Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Körfuboltagoðsögnin Kristófer Acox hefur sett íbúð sína í Urriðaholti í Garðabæ á sölu. Íbúðin er á fyrstu hæð og henni fylgir heitur pottur og pallur. 20.10.2026 16:34
Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Karlmaður hefur verið dæmdur til 3,5 ára fangelsisvistar fyrir gróft ofbeldi í garð sambýliskonu sinnar. Hann var ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa tekið konuna kyrkingartaki en dómurinn taldi ekki sannað að hann hefði haft ásetning til þess að myrða konuna. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldi í garð konunnar og einnig fyrir að nauðga barni. 20.10.2026 16:34
„Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segist döpur að hafa misst Jón Gnarr úr þingflokki Viðreisnar og vonar að hann snúi til baka. Hún segir þingflokkinn og forystu flokksins taka gagnrýni hans til greina. 20.10.2026 15:58
Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Karlmaður hefur verið dæmdur til fjórtán mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar eftir að hafa játað 89 þjófnaðarbrot. Hann stal vörum úr verslunum fyrir um 3,5 milljónir króna. 20.10.2026 12:42
Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Fimmtán hafa sótt um starf framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar og einn dregið umsókn sína til baka. Meðal umsækjenda eru fjórir hlaðvarpsstjórnendur sem bölsótast hafa opinberlega út í nefndina og kröfur hennar um skráningu hlaðvarpa sem fjölmiðla. Ætla má að umsóknir þeirra séu lagðar fram í hálfkæringi. 9.10.2026 16:37
Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Landsréttur hefur viðurkennt bótaskyldu VÍS vegna tjóns tveggja ungra kvenna og ungs karlmanns. Þau lentu í slysi árið 2021 þegar þau voru 13 og 14 ára og pilturinn ók breyttu léttu bifhjóli með stúlkurnar aftan á. Vátryggingafélagið vildi meina að létta bifhjólið hefði orðið skráningar- og vátryggingaskylt eftir að því var breytt þannig að það kæmist umtalsvert hraðar en óbreytt létt bifhjól og bótaskylda væri því ekki fyrir hendi. 9.10.2026 16:01
Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Kareem M. M. Abufarhah hefur verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara undir Höfðatorgi í mars síðastliðnum. Mohamed Sayidali Ahmed var dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar fyrir stórfellda líkamsárás en þriðji maðurinn sem var ákærður, Qossay Ali Yahya Alsadi, var sýknaður. 9.10.2026 15:36
Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Stjórnendur Beru segjast engar upplýsingar hafa um að brot á samkeppnislögum hafi átt sér stað í starfsemi félagsins. Rík áhersla sé lögð á fylgni við samkeppnisreglur í rekstri þess og það sé hluti af þjálfun starfsfólks Ölgerðarinnar að fá fræðslu um það hvernig stór aðili á markaði þurfi að haga sér í samkeppni. 9.10.2026 13:16
Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Friðarsúlan, listaverk Yoko Ono í Viðey, verður tendruð í tuttugasta sinn klukkan 20 í kvöld. Frá því að fyrst var kveikt á verkinu árið 2007 hefur það kostað Listasafn Reykjavíkur rúmlega 96 milljónir króna. Þar er tekið tillit til fjórtán milljóna króna styrks sem listamaðurinn sjálfur, Reykjavíkurborg og Orkuveitan veittu vegna endurnýjunar búnaðar. Kostnaður hleypur því á um 110 milljónum króna. 9.10.2026 08:46
Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms um sextán ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf, sem hún hlaut fyrir að ráða föður sínum bana á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ í apríl í fyrra og að ráðast á móður sína. Kröfu hálfbróður hennar um að hún yrði gerð arflaus var vísað frá dómi. 8.10.2026 15:17