Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Renni­braut vélarinnar hafi virkjast á flug­hlaði

Nítíu og þrír, eða helmingur farþega vélar Icelandair urðu eftir á flugvelli í Alicante á Spáni í dag eftir að hún var rýmd vegna bilunar í neyðarútgangi vélarinnar. Flestir þurftu að fljúga heim í fleiri en einum fluglegg. Flogið var til Íslands með hinn helming farþega vélar Icelandair eftir einhverja seinkun en barnafjölskyldur voru settar í forgang. 

Ekki gott að mögu­leg lög­brot hafi fengið að malla árum saman

Dómsmálaráðherra segir ekki gott að möguleg brot á lögum um sölu áfengis hafi fengið að „malla“ árunum saman. Staðan nú sé hvorki góð fyrir stjórnvöld né lögreglu og almenningur spyrji sig hvers vegna ekkert hafi verið gert. Málið sé hinsvegar rammpólitískt og mjög skiptar skoðanir séu um hvaða leið sé best að fara í þessum efnum.

„Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“

Bræðslustjóri segir tónleikahald á Bræðslunni á Borgarfirði eystra hafa gengið vel þrátt fyrir leiðindaveður. Hann þakkar viðbragðsaðilum fyrir vel unnin störf og að það þýði ekkert að velta sér of mikið upp úr veðurspánni. 

Emma Roberts gengin í það heilaga

Leikkonan Emma Roberts giftist unnusta sínum, leikaranum Cody John, í gær en parið hefur verið saman í um fjögur ár, þar af trúlofuð í tvö ár. Athöfnin fór fram í Sun Valley í Idaho-ríki í Bandaríkjunum. 

Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“

Narendra Modi forsætisráðherra Indlands féllst á kröfur ungliðahreyfingar sem kallar sig Kakkalakkana sem höfðu staðið fyrir mótmælum í fimm vikur og meðal annars krafist afsagnar menntamálaráðherra landsins.

Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Ber­lín

Minnst einn lést og 14 særðust alvarlega í hátíðarhöldum hinsegin daga í Berlín, að sögn lögreglu þar í borg. Grunur er um að sendiferðabíl hafi verið ekið á mannfjölda í Tiergarten-garðinum í vesturhluta miðborgar Berlínar.

Hvass­viðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni

Lögreglan á Austurlandi segir ágætlega hafa gengið á tónlistarhátíðinni Bræðslunni sem haldin er á Borgarfirði eystra um helgina en veður hafi sett strik í reikninginn. Einhverjir gestir þurftu að leita skjóls í íþróttahúsi í gærnótt vegna hvassviðris og úrkomu og óttast er að komi til svipaðs ástands í nótt. 

Sjá meira