Íþróttafréttamaður

Andri Broddason

Andri Broddason er íþróttafréttamaður á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Bruno settur á bekkinn

Bruno Fernandes er ekki í byrjunarliði Manchester United þegar liðið tekur á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag. Fernandes gagnrýndi þjálfarateymi liðsins eftir að Manchester United tapaði 4-1 gegn Como í Meistaradeild Evrópu í vikunni.

Bræður bættu stigamet pabba þeirra

Sigurður Pétursson, leikmaður Álftanes í körfubolta, átti stórleik þegar liðið tók á móti Keflavík í þriðju umferð Bónus-deildar karla í körfubolta. Það hefur gefið honum auka kraft að spila gegn bróður sínum Hilmari Péturssyni sem spilar fyrir Keflavík.

Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City

Það var nóg um að vera í ensku úrvalsdeildinni í gær þar sem fjórir leikir fóru fram. Manchester City tapaði óvænt fyrir Aston Villa, Chelsea varð manni færri og tapaði gegn Tottenham, Arsenal vann öruggan sigur á Everton og Fulham náði að knýja fram sigur gegn nýliðunum í Coventry.

Sjáðu Aron bæta marka­metið og spennu hjá Þór

Lokaumferð Bestu deildar karla fór fram í gær þar sem mikil dramatík var í hinum ýmsu leikjum. Aron Sigurðarson, leikmaður KR, náði að bæta markametið í efstu deild á Íslandi með því að skora tvö mörk og Þór náði að vinna FH og þar með halda sér uppi í Bestu deildinni á næsta ári.

Emin Kadri heldur á­fram að vera ó­sigraður

Hnefaleikakappinn Emin Kadri Eminsson hélt áfram á sinni vegferð að verða heimsmeistari í atvinnuhnefaleikum í gær. Hann barðist á Spáni við Lettann Dinars Skripkins þar sem Emin vann í annarri lotu.

Ný­búin að vera valin best á Ís­landi og skoraði tvö mörk í Sví­þjóð

Íslensku stelpurnar voru heldur betur á skotskónum í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta þegar 23. umferð deildarinnar fór fram. Ída Marín Hermannsdóttir skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Hammarby, Hlín Eiríksdóttir skoraði og lagði upp í 2-1 sigri Malmö og Sigdís Eva Bárðadóttir skoraði í 5-0 stórsigri Norrköpping.

Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá

Þórsarar eru að berjast fyrir lífi sínu í Bestu deildinni en gátu með sigri tryggt sig í deildinni á næsta ári. Í fyrri hálfleik gegn FH vildu Þórsarar fá víti en ekkert var dæmt.

Emelía skoraði tvennu í mikil­vægum sigri

Emelía Óskarsdóttir skoraði tvennu þegar HB Køge fór í heimsókn til Kolding IF í dönsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Leikurinn endaði með 3-2 sigri gestanna og er liðið enn í toppsæti deildarinnar.

Sjá meira