Fannst lifandi eftir 174 klukkustundir en vonir um að finna fleiri dvína Sífellt færri finnast nú lifandi í rústunum í Tyrklandi en vika er liðin frá mannskæðustu jarðskjálftum á svæðinu í áratugi. Kona fannst í dag lifandi eftir 174 klukkustundir en vonir fara dvínandi og spjótin beinast að gölluðum mannvirkjum. Íslenskt sérfræðingateymi stýrir enn aðgerðum rústabjörgunarsveita en færði sig um set í gær. 13.2.2023 12:50
Færri bjargað í dag og eyðileggingin algjör Ríflega 22 þúsund eru nú sagðir látnir eftir skjálftana í Tyrklandi og Sýrlandi en einhverjum hefur verið bjargað úr rústum bygginga í dag eftir meira en hundrað klukkustundir. Björgunarstarf er þó að renna út á tíma en aðgerðarstjórnandi íslenska teymisins segir töluvert færri finnast á lífi. 10.2.2023 16:56
Líklega um sex hundruð fengið lyfið á síðustu tveimur vikum Lyfjastofnun hefur innkallað sýklalyfið Staxlox í varúðarskyni eftir að einstaklingar sem fengu sambærilegt lyf í Danmörku sýktust og hylki af lyfinu reyndust menguð. Grunur er um að einn hafi sýkst hér á landi. Forstjóri Lyfjastofnunar segir líklega um 600 hafa fengið lyfið á síðustu tveimur vikum hér á landi en þau hafi verið látin vita í gegnum Heilsuveru. Þó sé ekki saman sem merki milli þess að fá mengað hylki og að sýkjast. 10.2.2023 13:00
Endurtekur leikinn fyrir Píeta: „Í ár stefnum við bara enn hærra“ Tölvuleikjaspilarinn Rósa Björk stendur fyrir góðgerðarstreymi í sólarhring til styrktar Píeta samtakanna á morgun. Í fyrra safnaði hún 1,4 milljónum króna og stefnir enn hærra í ár með stútfullri dagskrá. Hún segir Píeta eiga sérstakan stað í hjarta hennar og stefnir á að þetta verði árlegur viðburður. 9.2.2023 19:31
Munu ekki semja nema laun milli markaða verði jöfnuð Kennarasamband Íslands, BSRB og BHM hafa ákveðið að ganga saman til kjaraviðræðna um ákveðna meginþætti en kjarasamningar renna út í mars. Helsta verkefnið er að jafna laun á milli markaða að sögn formanns BSRB og verður ekki samið án þess að það náist. Formaður Kennarasambandsins tekur undir og reiknar með að viðræðurnar hefjist af krafti fljótlega. 8.2.2023 16:00
Örfáir þingmenn hafi tekið þingið í gíslingu svo dögum skiptir Umræða um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er enn og aftur á dagskrá þingsins í dag en tillaga um að taka málið af dagskrá var felld og tillaga um að lengja þingfund samþykkt. Fjármálaráðherra sagði stjórnarandstöðuna beita sér í grímulausu málþófi undir því yfirskini að greiða fyrir störfum þingsins. 7.2.2023 15:31
Allt hafi farið tiltölulega vel í hvellinum sem kom og fór hratt Óveðrið sem gekk yfir landið í morgun virðist vera að renna sitt skeið og er reiknað með að óvissustigi almannavarna verði aflétt fljótlega eftir hádegi. Áfram er þungfært á vegum víða um land en flugsamgöngur eru að komast í eðlilegt horf. Almannavarnir þakka fyrir að fáir hafi verið á ferð. 7.2.2023 12:29
Skjóti skökku við að tefla fram „karlastétt með frekar há laun“ Tíðinda er að vænta í vikunni í kjaradeilu Eflingar en að óbreyttu hefjast verkföll á þriðjudag. Sömuleiðis hefur verkfall verið boðað meðal flutningabílstjóra, sem Samtök atvinnulífsins hafa kallað hálaunastétt. Efnahagsráðgjafi SA stendur við það og segir það skjóta skökku við að hálaunaðri karlastétt sé teflt fram í baráttunni. 5.2.2023 22:00
Fagnar því að „ógeðfelld og ljót krafa“ falli frá Fósturvísum verður ekki eytt sjálfkrafa við skilnað eða andlát ef að frumvarp heilbrigðisráðherra nær fram að ganga. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem hafði lagt fram eigið frumvarp, fagnar málinu og segir þetta ógeðfellt ákvæði. Hún vill þó ganga lengra og telur tilefni til að skoða rýmri heimild fyrir því að gefa fósturvísa. 5.2.2023 14:01
„Það getur verið gott veður en kílómetra lengra er það snarvitlaust“ Óvissustig Almannavarna er í gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi vegna veðurs en spár um aftakaveður virðast ætla að ganga eftir. Gert er ráð fyrir hviðum allt að 50 metrum á sekúndu og segir sviðsstjóri Almannavarna nauðsynlegt að fólk haldi sig heima á meðan versta veðrið gengur yfir. Á Vestfjörðum er hætta á ofanflóðum en bæjarstjóri segir þau viðbúin eftir flóðin í janúar. 5.2.2023 12:32