Rýmingu í Mýrdal aflétt Rýmingu tveggja húsa í Mýrdal vegna yfirvofandi snjóflóðahættu hefur verið aflétt. Fólk á svæðinu er þó beðið um að gæta að sér á ferðum sínum undir bröttum hlíðum næstu daga. 27.12.2022 15:20
Stunginn til bana á dansgólfinu í Birmingham Rúmlega tvítugur karlmaður var stunginn til bana á dansgólfi skemmtistaðar í Birmingham í Bretlandi í gærkvöldi. Árásarmaðurinn er enn ófundinn og veit lögregla ekki hver hann er. 27.12.2022 14:55
Margrét og Ísak trúlofuð Margrét Bjarnadóttir, bæjarfulltrúi í Garðabæ, og Ísak Örn Kristinsson, viðskiptafræðingur og körfuboltadómari, trúlofuðu sig nýlega. Þau greina frá þessu í sameiginlegri færslu á Instagram. 27.12.2022 14:20
Bjarni Ben gúgglaður þrettán hundruð sinnum á mánuði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra var gúgglaður að meðaltali þrettán hundruð sinnum á mánuði árið 2022. Elísabet heitin Bretlandsdrottning sló honum hins vegar rækilega við í september þegar hún var gúggluð 27 þúsund sinnum. 27.12.2022 14:04
Musk metur martraðaspá Medvedev marklausa Dmitry Medvedev, náinn bandamaður Vladimír Pútín og fyrrverandi forseti Rússlands, birti í gær sína spá fyrir árið 2023. Margt í spánni mætti flokka sem galið en meðal þeirra sem svöruðu forsetanum fyrrverandi var Elon Musk, forstjóri Twitter. Hann sagði spána vera þá fáránlegustu sem hann hefur á ævi sinni heyrt. 27.12.2022 13:22
„Við áttum okkur ekki alveg á því hvað gerðist“ Framkvæmdastjóri Hópbíla segir forsvarsmenn fyrirtækisins eiga eftir að ná betra tali af bílstjóranum sem festi rútu sína í tvígang um helgina eftir að hafa ekki virt vegalokanir. Verið sé að afla allra gagna málsins. 27.12.2022 11:06
Búið að opna Hellisheiði Hellisheiðin er nú opin í báðar áttir. Þá er einnig búið að opna vegina up Þrengsli og Sandskeið. Krýsuvíkurvegur og Suðurstrandarvegur eru enn ófærir. Reykjanesbrautinni er haldið opinni og búið er að opna Grindavíkurveg á ný. 27.12.2022 10:08
Fóru leynt með óléttuna í átta mánuði Hulda Vigdísardóttir, fegurðardrottning, og kærasti hennar, Birgir Örn Sigurjónsson, eiga von á sínu fyrsta barni. Þau hafa vitað af óléttunni síðan í maí en ekki greint frá henni fyrr en nú. 27.12.2022 09:45
Gul viðvörun á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun er nú í gildi á Suðausturlandi. Búist er við þrettán til tuttugu metrum á sekúndu með snjókomu en batna á vestan til á svæðinu eftir hádegi. Viðvörunin er þó í gildi til klukkan fjögur í dag. 27.12.2022 09:34
Viðurkennir að hafa logið á ferilskránni en ætlar samt inn á þing George Santos, sem nýverið var kosinn þingmaður í New York-ríki í Bandaríkjunum fyrir Repúblikana, hefur viðurkennt að hafa logið á ferilskrá sinni. Hann gerir þó lítið úr fölsun sinni, segist einungis hafa gerst sekur um ýkja á ferilskránni og ætlar að taka sæti á þinginu eftir áramót líkt og hann var kosinn til þess að gera. 27.12.2022 08:51