Kvöldfréttir Stöðvar 2 Starfshópur matvælaráðherra telur mögulegt að bæta veiðiaðferðir við veiðar á stórhvölum en óvíst hvort þær úrbætur sem gripið hefur verið til dugi til þess. Þingmaður Sjálfstæðisflokks telur að matvælaráherra framlengi ekki hvalveiðibann. Fjallað verður um nýja skýrslu um hvalveiðar í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við nefndarmann í fagráði dýra í beinni útsendingu. 28.8.2023 17:44
Tillögur og úrbætur til þess fallnar að hafa áhrif á árangur hvalveiða Starfshópur, sem matvælaráðherra skipaði í júní til að meta leiðir til að fækka frávikum við veiðar á langreyðum, telur mögulegt að bæta aðferðir við veiðar á stórhvölum. Hópurinn segir það þó utan verksviðs síns að meta hvort úrbætur væru til þess fallnar að færa velferð dýra við veiðar á stórhvölum í ásættanlegt horf út frá löggjöf sem um veiðarnar gilda. 28.8.2023 16:47
Hreinsaði óvelkomna málningu af regnbogafánanum Skemmdarvargur málaði dónaleg skilaboð á regnbogafánann á Skólavörðustíg í skjóli nætur. Maður á vegum Reykjavíkurborgar var ekki lengi að mæta á staðinn í morgun og þrífa upp eftir ódáminn. 27.8.2023 14:54
Árásarmaðurinn í Kristjaníu átján ára Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið átján ára gamlan mann í tengslum við skotárás í Kristjaníu í gærkvöldi. Hann er grunaður um morð og tilraunir til morðs í félagi við óþekktan vitorðsmann. 27.8.2023 14:00
Skemmdarverk unnin á hinseginfánanum: „Þetta er mjög leiðinlegt“ Útsýni íbúa við Skólavörðustíg í Reykjavík í morgun var ekki eins fagurt og það er venjulega. Skemmdarvargur hafði málað ófögur, en óskýr, skilaboð á fána hinsegin fólks, sem skreytir götuna. 27.8.2023 10:27
Bjarni Benediktsson, orkuskiptin og kröfur verkalýðsins Í dag verður Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra, aðalgestur Sprengisands. Hann mætir klukkan 11. 27.8.2023 09:40
Myrti þrjá svarta með riffli skreyttum hakakrossum Ungur bandarískur karlmaður myrti þrjár svartar manneskjur í verslun í Jacksonville í Flórída í gær áður en hann svipti sig lífi. Lögreglan í borginni segir skotárásina hafa verið hatursglæp framinn vegna haturs mannsins á svörtu fólki. 27.8.2023 09:34
Regnsvæðið farið austur Regnsvæðið, sem fór austur yfir landið í gærdag og nótt, er í morgunsárið komið yfir Austurland, en heldur síðan áfram austur á bóginn og rofar þá til. 27.8.2023 08:35
Sérsveit send á skemmtistað vegna hnífaburðar Talsverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Sérsveit Ríkislögreglustjóra var til að mynda tvívegis kölluð út, annars vegar vegna tilkynningar um mann með skammbyssu og hins vegar vegna manns sem sagður var hóta fólki með hníf á skemmtistað. 27.8.2023 08:04
Héldu eldi í skefjum með garðslöngu Eldur kviknaði í húsi í Hveragerði í morgun á meðan íbúar þess, fimm manna fjölskylda, voru fjarverandi. Nágrannar brugðust hratt við og notuðu garðslöngu til þess að halda eldinum í skefjum. 26.8.2023 15:04