Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Bragi Karl Bjarkason tryggði Njarðvík endurkomusigur á HK, 3-2, í Lengjudeild karla í kvöld. 24.7.2026 21:42
Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Keppni á hundraðasta meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum hófst á ÍR-vellinum í Mjóddinni í dag. Úrslitin réðust í spjótkasti karla og kvenna, stangarstökki kvenna og fjögur hundruð og fimmtán hundruð metra hlaupi karla og kvenna. 24.7.2026 21:25
Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, lék í kvöld sinn fyrsta leik fyrir Hauka í átján ár. Haukar tóku þá á móti HK á Ásvöllum í Lengjudeild kvenna og lutu í lægra haldi, 0-2. 24.7.2026 21:24
Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Völsungur vann sinn annan leik á tímabilinu í Lengjudeild karla þegar Grindavík kom í heimsókn á Húsavík í kvöld. Lokatölur 2-0. Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði bæði mörk leiksins sem fór fram á miðjum Mærudögum. 24.7.2026 20:03
Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum átján ára og yngri fór vel af stað í B-deild Evrópumótsins í Króatíu. Í dag sigraði Ísland Portúgal með nítján stiga mun, 68-87. 24.7.2026 18:46
Guðmundur Oddsson látinn Guðmundur Oddsson, fyrrverandi formaður Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, er látinn, 83 ára að aldri. 24.7.2026 18:25
United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Manchester United vann 0-5 sigur á Rosenborg í æfingaleik á Lerkendal-leikvanginum í Þrándheimi í dag. Freyr Alexandersson er þjálfari Rosenborg. 24.7.2026 18:12
Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val Kristinn Freyr Sigurðsson er genginn í raðir Aftureldingar frá Val. Mosfellingar hafa gengið frá kaupunum á þessum reynslumikla leikmanni. 24.7.2026 17:11
María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fyrr í þessum mánuði greindi norska fótboltakonan María Þórisdóttir frá því að hún væri barnshafandi. Meðgangan hefur reynst henni erfið en hún hefur deilt þeirri reynslu sinni á samfélagsmiðlum. 24.7.2026 07:02
Dagskráin í dag: Fá Keflvíkinga í heimsókn milli Evrópuleikja Íslandsmeistarar Víkings, sem standa í ströngu í forkeppni Meistaradeildar Evrópu, fá Keflavík, sem hefur komið flestum á óvart með góðu gengi í Bestu deild karla í sumar, í heimsókn í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland í kvöld. 24.7.2026 06:03