroskast. 12.5.2024 18:44
Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga Fjölmiðlanefnd hefur sektað Árvakur, fjölmiðlaveitu mbl.is, um 1,5 milljónir króna vegna ítrekaðra brota á lögum sem banna duldar auglýsingar. Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa fengið fréttir skrifaðar um vörur sínar á mbl.is, án þess að tekið væri fram að um auglýsingu væri að ræða, eru Nói siríus, Hagkaup, MS og Te og kaffi. 11.5.2024 23:57
Íslendingar gáfu Króatíu 12 stig og Ísrael 8 stig Króatíska framlagið var í uppáhaldi hjá íslenskum áhorfendum á Eurovision sem haldið var í Malmö í kvöld. Það franska hlaut 10 stig og Ísrael fékk 8 stig frá íslenskum áhorfendum. 11.5.2024 23:15
Sviss sigurvegari Eurovision 2024 Sviss er sigurvegari Eurovision árið 2024. Nemo flutti lagið The Code og sigraði í Malmö í Svíþjóð fyrir hönd Sviss og bar sigur úr býtum að lokum. 11.5.2024 22:49
Grunaðir um rán í miðbænum Þrír menn eru grunaðir um vopnað rán í miðbænum. Rannsókn málsins miðar vel að sögn lögreglu. 11.5.2024 22:09
Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Ályktun um aukinn rétt Palestínu til þátttöku í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna var samþykkt með yfirgnæfandi stuðningi á neyðarfundi þingsins í dag. Ísland kaus með ályktuninni 11.5.2024 20:56
Fylgjast frekar með Falastinvision í mótmælaskyni Falastinvision er viðburður sem haldinn er í kvöld á sama tíma og Eurovision fyrir þá sem vilja sniðganga söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, vegna þátttöku Ísraels sem hefur verið umdeild. Skipuleggjandi segir sniðgöngu bestu og friðsælustu leiðina til að mótmæla. 11.5.2024 20:40