Fréttamaður

Magnús Jochum Pálsson

Magnús Jochum er umsjónarmaður Lífsins á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026

Birgitta Haukdal og Herra hnetusmjör eru höfundar og flytjendur lagsins „Flugeldar“ sem er Þjóðhátíðarlagið í ár. Þau frumfluttu lagið í Brennslunni á FM957 í morgun en það fangar eftirvæntinguna eftir því að mæta í Herjólfsdalinn.

Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Ör­lögin gripu í taumana“

Stefán Hilmarsson heldur sextugsafmælistónleika í lok júní og sendir frá sér sólóplötuna Ár & dagar á næstu vikum. Hann frumflutti lagið „Hringd'í mömmu“ af plötunni á Bylgjunni í gær en upphaflega átti Björgvin Halldórsson að syngja það með honum. Örlögin gripu í taumana þegar Björgvin féll sviplega frá í síðasta mánuði.

„Ég viður­kenni al­veg að ég mun sakna Tenerife“

Anna Kristjánsdóttir, Tenerife-búi og vélstýra, kveður í dag eyjuna fögru eftir tæplega sjö ára dvöl. Hún hefur notið Tenerife-lífsins í botn og snýr heim til Íslands af heilsufarslegum og félagslegum aðstæðum. Hún á eftir sakna ýmislegs og kemur til með að vera með annan fótinn á eyjunni næstu árin.

Til­kynntu ó­vart dauða konungsins

Breska útvarpsstöðin Radio Caroline, sem útvarpar til Miðhéraðanna og Suður-Englands, rauf spilun „What's Up“ með 4 Non Blondes til að greina ranglega frá dauða Karls III Bretakonungs, spila „God Save the King“ og minnast hans með fimmtán mínútna þögn

Bar­átta við fíkn, ís­lensk milli­stétt og æðavarp á Skjald­borg

Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, hefst í nítjánda sinn á Patreksfirði föstudaginn næstkomandi. Sérhæfing hátíðarinnar eru frumsýningar íslenskra heimildarmynda og í ár eru sýndar myndir sem fjalla meðal annars um byggð í Grímsey, baráttu við fíkn, stöðu íslenskrar millistéttar, endómetríósu og æðavarp á Austfjörðum.

Rick og Morty á stóra skjáinn

Teiknimyndaþættirnir Rick and Morty um geðvonda og brjálaða uppfinningamanninn Rick og taugaóstyrka afabarnið Morty eru á leið á stóra skjáinn. Framleiðsla kvikmyndar um félagana er í frumstigum. Þættirnir hófu göngu sína 2013 og fer níunda þáttaröðin í loftið um helgina.

Vignir Vatnar opnar sig um sjálfs­vígs­hugsanir

Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson ræddi opinskátt um sjálfsvígshugsanir sínar og veitti fólki í sömu sporum ráð í myndbandi á samfélagsmiðlum í dag. Hann hvatti fólk til að byrja í líkamsrækt, elta drauma sína, vorkenna sér ekki of mikið og fara út fyrir þægindarammann.

Fyrr­verandi þing­maður selur í Laugar­dalnum

Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, hefur sett íbúð sína að Dalbraut 3 í Laugarnesinu á sölu. Um er að ræða fimm svefnherbergja íbúð með aukaíbúð í bílskúr á lóðinni. Alls telur eignin 268,7 fermetra og ásett verð er 139,9 milljónir króna.

Ey­þór og Ást­ríður eignuðust lítinn Arnalds

Tónlistarmaðurinn Eyþór Laxdal Arnalds og myndlistarkonan Ástríður Jósefína Ólafsdóttir eignuðust son þann 12. mars síðastliðinn og hefur hann fengið nafnið Alexander Óli Arnalds.

Ní­tján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn

Leikkonan Hayden Panettiere segir „mikilsvirtan“ Óskarsverðlaunahafa, sem er bæði leikari og leikstjóri, hafa berað sig fyrir framan hana og sýnt henni pung sinn þegar hún var nítján ára. Panettiere gaf nýverið út ævisögu sína þar sem hún gerir upp feril sinn í Hollywood og hafa safaríkustu kaflarnir ratað í fjölmiðla.

Sjá meira