Landsbankinn hækkar líka vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka bæði út- og innlánavexti eftir 0,5 prósentustiga stýrivaktahækkun Seðlabankans. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir tilkynntu einnig vaxtahækkun í dag. 17.2.2023 18:49
Eiginlegar kjarasamningsviðræður hafnar Settur ríkissáttasemjari segir góðan tón vera í samningsaðilum í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Hann segir að samninganefndirnar hafi hafið eiginlega vinnu við gerð nýs kjarasamnings. 17.2.2023 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nágrannar áfangaheimilis í Vatnagörðum, þar sem mikill eldur kviknaði í morgun, höfðu lengi haft áhyggjur af brunavörnum og tilkynnt þær til Slökkviliðsins. Það sæti furðu að reka megi áfangaheimili í skrifstofuhúsnæði. Við sjáum myndir frá eldsvoðanum og ræðum við slökkvilið og íbúa í kvöldfréttum Stöðvar 2 17.2.2023 18:01
Leita ökumanns sem stakk af Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á gangandi vegfaranda á gatnamótum Hrafnsgötu og Burknagötu í Reykjavík í gærmorgun. Ökumaðurinn nam staðar og ræddi við vegfarandann en stakk síðan af frá vettvangi. Vegfarandinn er töluvert slasaður. 17.2.2023 17:38
Hætti nánast að geta gengið og léttist um tæplega 100 kíló Sveinn Hjörtur Guðfinnsson segist hafa nánast verið hættur að geta gengið þegar hann var orðinn 200 kíló að þyngd. Hann segist hafa gengið í gegnum endurnýjun lífdaga eftir að hafa lést um tæplega helming. 8.2.2023 21:01
Verkföllum haldið til streitu eftir viðburðaríkan dag Efling mun hefja verkfallsaðgerðir í hádeginu a morgun eftir úrskurð Félagsdóms um að verkfallsboðun félagsins hafi verið lögleg. Fyrr í dag úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að ríkissáttasemjari fái aðgang að kjörskrá Eflingar. 6.2.2023 23:43
„Seinasta sem við viljum er að vera úlfur, úlfur týpan“ Von er á vonskuveðri og almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi á landinu öllu í fyrramálið. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi alls staðar nema á Vestfjörðum í fyrramálið. Fólk er hvatt til þess að fylgjast vel með og reyna eftir fremsta megni að fresta ferðum sínum á meðan veðrið gengur yfir. 6.2.2023 23:10
Trúir því ekki að ríkissáttasemjari ætli að þvinga fram aðför Formaður Eflingar hefur ritað ríkissáttasemjara bréf vegna fundarboðs hans á morgun. Hann segir niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur, um heimila aðför til þess að fá kjörskrá Eflingar afhenta, óumdeilanlega kæranlega. Efling trúir því ekki að ríkissáttasemjari ætli að þvinga fram aðför á grundvelli niðurstöðu lægra dómstigs á meðan beðið er eftir endanlegri niðurstöðu æðri dómstóla. 6.2.2023 20:49
Skora á Eflingu að fresta og áskilja sér rétt til bótakrafna Samtök atvinnulífsins hafa skorað á Eflingu að fresta vinnustöðvun, sem félagið hefur boðað á morgun. Þá segir að samtökin áskilji aðildarfélögum sínum bótarétt vegna alls tjóns sem af ólögmætum aðgerðum Eflingar kunni að hljótast. 6.2.2023 19:55
„Ég neita að trúa því að Efling fylgi ekki lögum“ Ríkissáttasemjari segir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur ákaflega skýran um það að miðlunartillaga hans í deilu Eflingar og SA hafi verið löglega fram sett og að Eflingu beri að framvísa félagatali. 6.2.2023 18:49