Tvær afganskar fjölskyldur komnar og fleiri á leiðinni Tvær afganskar konur sem stunduðu nám í Jafnréttisskólanum Gró á Íslandi eru komnar til landsins með fjölskyldum sínum. Utanríkisráðuneytið veit af fjórum Afgönum til viðbótar sem eru á leiðinni til landsins. 28.8.2021 13:16
Óttast hvorki dóm sögunnar né kjósenda Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, sagðist ekki óttast dóm sögunnar um aðgerðir ríkisstjórnar hennar á kjörtímabilinu í ræðu á landsfundi flokksins í morgun. Þá sagðist hún ekki hafa áhyggjur ef kórónuveirufaraldurinn verður að kosningamáli. 28.8.2021 11:24
„Íslenska ákvæðið“ fríaði Ísland ábyrgð á tæplega árslosun Sérstakt ákvæði sem íslensk stjórnvöld komu inn í Kýótóbókunina á sínum tíma kom Íslandi undan ábyrgð á hátt í árslosun á gróðurhúsalofttegundum frá stóriðju. Þrátt fyrir að vera laus við ábyrgð á stóriðju stóð Ísland ekki við skuldbindingar sínar. 28.8.2021 10:34
Norska lögreglan skaut mann til bana Lögreglumenn skutu mann til bana fyrir utan veitingahús í Sarpsborg í suðaustanverðum Noregi í morgun. Ekki hefur komið fram hver maðurinn var né hvers vegna lögreglan skaut hann. 28.8.2021 09:38
Fellibylurinn Ida ógnar íbúum Lúisíana Íbúar við strendur Lúisíana á suðausturströnd Bandaríkjanna búa sig nú undir að fellibylurinn Ida gangi á land um helgina. Varað er við því að fellibylurinn muni „breyta lífi“ fólks sem er óviðbúið hamförunum. 28.8.2021 08:45
Telja „blátt“ vetni enn meira mengandi en kol eða gas Losun gróðurhúsalofttegunda sem hlýst af vinnslu vetnis úr jarðgasi er enn meiri en ef gasinu eða kolum væri brennt til að framleiða orku. Svonefndu „bláu“ vetni hefur verið hampað sem umhverfisvænu eldsneyti. 28.8.2021 08:02
Svöruðu hryðjuverkunum í Kabúl með drónaárás á Ríki íslams Bandaríkjaher gerði drónaárás á hryðjuverkasamtökin Ríki íslams í Afganistan í nótt til þess að hefna fyrir hryðjuverkaárásina sem var gerð við flugvöllinn í Kabúl á fimmtudag. Vestrænt herlið býr sig undir möguleikanna á frekari hryðjuverkum. 28.8.2021 07:55
Nýjar sóttvarnareglur í gildi Engin takmörk eru lengur á hámarksfjölda gesta í sundlaugum eftir að nýjar sóttvarnareglur tóku gildi á miðnætti. Áfram eru samkomur takmarkaðar við 200 manns en gerð er krafa um grímunotkun þar sem ekki er hægt að tryggja eins metra fjarlægðarmörk. 28.8.2021 07:27
Reyndi að bíta lögreglumenn Karlmaður sem tilkynnt var um að hefði verið ógnandi í garð ungmenna reyndi að bíta lögreglumenn eftir að hann var handtekinn. 28.8.2021 07:07
Breivik sækist eftir reynslulausn Norskur dómstóll þarf að taka fyrir ósk hryðjuverkamannsins Anders Behring Breivik um reynslulausn eftir að ríkissaksóknari hafnaði beiðninni. Breivik hefur nú afplánað tíu ár af 21 árs fangelsisdómi sem hann hlaut. 27.8.2021 11:55