Borgaði tvöfalt meira fyrir miklu minna Diljá Jóhannsdóttir er hætt að njóta þess að fara út að borða og þarf auk þess að borga miklu meira fyrir matvöru en aðrir. Hún er með sjálfsofnæmissjúkdóminn Selíak en eina meðferðin er algjörlega glúteinlaust fæði. Kristín Ólafsdóttir fór í sérstaka verslunarferð með Diljá í Íslandi í dag. 14.8.2024 14:01
Pétur Jökull er Pj Glaze Pétur Jökull Jónasson sem ákærður er fyrir aðild að innflutningi á tæplega hundrað kílóum af kókaíni og réttað hefur verið yfir síðustu daga í Héraðsdómi Reykjavíkur er líka tónlistarmaður. Hann hefur gefið út raftónlist undir listamannsnafninu Pj Glaze. Þá spilaði hann líka á hljómborð í rafhljómsveitinni Dr. Mister & Mr. Handsome. 14.8.2024 13:25
Upplifði fálæti lækna þegar lykkjan týndist inni í henni Sigrún Arna Gunnarsdóttir segir umræðu um endómetríósu af skornum skammti, sjúkdómurinn sé mun algengari en flesta grunar. Hún lýsir í Íslandi í dag miklu fálæti á Landspítalanum en hún var ekki greind með sjúkdóminn fyrr en hún leitaði til einkarekinnar heilbrigðisstofu. Þangað til gekk Sigrún í gegnum gríðarleg veikindi, eftir að það tók fjórar tilraunir og fimm mánuði að ná úr henni hormónalykkju vegna samgróninga af völdum ógreindrar endómetríósu. 13.8.2024 15:30
Gústi B leitar sér að vinnu Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B, samfélagsmiðlastjarna og útvarpsmaður með meiru leitar sér nú að nýrri vinnu eftir að útvarpsþáttur hans Veislan var tekin af dagskrá FM957. 13.8.2024 12:41
Ætla aftur til Íslands til að græða sárin Breskir ferðamenn sem slösuðust alvarlega í bílslysi á Íslandi í apríl ætla að heimsækja landið aftur í október. Ferðamennirnir þeir Zak Nelson og Elliot Griffiths lentu í hörðum árekstri á hringveginum og trúlofuðu sig svo á Landspítalanum þar sem hlúð var að þeim. 13.8.2024 11:23
Sigmundur yrði líklega skutlaður af Kristjáni Loftssyni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er byrjaður í megrunarátaki. Hann lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir ófyrirleitinn brandara samstarfsfélaga og stefnir á að prófa sjósund. Hann segist hræddur við nálar og því eigi megrunarlyf ekki við hann. 13.8.2024 10:09
Hefja sölu áfengis á næstu tveimur vikum Undirbúningur Hagkaupa á netsölu áfengis er á lokametrunum og er búist við að hún hefjist á næstu tveimur vikum. Meiri tíma hefur tekið að hefja söluna en búist var við í upphafi að sögn framkvæmdastjóra. Ósætti ráðherra vegna málsins hafði ekki áhrif þar á. 13.8.2024 07:01
Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Veikindi meðal göngufólks á Rjúpnavöllum í Rangárþingi ytra sem mögulega er talið að megi rekja til kólíbaktería, E.coli eru til rannsóknar hjá Sóttvarnalækni og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. 12.8.2024 17:04
Hætt að rannsaka mál hollenska Eurovision-farans Sænsk yfirvöld hafa hætt rannsókn á máli Joost Klein, hollenska keppandans í Eurovision sem rekinn var úr keppni í Malmö í maí eftir meintar hótanir gegn ljósmyndara. Samkvæmt ríkissaksóknara eru ekki næg sönnunargögn í málinu. 12.8.2024 16:14
Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Gelt var á Heiði Eiríksdóttur tónlistarkonu á laugardagskvöld af ungum drengjum, þar sem hún var á leið heim á göngu í miðbæ Reykjavíkur ásamt vinkonu sinni eftir gleðskap þeirra í tilefni af Hinsegin dögum. Drengirnir tóku geltið upp á myndband. Hún segir að um hafi verið að ræða ömurlegan endi á kvöldinu og að það sé alveg ljóst að þörf sé á hinsegin dögum. 12.8.2024 15:23