Tilkynnt um mann vopnaðan skotvopni og einn handtekinn Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um mann vopnaðan skotvopni á Hverfisgötu og var því sérsveitin kölluð út. Einn hefur verið handtekinn og er málið enn í rannsókn. 1.5.2025 08:39
Landsbankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hagnaður Landsbankans á fyrsta ársfjórðungi 2025 nam 7,9 milljörðum króna, sem er ellefu prósent aukning frá sama tímabili í fyrra. Þetta er fyrsta ársfjórðungsuppgjörið eftir kaup Landsbankans á tryggingarfyrirtækinu TM. 1.5.2025 08:00
Líkamsárás á veitingastað Lögreglu barst tilkynning um líkamsárás á veitingastað í miðborginni í nótt og er málið nú til rannsóknar. 1.5.2025 07:25
Segir netheima kexruglaðra hafa gert sig að mennskum boxpúða Tónlistarkonan Katy Perry, sem var gagnrýnd fyrir þátttöku sína í ferð geimskutlunnar Blue Origin, segir netverja hafa komið fram við sig eins og mennskt piñata. Netið sé ruslahaugur fyrir vanheila og hún finni styrk í stuðningsríkum aðdáendum. 30.4.2025 16:17
Hver myndi vinna í slag, hundrað gaurar eða ein górilla? Hver myndi vinna slag milli hundrað gaura og einnar górilla? Þessi spurning hefur tröllriðið netheimum undanfarið. Górillan er margfalt sterkari en meðalmaður en mennirnir eru aftur á móti ansi margir. Sérfræðingar virðast sammála um úrslit bardagans. 30.4.2025 15:16
Kristófer Breki nýr formaður Vöku Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, kaus sér nýja forystu á mánudag. Kristófer Breki Halldórsson er nýr formaður félagsins. Hann tekur við formennsku af Sæþóri Má Hinrikssyni. 30.4.2025 14:08
Gengst við kókaínfíkn sinni Eurovision-sigurvegarinn Måns viðurkennir að hafa glímt við kókaínfíkn eftir að hafa áður neitað því. Fyrrverandi eiginkona Måns sakaði hann um vímuefnaneyslu, framhjáhöld og ofbeldi. Måns neitar því að hafa beitt fjölskyldu sína ofbeldi og segist ekki hafa neytt vímuefna fyrir framan börn sín. 30.4.2025 11:29
Justin Bieber nýtur sín norður í landi Poppstjarnan Justin Bieber er staddur norður í landi á lúxushótelinu Deplum í Fljótum. Tæp níu ár eru síðan kanadíski tónlistarmaðurinn hélt tvenna tónleika í Kórnum og tók upp tónlistarmyndband í Fjaðrárgljúfri. 30.4.2025 10:39
Mál Ásthildar Lóu krufið fyrir opnum tjöldum Opinn fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um meðferð forsætisráðuneytisins á erindi um persónulegt málefni Ásthildar Lóu Þórsdóttur, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, fer fram í dag. Fylgjast má með fundinum í beinu streymi hér að neðan. 30.4.2025 08:31
„Heyri allt í einu hversu steikt þetta er orðið“ þegar hún útskýrir veikindin fyrir vinum Ingiríður Halldórsdóttir, sem notar listamannsnafnið Lyfveru, veitir innsýn inn líf hins langveika í listsköpun sinni. Hún hefur glímt við sjálfsofnæmi, króníska verki og miðtaugakerfisraskanir en tekst á við það með húmor og orðaleikjum. 29.4.2025 16:25