Miðnæturopnun hjá World Class í Laugum Líkamsræktarstöðin World Class ætlar að opna dyrnar að stöðvum sínum á miðnætti á sunnudaginn. Þetta kemur fram í færslu World Class á samfélagsmiðlum. 22.5.2020 12:08
Heimsóknarbann á bráðamóttöku Vegna tveggja metra reglu og hættu á yfirálagi á sóttvarnir hefur verið ákveðið að bráðamóttakan á Landspítala Fossvogi sé lokuð gestum nema í sérstökum undantekningartilfellum. Þetta gildir í óákveðinn tíma. 22.5.2020 10:34
Ósáttar flugfreyjur láta ekki beygja sig í duftið Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) lýsir yfir miklum vonbrigðum með það sem félagið lýsir sem einarðri og óbilgjarnri afstöðu Icelandair í árangurslausu samningaviðræðum sem staðið hafa yfir milli aðila síðustu vikur. Samningaviðræðum var slitið í dag og nýr fundur ekki í sjónmáli. 20.5.2020 16:49
„Miklu, miklu hraðar“ létt á aðgerðum hér Þórólfur Gunason sóttvarnalæknir segist hafa áhyggjur af því að landsmenn passi minna upp á sýkingarvarnir, svo sem handþvott og spritt, nú en þegar kórónuveirufaraldurinn var í miklum vexti. Víðir Reynisson segir að skipuleggjendur stórra viðburða í sumar verði að átta sig á ástandinu sem sé í gangi. 20.5.2020 15:43
Svona var 71. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14 í dag. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi. 20.5.2020 13:15
Öllum Covid-19 höftum aflétt í fangelsum landsins Fangelsismálastofnun hefur ákveðið að aflétta öllum höftum vegna Covid-19 er gilt hafa í fangelsum landsins frá því er neyðarstigi var lýst yfir. Taka aðgerðirnar gildi mánudaginn 25. maí. 20.5.2020 12:32
Landsliðskonur ósáttar vegna ummæla um laun Önnu Bjarkar Landsliðskonum í knattspyrnu og fleirum er verulega brugðið vegna ummæla sem féllu í hlaðvarpsþætti á mánudaginn. Þar kom fram sú skoðun að Anna Björk Kristjánsdóttir, sem samdi við Selfoss um helgina, væri á hærri launum en konur ættu skilið að fá. 20.5.2020 11:50
Bein útsending: Aðgerðir fyrir nýsköpun og vísindi „Út úr kófinu: vísindi, nýsköpun og áskoranir framtíðarinnar“ er yfirskrift blaðamannafundar sem forsætisráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra boða til í dag. 20.5.2020 11:15
Tveggja ára tvinnbíll fuðraði upp Tveggja ára gamall tvinnbíll fuðraði upp á Svínvetningabraut suðaustan af Blönduósi á sunnudag. Enginn slasaðist en bóndi sem varð vitni að brunanum segir hafa verið skuggalegt að sjá hve skammur tími leið frá því eldur kviknaði þar til bíllinn var að engu orðinn. 19.5.2020 16:28
Þingmanni blöskrar „sumargjöfin“ til Samherjabarnanna Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar og formaður atvinnuveganefndar, segir að koma verði í veg fyrir að milljarðar króna sem byggist á auðlindum þjóðarinnar renni á milli kynslóða hjá stórum útgerðarfélögum. 19.5.2020 15:46