Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Maður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft í fórum sínum og ræktað 260 kannabisplöntur í sölu- og dreifingarskyni í Reykhólahreppi á Vestfjörðum þann 10. ágúst síðastliðinn. Lögreglumenn fundu plönturnar í leit í húsi sem vógu samtals rúm 126 kíló. 1.9.2026 23:33
Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Forsætisráðherra segist vongóð um að finna ákjósanlega lendingu í ljósi forsendubrests kjarasamninga. Ríkisstjórnin muni funda í Þjóðhagsráði á fimmtudaginn og kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir því að kjarasamningar haldist. 1.9.2026 22:46
„Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Fólki er misvel við máva en íbúar höfuðborgarsvæðisins segja margir farir sínar ekki sléttar af fuglunum og atgangi þeirra síðastliðnar vikur. Ekki sé við þá að sakast enda um svanga og óharðnaða unglinga að ræða, að sögn fuglafræðings. 1.9.2026 21:03
Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Landspítalinn segir stöðuna varðandi sjúklinga með færni- og heilsumat ekki hafa verið betri það sem af er þessari öld. Síðastliðna 12 mánuði hafa 244 ný hjúkrunarrými fyrir aldraða verið opnuð. 1.9.2026 19:18
Halla verður viðstödd útför Haraldar Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason eiginmaður hennar halda til Noregs í næstu viku og verða viðstödd jarðarför Haraldar fimmta Noregskonungs. Haraldur lést á föstudaginn í síðustu viku, 89 ára að aldri. 1.9.2026 19:17
Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Bandaríkjaher hóf árásir á skotmörk íranska byltingarvarðarins í Íran í dag. Árásirnar eru svar Bandaríkjahers við tilraunum byltingarvarðarins til árása á kaupskip á Hormússundi að sögn hersins. 1.9.2026 17:51
Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Búið er að telja öll atkvæði í Norðvesturkjördæmi. Alls sögðu 37,13 prósent kjósenda já en 62,87 prósent nei. 30.8.2026 06:10
Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Búið er að telja öll atkvæði í Suðurkjördæmi. Alls sögðu 39,5 prósent kjósenda já en 60,5 prósent nei. 30.8.2026 05:46
Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Verði já-ið ofan á í kvöld er margra ára vegferð í farvatninu að sögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Kjörsókn endurspegli áhuga fólks á málinu en erfitt sé þegar mjótt er á munum. 30.8.2026 01:53
„Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Framsóknarkonurnar Lilja Alfreðsdóttir og Magnea Gná Jóhannsdóttir sammælast um það að kosningabaráttan hafi farið vel fram og allt bendi til þess að ungt fólk hafi sagt nei í dag. 30.8.2026 00:57