Fresta íbúafundi vegna leitarinnar Grindavíkurbær hefur ákveðið að fresta íbúafundi sem var á dagskrá á morgun. Ástæðan er sögð „hörmulegt slys“ sem átti sér stað í dag. 10.1.2024 16:13
Stækka sprunguna með gröfu Verkfæri manns sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í Grindvík í morgun fundust ofan í sprungunni. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir allt benda til þess að maðurinn hafi farið ofan í sprunguna ásamt verkfærunum. Maðurinn hafði verið einn við vinnu við jarðvegsþjöppun eftir sprungufyllingu. Hans er enn leitað. 10.1.2024 13:09
Tekur við forstjórastólnum af eigandanum Um nýliðin áramót tók Brynjar Elefsen Óskarsson við sem forstjóri bílaumboðsins BL ehf.. Hann tekur við af Ernu Gísladóttur, eiganda BL, sem hefur verið forstjóri félagsins síðastliðin 11 ár. 10.1.2024 12:11
Dómari fór upp fyrir kröfur saksóknara og dómnum áfrýjað Verjandi Steinþórs Einarssonar, sem dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir að verða Tómasi Waagfjörð að bana á Ólafsfirði í október árið 2022, segir dóminn mikil vonbrigði og að honum verði áfrýjað. Athygli vekur að ákæruvaldið fór aðeins fram á fimm ára dóm. 10.1.2024 11:41
Leigubílstjórar fá ekki árskort og kostnaður gæti margfaldast Isavia hefur gert breytingar á gjaldheimtu á leigubílastæðinu við Leifsstöð. Stakt gjald fyrir innakstur á stæðið helst óbreytt en árskort standa ekki lengur til boða. Ljóst er að kostnaður leigubílstjóra sem vinna mikið við að aka fólki til og frá Keflavíkurflugvelli gæti margfaldast. 10.1.2024 11:02
Átta ára fangelsi fyrir manndráp á Ólafsfirði Steinþór Einarsson, 37 ára gamall karlmaður, hefur verið sakfelldur fyrir manndráp, með því að hafa stungið Tómas Waagfjörð, 47 ára, til bana á Ólafsfirði í október árið 2022. Hann var dæmdur í átta ára fangelsi. 9.1.2024 16:45
Annað álit segir að lífeyrissjóðir megi fella niður vexti Í áliti Magna lögmanna, sem unnið er fyrir Verkalýðsfélag Grindavíkur, segir að lífeyrissjóðnum Gildi sé heimilt að fella niður vexti og verðbætur sem búsettir eru í Grindavík, í takmarkaðan tíma, vegna þess ástands sem skapast hefur í bænum af völdum náttúruhamfara. 9.1.2024 13:31
Næststærsti háskóli landsins í pípunum Háskólaráð Háskólans á Akureyri og Bifrastar hafa samþykkt að hefja sameiningarviðræður. Frá þessu greindi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, að loknum ríkisstjórnarfundi. 9.1.2024 11:42
Sættir sig ekki við bann eftir slóð gjaldþrota Hæstiréttur hefur fallist á að taka fyrir mál manns sem var úrskurðaður í þriggja ára atvinnurekstrarbann í Landsrétti. Þrotabú einkahlutafélags sem maðurinn átti einn fór fram á bannið en lýstar kröfur í búið nema ríflega 300 milljónum króna. 8.1.2024 14:30
Hjón létust á Grindavíkurvegi Fólkið sem lést í umferðarslysi á Grindavíkurvegi hét Frímann Grímsson og Margrét Á. Hrafnsdóttir. Þau voru hjón og láta eftir sig tvö uppkomin börn, tengdabörn og barnabörn. 8.1.2024 12:23