Læknar gagnrýna Evrópudómstólinn fyrir dóm um bólusetningu Sérfræðingar eru uggandi yfir því að Evrópudómstóllinn hafi gefið það út að tengja megi veikindi við bólusetningar fyrir dómi þrátt fyrir að engin vísindaleg gögn bendi til orsakasamhengis þar á milli. 22.6.2017 16:47
Repúblikanar byrja að afhjúpa heilbrigðistryggingafrumvarp sitt Mikil leynd hefur hvílt yfir nýjum frumvarpi repúblikana sem á að koma í staðinn fyrir Obamacare, sjúkratryggingalög Baracks Obama. Fyrstu fréttir benda til þess að milljónir Bandaríkjamanna muni missa sjúkratryggingar verði frumvarpið að lögum. 22.6.2017 15:50
Vafasöm klæðning á ellefu háhýsum Þetta er niðurstaðan eftir prófun á sex hundrað háhýsum á Englandi í kjölfar brunans í Grenfell-turninum. 22.6.2017 13:39
Bandarískir veðurfræðingar setja ofan í við ráðherra vegna loftslagsbreytinga Eftir að orkumálaráðherra Bandaríkjanna fór með fleipur um orsakir loftslagsbreytinga í sjónvarpsviðtali sendi Félags bandarískra veðurfræðinga honum bréf þar sem það fræðir ráðherrann um hlutverk koltvísýrings í hnattrænni hlýnun og raunverulga efahyggju í vísindum. 22.6.2017 12:57
Enska biskupakirkjan hylmdi yfir með barnaníðingi Æðstu ráðamenn ensku biskupakirkjunnar hylmdu yfir með fyrrverandi biskupi sem misnotaði drengi og karlmenn kynferðislega í tuttugu ár. Þetta er niðurstaða sjálfstæðrar rannsóknarnefndar. 22.6.2017 11:34
Trump bað yfirmenn leyniþjónustunnar um að hreinsa sig opinberlega Tveir æðstu yfirmenn leyniþjónustmála í Bandaríkjunum sögðu rannsakendum að Donald Trump hefði beðið þá um að lýsa því yfir opinberlega að ekkert væri hæft í að forsetaframboð hans hafi átt í samráði við Rússa. Þeir segjast ekki hafa upplifað það sem skipun frá forsetanum. 22.6.2017 11:00
Drottningarmaðurinn útskrifaður af sjúkrahúsi Filipus, hertogi af Edinborg og eiginmaður Elísabetar Bretadrottningar er kominn heim eftir stutta sjúkrahúslegu vegna sýkingar. 22.6.2017 10:31
Ökumaður sem lést í sjálfstýrandi Teslu hunsaði ítrekaðar viðvaranir Ítrekaðar viðvaranir birtust ökumanni á sjálfstýrandi Teslu-bifreið áður en hann ók á flutningabíl á yfir 110 kílómetra hraða á klukkustund í fyrra. Það var fyrsta banaslysið þar sem sjálfstýrandi bifreið kom við sögu. 22.6.2017 10:07
Fölnun kóralrifja gæti verið að ljúka í bili Þriggja ára tímabili fölnunar kóralrifja á jörðinni gæti verið að ljúka. Bandaríska haf- og loftslagsstofnunin spáir því að hlýindum í Indlandshafi sé að ljúka en hætta er enn til staðar í Atlants- og Kyrrahafi. 21.6.2017 16:43
Hugsanlegt að menn hafi kveikt eldana í Portúgal Slökkviliðsstjóri telur að menn hafi kveikt skógareldana sem hafa orðið tugum manna að bana í Portúgal. Elding sem talin hefur verið hafa kveikt eldana hafi ekki lostið niður fyrr en eftir að þeir voru komnir af stað. 21.6.2017 16:00