Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Færri strætó­ferðir um páskana

Strætó verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun alla rauða daga um páskana á höfuðborgarsvæðinu og á sunnudags- og laugardagsáætlun landsbyggðinni. Næturstrætó gengur eins og vanalega páskahelgina.

Fær vægari dóm en greiðir hærri miska­bætur

Karlmaður var nýlega dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundins fangelsis fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Árásin átti sér stað árið 2021 og var upprunalegur dómur ómerktur í Landsrétti vegna ummæla dómara héraðsdómara í tölvupósti. Maðurinn fær nú vægari dóm en þarf að greiða brotaþola hærri miskabætur.

Lægð með snjó­komu fer hratt yfir landið

Samkvæmt veðurspá Veðurstofunnar snýst í vestan átta til fimmtán metra á sekúndu með éljum, en fimmtán til 23 metra á sekúndu um tíma austanlands með skafrenningi, einkum á fjallvegum. Hiti verður í kringum frostmark.

And­spyrna á Ís­landi sé hvatning fyrir þau sem heima eru

Hópurinn Indivisible Iceland boðaði til mótmæla á Austurvelli síðustu helgi til að mótmæla aðgerðum Trump í Bandaríkjunum og víða um heim. Um átta milljónir manns tóku þátt í svipuðum No Kings-mótmælum víða um Bandaríkin síðustu helgi.

Leita að fjöl­skyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð

Barnavernd Reykjavíkur leitar að fjölskyldu eða einstaklingi til að reka neyðarheimili í Reykjavík fyrir allt að fjögur börn í allt að þrjá mánuði. Laun fyrir slíka vistun eru um 1,5 milljónir á mánuði óháð því hvort barn dvelur á heimilinu. Aukalega er svo greitt fyrir hvert barn sem dvelur á heimilinu miðað við lengd sem það dvelur.

Lög­regla leitar manns

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.

Lenging skóla­ársins ekki á­vísun á betri náms­árangur

Sigrún Ólöf Ingólfs­dóttir, skóla­stjóri Hörðu­valla­skóla og fram­bjóðandi Viðreisnar til sveitar­stjórnar­kosninga, segir mikilvægt að rétt sé farið með tölur þegar fjallað er um skóla­kerfið. Hún segir dapur­legt að ráðherra fari ekki rétt með tölur. Lausn skóla­kerfisins sé ekki að lengja skólaárið heldur þurfi kennarar meiri að­stoð á gólfinu.

Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lög­reglu

Einn var handtekinn í hverfi 108 í gærkvöldi eða í nótt fyrir brot á lögreglusamþykkt. Í dagbók lögreglu kemur fram að hann hafi neitað að segja til nafns og hafi svo hótað lögreglu með ofbeldi. Fram kemur í dagbók að fjórir hafi gist í fangageymslu eftir nóttina.

Sjá meira