Þrisvar sinnum fleiri látist af Covid-19 en tilkynnt var um Tæplega fimmtán milljón manns hafa látið lífið vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Þetta er niðurstaða Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) sem birti skýrslu sína í dag. 5.5.2022 12:25
Meirihluti brotaþola í kynferðisbrotamálum eru börn Innleiða á sérstakt áhættumat til að tryggja betur öryggi barna gegn kynferðisbrotum fullorðinna. Rannsakendur kynferðisbrota og ákærendur innan lögreglunnar sitja tveggja daga vinnustofu um áhættumat í kynferðisbrotamálum gegn börnum til að undirbúa þróun forvarnaviðbragða og forgangsröðunar mála. 5.5.2022 10:39
Fanney úr bakvinnslunni í þjónustustjórann hjá Póstinum Fanney Bergrós Pétursdóttir hefur verið ráðin í starf þjónustustjóra í þjónustuveri Póstsins. Þjónustuver Póstsins er staðsett á Akureyri en þar starfaði Fanney áður sem bakvinnslufulltrúi. 5.5.2022 10:29
Strætó þarf að greiða Teiti Jónassyni hundruð milljóna í bætur Strætó þarf að greiða hópbifreiðafyrirtækinu Teiti Jónassyni 205 milljónir króna auk vaxta í skaðabætur vegna þess útboðs á akstri á fimmtán leiðum á höfuðborgarsvæðinu árið 2010. 4.5.2022 16:48
Mosfellsbær þarf að greiða fatlaðri manneskju miskabætur Mosfellsbær þarf að greiða fatlaðri manneskju í sveitarfélaginu 700 þúsund krónur í miskabætur. 4.5.2022 15:54
Hjólað í vinnuna í tuttugasta skiptið Hjólað í vinnuna var sett í tuttugasta sinn í morgun. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) stendur fyrir verkefninu sem tekur þrjár vikur. 4.5.2022 14:51
Ákærður fyrir brot gegn eiginkonu og þremur börnum Karlmaður á Vestfjörðum hefur verið ákærður fyrir ofbeldi gegn eiginkonu og þremur börnum frá árinu 2014 og þar til sambandi þeirra lauk árið 2021. Málið er til meðferðar hjá Héraðsdómi Vestfjarða en þinghald í málinu er lokað. 4.5.2022 14:28
Íslensk dagskrá í Tívolí þann 17. júní Þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní verður í ár hluti af hátíðardagskrá Tívolís í Kaupmannahöfn sem gengur undir nafninu Tivoli Celebrates. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsstofu. 4.5.2022 12:21
Tölvuleikjaspilarar flykkjast til Íslands EVA Fanfest hátíð tölvuleikjafyrirtækisins CCP fer fram í Laugardalshöll um helgina og koma rúmlega þúsund keppendur erlendis frá til þátttöku. Auk almennra hátíðargesta er á þriðja tug blaðamanna væntanleg til landsins vegna hátíðarinnar, auk ýmissa samstarfsaðila CCP úr tölvuleikja-, nýsköpunar- og tæknigeiranum. 4.5.2022 12:07
Staðfest að um hið skæða afbrigði fuglaflensu er að ræða Fuglaflensuveirur sem greinst hafa að undanförnu hér á landi eru af hinu skæða afbrigði H5N1 sem geisar í nágrannalöndunum um þessar mundir. 3.5.2022 16:54