Heróínsmyglari kannaðist ekkert við fimmtán ára vinskap Michal Okapiec, þrítugur karlmaður búsettur í Reykjanesbæ, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi, að mestu skilorðsbundið, fyrir smygl á fíkniefnum og lyfjum, brot á vopnalögum og peningaþvætti. Félagi hans sem lögregla telur að hafi verið burðardýr í smyglinu fékk nýlega sex mánaða dóm fyrir sinn þátt. 12.2.2021 11:44
Ævintýrakríli Elísabetar og Páls flýtti sér í heiminn Ultra maraþon hlauparinn og næringarfræðingurinn Elísabet Margeirsdóttir og útivistarkappinn Páll Ólafsson eignuðust á dögunum son. Elísabet greinir frá því á Facebook að litli prinsinn hafi komið í heiminn þann 9. febrúar, tveimur vikum fyrir settan dag. 12.2.2021 10:41
Ung hjón 21 milljón ríkari Ung hjón með eitt barn og annað í leiðinni duttu eru 21 milljón króna ríkari eftir útdráttinn síðustu helgi. Þau unnu óskiptan tvöfaldan fyrsta vinning. 12.2.2021 10:30
Ítalía auglýst til sölu Rekstur Veitingahússins Ítalíu hefur verið auglýstur til sölu. Um er að ræða einn rótgrónasta veitingastað landsins. Á Fasteignavef Vísis kemur fram að eftir þrjátíu ára farsælan rekstur hafi þeir Tino og Fabio ákveðið að rétta nýjum aðilum keflið. 12.2.2021 10:11
Þjóðarleikvangur rafíþrótta á Íslandi verður að veruleika Í sumar opnar nýr þjóðarleikvangur rafíþrótta á Íslandi undir heitinu Arena, í Turninum í Kópavogi. Staðurinn mun bjóða upp á aðstöðu í heimsklassa fyrir tölvuleikjaspilun, hvort sem er fyrir áhugafólk eða atvinnumenn í rafíþróttum - og allt þar á milli. 12.2.2021 10:00
Bein útsending: Fjárfestingar Reykjavíkur og fyrirtækja borgarinnar Kynningarfundur um Græna planið og fjárfestingu Reykjavíkur og fyrirtækja borgarinnar fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgunsárið. Fundurinn hefst klukkan 9 og er gert ráð fyrir að hann standi í hálfa aðra klukkustund. Fundinum er streymt hér að neðan. 12.2.2021 08:31
Lætur ekki undan þrýstingi en ætlar sér formennsku Helgi Pétursson, tónlistarmaður og einn forsvígsmanna Gráa hersins, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formennsku í Landssambandi eldri borgara. Hann segir engan hafa skorað á sig að gefa kost á sér til formennsku. 11.2.2021 16:55
Guðrún nýr formaður Félags atvinnurekenda Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, var kjörin formaður Félags atvinnurekenda á aðalfundi félagsins í dag. Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innness, lét af formennsku eftir fjögur ár í stóli formanns. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FA. 11.2.2021 16:40
Margir hringdu sig inn veika eftir seinni sprautuna Lögreglu-, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á höfuðborgarsvæðinu bera sig margir hverjir illa í dag. Margir hafa tilkynnt sig veika í dag og aðrir eru lumbrulegir á vaktinni. Ástæðan er viðbrögð við seinni bólusetningusprautunni sem fyrrnefndir hópar fengu í Laugardalshöll í gær. 11.2.2021 15:55
Óvenjuleg byrjun á fundinum í tilefni dagsins Dagur íslenska táknmálsins er haldinn hátíðlegur í níunda sinn í dag þann 11. febrúar. Af því tilefni hófu þeir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir reglubundinn upplýsingafund vegna kórónuveirunnar á því að heilsa landsmönnum á táknmáli og bjóða góðan daginn. 11.2.2021 12:03