Vonbrigði að stúdentum bjóðist ekki mótvægisaðgerðir samhliða gjaldskyldu Forseti stúdentaráðs HÍ segir vonbrigði að háskólaráð hafi ekki innleitt samgöngukort að evrópskri fyrirmynd fyrir nemendur samhliða ákvörðun um almenna gjaldskyldu á bílastæðum háskólans. 14.3.2024 20:01
Fimmtíu milljónir árlega í rekstur bílastæða við HÍ Gjaldtaka á bílastæðum við Háskóla Íslands hefst í haust. Rektor háskólans segir tilganginn að draga úr bílaumferð um svæðið og auka kostnaðarvitund starfsfólks og nemenda um bílastæðin en Háskólinn hefur borgað fimmtíu milljónir árlega fyrir rekstur stæðanna. 14.3.2024 14:07
Dýrtíðin skerði samkeppnishæfni áfangastaðarins Íslands Stjórnvöld verða að taka alvarlega þær blikur sem á lofti eru í ferðaþjónustu. Þetta segir Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar sem varar við þeim efnahagslegu afleiðingum sem samdráttur í greininni hefði í för með sér fyrir þjóðarbúið. 13.3.2024 14:27
Bjartsýn á að þeim takist að koma öllum dvalarleyfishöfum í skjól Tvær íslenskar konur, sem eru úti í Kaíró í sjálfboðaliðastarfi, eru bjartsýnar á að þeim takist á næstu dögum að bjarga þeim sem hafa dvalarleyfi á Íslandi, og enn eru fastir á Gasa, út af svæðinu. Þær hafi í dag komið öllum 49 dvalarleyfishöfunum á svokallaðan landamæralista. 11.3.2024 13:00
Mikilvægt fyrir sálrænan bata að fá góðar móttökur Rauði krossinn býðst til þess að veita öllum sjötíu og tveimur dvalarleyfishöfum sem var bjargað út úr Gasasvæðinu á dögunum áfallahjálp. Sérfræðingur hjá samtökunum segir að geri megi ráð fyrir að flestir þeirra beri mörg áföll á bakinu og því sé mikilvægt fyrir sálrænan bata þeirra að Íslendingar taki vel á móti þeim. 9.3.2024 19:30
Yndisleg stund sem allir sem eigi fjölskyldur hljóti að skilja Rúmlega sjötíu manna hópur frá Gasa lenti á Keflavíkurflugvelli í dag og hitti loks ástvini og fjölskyldur á Íslandi. Aðstandendur mættu með blóm og í sínu fínasta pússi til að taka á móti fólkinu sínu en þeir þurftu þó að bíða í dágóðan tíma. Baráttufeðgin segja allt fjölskyldufólk á Íslandi hljóta að sjá fegurðina í sameiningu fjölskyldna eftir margra ára aðskilnað. 9.3.2024 07:32
Palestínskar fjölskyldur í skýjunum með langþráða endurfundi Fjölskyldur Palestínumannanna sem komu frá Gasa til Íslands í dag bíða óþreyjufull eftir að sjá ástvini sína eftir margra ára aðskilnað í tilfelli þeirra margra í húsnæði á vegum Rauða krossins í Reykjavík. 8.3.2024 18:01
Frelsis- og mannúðarmál að heimila dánaraðstoð Dánaraðstoð verður lögleg á Íslandi ef frumvarp Viðreisnar nær fram að ganga en þó með skilyrðum. Frumvarpið er á dagskrá þingsins í dag. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins segir þetta vera frelsis- og mannúðarmál. 7.3.2024 13:04
Markmiðin góð í fjölmiðlastefnu en segir fjárhæð styrkja of lága Í drögum að fyrstu opinberu fjölmiðlastefnu landsins er lagt upp með að hefðbundin auglýsingasala hjá RÚV verði óheimil og styrkir til einkarekinna fjölmiðla festir í sessi. Formaður Blaðamannafélags Íslands fagnar markmiðinu en segir fjárhæð styrkja of lága sé miðað við Norðurlöndin. 6.3.2024 19:17
Nokkrir tugir sem hafa dvalarleyfi á Íslandi enn fastir á Gasa Stofnandi Solaris hjálparsamtakanna gerir athugasemd við íslensk stjórnvöld hafi bara sótt sjötíu og tvo Gasabúa út af svæðinu en ekki alla sem hafa dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameingar. Nokkrir tugir Palestínumanna sem hafa dvalarleyfi á Íslandi eru enn fastir á Gasa. Sjálfboðaliðar hyggjast bjarga þeim ef stjórnvöld gera það ekki. 6.3.2024 13:04