„Spánverjinn hlæjandi“ er allur Spænski grínistinn Juan Joya Borja er látinn, 65 ára að aldri. Það eru ef til vill ekki allir sem kannast við nafnið, en þó fleiri sem kannast við andlitið þar sem Borja varð óvænt stjarna í netheimum árið 2014 þegar þá um tíu ára gamalt sjónvarpsviðtal við hann fór í mikla dreifingu á netinu. 29.4.2021 08:50
110 nemendur FSu í sóttkví eftir að nemandi greindist Alls eru 110 nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi komnir í sóttkví eftir að nemandi við skólann greindist smitaður af kórónuveirunni í gærkvöldi. Auk þeirra eru fimm kennarar við skólann einnig komnir í sóttkví. 29.4.2021 08:12
Birtu nýjar myndir í tilefni af tinbrúðkaupinu Vilhjálmur Bretaprins og Katrín halda í dag upp á að tíu ár eru nú liðin frá því að þau gengu í hjónaband. Breska konungsfjölskyldan hefur í tilefni þess birt nýjar myndir af þeim hjónum. 29.4.2021 07:42
Björguðu unglingsstúlku úr tré í Hellisgerði Starfsmenn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru í gær kallaðir út til að bjarga unglingsstúlku niður úr tré í Hellisgerði í Hafnarfirði. 29.4.2021 07:29
Norðanáttin gæti orðið þaulsetin næstu daga Veðurstofan gerir ráð fyrir „aðgerðarlitlu veðri“ í dag með dálítilli vætu sunnan- og vestanlands. Víða verður bjart veður í öðrum landshlutum. Hiti verður sjö til ellefu stig suðvestantil, en annars eitt til sjö stig. 29.4.2021 07:14
Bein útsending: Kynningarfundur um aðgerðir gegn stafrænu ofbeldi gegn börnum og ungmennum Ríkislögreglustjóri mun kynna nýjar aðgerðir gegn stafrænu kynferðisofbeldi gegn börnum á fundi sem hefst klukkan 15. Fundinum verður streymt og verður hægt að fylgjast með í spilaranum að neðan. 28.4.2021 14:31
Tónlistarkonan Anita Lane látin Ástralska söngkonan og lagasmiðurinn Anita Lane er látin, 62 ára að aldri. Á ferli sínum starfaði Lane meðal annars með sveitunum The Bad Seeds og The Birthday Party. 28.4.2021 13:45
Bein útsending: Ársfundur Íslandsstofu 2021 Ársfundur Íslandsstofu verður sýndur í beinni útsendingu frá Hörpu milli klukkan 14 og 15 í dag. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni í spilaranum að neðan. 28.4.2021 13:31
Skuldaði hinni látnu um 176 milljónir króna eftir dómsmál Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt konu á götu úti í Frogner-hverfi í norsku höfuðborginni Osló í morgun, skuldaði hinni látnu 11,8 milljónir norskra króna. Maðurinn hafði nýverið verið dæmdur til greiðslu bóta í dómsmáli sem staðið hafði í mörg ár. 28.4.2021 13:01
Finnsku stjórnarflokkarnir náðu samkomulagi Finnsku stjórnarflokkunum fimm hefur tekist að ná samkomulagi um fjárlagaramma til næstu þriggja ára. Hefur þannig tekist að koma í veg fyrir að stjórnin riði til falls líkt og sumir óttuðust eftir að viðræður drógust á langinn og leiðtogar eins stjórnarflokksins sögðust efast um framhald samstarfsins. 28.4.2021 11:38