Þrettán til tuttugu metrar á sekúndu Í dag er spáð austan og suðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu með rigningu eða súld og hita á bilinu 2 til 8 stig sunnantil. Norðanlands verður hægari vindur, úrkomulítið og frost 0 til 5 stig, en þar hlýnar þegar líður á daginn. 17.2.2024 08:22
Reyndi að bíta fólk og flýja undan lögreglu Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Höfð voru afskipti af fjölda ökumanna sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum vímuefna og á fimmta tímanum í morgun var tilkynnt um mann sem er sagður hafa reynt að bíta fólk í miðborginni. Reyndi hann að hlaupa undan lögreglu en var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. 17.2.2024 07:53
Skjálfti í Bárðarbungu og áfram landris við Svartsengi Jarðskjálfti að stærð 3,5 mældist í Bárðarbunguöskjunni klukkan 21:43 í gærkvöldi. Veðurstofa Íslands greinir frá þessu og tiltekur náttúrúvársérfræðingur að skjálftar að þessari stærð eigi sér stað í Bárðarbungu öðru hverju. Bárðarbungukerfið er lengsta eldstöðvakerfi landsins og annað virkasta. 17.2.2024 07:19
Mygla í Blóðbankanum hafi ekki áhrif á starfsemi bankans Mygla greindist í Blóðbankanum í sumar. Læknir segir ekkert benda til þess að mygla og raki hafi áhrif á blóð sem geymt er í bankanum, loftgæði séu góð í húsinu og forsvaranlegt að halda starfseminni áfram. Öryggi starfsmanna, blóðgjafa og starfseminnar sé tryggt. 19.1.2024 18:37
Áramótum fagnað víða um land: Brenna á Eyrarbakka en engin í Kópavogi Áramótabrennur verða með hefðbundnum hætti ár en þó ekki í Kópavogi og Hafnarfirði, þar sem engar brennur verða. Íbúar segja margir hverjir þetta svekkjandi. Í kvöld verða áramótabrennur tendraðar á tíu stöðum í Reykjavík. Tvær í Garðabæ, ein á Seltjarnarnesi og ein í Mosfellsbæ. Í Kópavogi og Hafnarfirði verða hins vegar engar brennur. 31.12.2023 14:25
Tugir særðir í hefndaraðgerðum Rússa Rússar gerðu loftárásir á Úkraínu í nótt og nokkrir tugir eru særðir. Árásirnar eru hefndaraðgerðir Rússa eftir að tuttugu og fjórir féllu í umfangsmikilli árás Úkraínu á rússnesku borgina Belgorod í gær. Hún er að sögn rússneskra stjórnvalda sú versta á Rússland frá upphafi stríðsins. 31.12.2023 12:12
Fannar bæjarstjóri maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík er maður ársins 2023 mati lesenda Vísis og hlustenda Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Valið var kunngjört í þættinum Reykjavík árdegis á Bylgjunni rétt í þessu. 31.12.2023 11:31
Margir eiga í miklum erfiðleikum með að halda jól Tæpur þriðjungur landsmanna segir krefjandi fyrir sig fjárhagslega að halda jól og tæp tíu prósent eiga í miklum erfiðleikum með hátíðarhöldin. Sjötíu prósent segja jólahaldið þó engin áhrif hafa á skuldastöðu sína. 31.12.2023 10:11
Gul viðvörun og misjafnt árámótaveður eftir landshlutum Í dag verður norðaustanátt á landinu, víðast hvar fimm til þrettán metrar á sekúndu, en að átján metrar á sekúndu suðaustanlands. Skýjað með köflum en dálítil él norðaustan- og austantil. Frost eitt til ellefu stig. 31.12.2023 08:10
Með innkaupakerru á miðri akbraut og sagðist taka styðstu leið Tilkynnt var um mann með innkaupakerru á miðri akbraut en þegar lögregla ræddi við hann kvaðst hann vera að taka stystu leið á áfangastað og að göngustígar væru ófærir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en maðurinn sagðist jafnframt ætla að koma sér af akbrautinni. 31.12.2023 07:54