Stærsti sjónvarpssamningur sögunnar fyrir kvennadeild: „Stórkostlegt skref fram á við“ Sky Sports og BBC hafa keypt réttinn á ensku ofurdeildinni til þriggja ára. Talið er að samningurinn sé um 24 milljóna punda virði og er þetta stærsti sjónvarpssamningur sem gerður hefur verið fyrir kvennadeild í heiminum. 22.3.2021 12:33
Hissa á uppsögn Basta og ræddu um vinaklíkuna í Safamýrinni Sérfræðingar Seinni bylgjunnar voru hissa á þeirri ákvörðun Fram að segja þjálfaranum Sebastian Alexanderssyni upp störfum. Hann stýrir Fram út tímabilið en Einar Jónsson tekur svo við liðinu. 19.3.2021 22:30
Sjáðu kynningarþátt Stöðvar 2 Sports um Píeta samtökin Vakin var athygli á starfsemi Píeta samtakanna á Stöð 2 Sport fyrir leik Vals og Tindastóls í gær. 19.3.2021 15:14
Sjáðu þegar Pogba skaut United áfram og þrennuna sem sökkti Spurs Paul Pogba var hetja Manchester United gegn AC Milan í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gær. Ekki gekk jafn vel hjá Lundúnaliðunum Tottenham og Arsenal þótt síðarnefnda liðið hafi komist áfram. 19.3.2021 14:31
„Látum oft eins og íþróttir snúist um líf og dauða en þetta er sannarlega málefni sem er upp á líf og dauða“ Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var ánægður með sigurinn á Tindastóli í gær og ekki síður með daginn en leikurinn á Hlíðarenda var styrktarleikur fyrir Píeta samtökin sem sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. 19.3.2021 14:01
Mourinho æfur: „Fótbolti er ekki bara fyrir leikmenn sem halda að þeir séu betri en aðrir“ José Mourinho hefur oft verið sakaður um að leggja rútunni en í gær henti hann leikmönnum Tottenham undir rútuna svo gripið sé í aðra slælega hráþýðingu. 19.3.2021 13:00
„Ótrúleg vinnubrögð af hálfu HSÍ og áfrýjunardómstólsins“ Framkvæmdastjóri KA er gáttaður á úrskurði áfrýjunardómstóls HSÍ um að endurtaka eigi leik KA/Þórs og Stjörnunnar í Olís-deild kvenna. Akureyringar hafa eitt og annað við málsmeðferðina að athuga og segja að gleymst hafi að tilkynna þeim um áfrýjunina. 19.3.2021 12:15
Liðin úr úrslitaleiknum mætast og Liverpool mætir Real Madrid Sannkallaðir stórveldaslagir verða í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Dregið var til átta liða úrslita og undanúrslita í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Vísi í hádeginu. 19.3.2021 11:17
Endurtaka þarf leik Stjörnunnar og KA/Þórs Samkvæmt heimildum Vísis hefur Áfrýjunardómstóll HSÍ ógilt úrslit Stjörnunnar og KA/Þórs og komist að þeirri niðurstöðu að endurtaka þurfi leikinn. 19.3.2021 11:13
Pavel: Uppgötvuðum að þetta er bara eins og hver önnur vinna Pavel Ermolinskij, leikmaður Vals, var ánægður með sigurinn á Tindastóli í kvöld. Valsmenn hafa nú unnið þrjá leiki í röð eftir brösugt gengi framan af tímabilinu. 18.3.2021 23:13