Verðbólga stendur í stað þvert á spár Verðbólga mældist 5,2 prósent í febrúar, eftir að hafa einnig mælst 5,2 prósent í janúar. 26.2.2026 09:00
Voru að tína dópið úr töskunni þegar löggan réðst til atlögu Albani á fertugsaldri kveðst vera fórnarlamb í máli sem snýr að smygli á sögulegu magni ketamíns og mikils magns MDMA. Hann hafi talið sig eiga að gera manni sem væri ekki með dvalarleyfi greiða en í staðinn hafi verkstæði sem hann hafði aðgang að verið notað til að fjarlægja fíkniefnin úr bifreið. 26.2.2026 06:46
Átti að fá smáaura fyrir sögulegt smygl Þýsk kona á sextugsaldri segist hafa leiðst út í að flytja tuttugu kíló af sterkum fíkniefnum til landsins með Norrænu vegna fjárhagsvandræða í tengslum við handtöku sonar hennar í Frakklandi. Hún hafi átt að fá tvö til þrjú þúsund evrur fyrir ómakið, sem jafngildir um 290 til 340 þúsund krónum. Hún á nú yfir höfði sér allt að tólf ára fangelsi. 25.2.2026 13:02
Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu Vegagerðin varar við snjókomu á suðvesturhorninu á morgun með krefjandi aksturskilyrðum, meðal annars í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins. 24.2.2026 16:05
Reykjadalur fær ekki styrki og fellir niður hluta starfsins Gló stuðningsfélag hefur ekki fengið áframhaldandi styrki til aukaverkefna á vegum Reykjadals fyrir næstkomandi sumar. Ekkert verður því af svokölluðum Ævintýrabúðum og Vinahópum í sumar. 24.2.2026 15:22
Tekinn í tollinum með tíu kíló af ketamíni Ionut Mihai Dinescu, Rúmeni á fertugsaldri, hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnabrot, með því að hafa staðið að innflutningi á rúmum tíu kílóum af ketamíni. 24.2.2026 14:43
Reyna að hnýta lausa enda sem allra fyrst Eiríkur Valberg, fulltrúi í rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir lögregluna vera langt komna með að hnýta lausa enda í rannsókn á Edition-málinu svokallaða. Héraðssaksóknari sendi málið aftur til lögreglu fyrir um hálfum mánuði. 24.2.2026 14:16
Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Óttar Helgason og Jón Arnór Stefánsson voru látnir hætta störfum hjá einkabankaþjónustu Fossa vegna eignarhluta þeirra í félagi sem hefur verið í viðskiptum við einkabankaþjónustuna. Einn eigenda félagsins er Magnús Sverrir Þorsteinsson, kenndur við bílaleiguna Blue Car Rental. 24.2.2026 13:32
Biðja fólk um að fóðra ekki fuglana í kirkjugörðunum Kirkjugarðar Reykjavíkur biðla til almennings um að fóðra ekki fugla í görðunum en borið hefur á því undanfarið að matarleifum sé dreift um garðana. 24.2.2026 09:08
Markmiðið ekki að höfða til kvíða aðstandenda Framkvæmdastjóri Intuens segir samstarf við Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra, hafa verið í góðri trú og í samráði við félagið. Tilgangurinn hafi verið að veita valkost fyrir þá sem sjálfir óskuðu eftir slíkri þjónustu, en ekki að höfða til ótta eða kvíða. Intuens hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að markaðssetja þjónustu sína sérstaklega gagnvart aðstandendum fólks sem greinst hefur með krabbamein. 23.2.2026 15:58