Er rauða flóðbylgjan að verða að smá skvettu? Svo virðist sem að sú „rauða flóðbylgja“ sem spáð hefur verið að skelli á Bandaríkjunum í þingkosningunum í nóvember, ætli ekki að raungerast. Undanfarna mánuði hafa Repúblikanar virst í góðri stöðu til að ná völdum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og mögulega öldungadeildinni einnig. Erlent 24. ágúst 2022 22:31
Fundu sjö hundruð blaðsíður með leynilegum gögnum í fyrstu sendingunni frá Trump Starfsmenn Þjóðskjalasafns Bandaríkjanna fundu meira en sjö hundruð blaðsíður með leynilegum upplýsingum meðal þeirra gagna sem Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, tók með sér til Flórída þegar hann flutti úr Hvíta húsinu í janúar 2021. Þar á meðal voru upplýsingar um einhverjar leynilegust aðgerðir leyniþjónusta Bandaríkjanna. Erlent 23. ágúst 2022 22:01
Trump vill að þriðji aðili fari yfir gögnin úr húsleitinni Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur höfðað mál vegna húsleitarinnar í Mar-a-Lago, sveitarklúbbinum í Flórída þar sem Trump býr. Hann vill að utanaðkomandi aðili verði fenginn til að fara yfir gögn sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) lögðu hald á í húsleitinni. Erlent 22. ágúst 2022 23:36
Tangarhald Trumps á flokknum aldrei þéttara Ef það er einn lærdómur sem draga má af úrslitum í forvali Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum á undanförnum dögum, er það að Donald Trump ræður þar ríkjum. Honum er að takast að bola öllum helstu andstæðingum úr flokknum. Frambjóðendur flokksins til áhrifamikilla embætta víðs vegar um Bandaríkin hafa tekið undir lygar Trumps um að kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020. Erlent 19. ágúst 2022 08:01
Hálfur sigur fjölmiðla í deilu um eldfimar upplýsingar um húsleitina sögulegu Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur skipað Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, að koma með tillögu að útstrikunum svo opinbera megi eiðsvarna yfirlýsingu sem lögreglan nýtti til að réttlæta húsleit í húsnæði Donald Trump á dögunum. Erlent 18. ágúst 2022 23:16
Fjármálastjóri Trumps játar skattsvik Allen Weisselberg, fjármálastjóri fyrirtækis Donalds Trump til áratuga, hefur játað að hafa svikið undan skatti. Það gerði hann vegna samkomulags við saksóknara í New York en samkomulagið felur meðal annars í sér að hann mun mögulega bera vitni í máli saksóknaranna gegn fyrirtækinu, sem heitir Trump Organization. Erlent 18. ágúst 2022 15:58
Ætlar sér að stöðva Trump hvað sem það kostar Fulltrúadeildarþingmaðurinn Liz Cheney hefur heitið því að nýta næstu tvö ár í að gera allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir að Donald Trump snúi aftur í Hvíta húsið. Hún útilokar ekki forsetaframboð í forsetakosningunum eftir tvö ár. Erlent 17. ágúst 2022 22:01
Liz Cheney hafnað af Repúblikönum í Wyoming Bandarísku þingkonunni Liz Cheney var hafnað í forkosningum Repúblikana í Wyoming í gær vegna þingkosninganna sem fram fara í Bandaríkjunum í nóvember. Cheney, sem hefur átt sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings frá 2017, hefur verið einn helsti andstæðingur Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, innan Repúblikanaflokksins. Erlent 17. ágúst 2022 07:40
Hægrisinnaðir fá sitt eigið stefnumótaforrit Hægrisinnaðir Bandaríkjamenn geta í september skráð sig á stefnumótaforrit sem er einungis fyrir hægrisinnaða einstaklinga en forritið heitir, „The Right Stuff.“ Hægrisinnaði milljarðamæringurinn Peter Thiel fjárfesti í forritinu fyrir eina og hálfa milljón dollara en Thiel er sjálfur samkynhneigður. Erlent 16. ágúst 2022 17:09
Giuliani með stöðu grunaðs manns Rudolph W. Giuliani, fyrrverandi lögmaður Donalds Trump og fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur verið tilkynnt að hann hafi stöðu grunaðs manns í rannsókn yfirvalda í Georgíu á afskiptum Trumps og bandamanna hans af forsetakosningunum árið 2020. Erlent 16. ágúst 2022 14:59
Leitarheimildin byggði á grun um brot á njósnalögum Meðal þeirra leynilegu gagna sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna fjarlægðu úr sveitarklúbbi og heimili Donalds Trump, fyrrverandi forseta, í Flórída voru gögn sem höfðu hlotið einhverjar af hæstu leyndarskilgreiningum bandarískra stjórnvalda. Erlent 13. ágúst 2022 08:19
Gögnin innihéldu upplýsingar um forseta Frakklands Alls voru tuttugu kassar sem innihéldu meðal annars ljósmyndir, leynileg gögn og bréf, fjarlægð af heimili Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta á mánudaginn. Ekki er ljóst á hverju húsleitarheimild alríkislögreglunnar var byggð en von er á að heimildin verði birt í kvöld. Erlent 12. ágúst 2022 20:39
Voru að leita að trúnaðargögnum um kjarnorkuvopn Fulltrúar Bandarísku alríkislögreglunnar FBI sem gerðu húsleit á heimili Donald Trump í Mar a Lago í Flórída voru meðal annars að leita að trúnaðargögnum er vörðuðu kjarnorkuvopn. Þetta herma heimildir Washington Post. Erlent 12. ágúst 2022 07:52
Viðbrögðin sýna tangarhald Trumps á Repúblikanaflokknum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gæti mögulega verið fundinn sekur um brot á lögum sem hann sjálfur þyngdi refsinguna við töluvert. Það er að segja ef hann braut lög með því að flytja opinber gögn, og þar á meðal leynilegt gögn, með sér til Flórída þegar hann flutti úr Hvíta húsinu. Trump er sagður vera að leita sér að lögmönnum til að mögulega verja sig. Erlent 11. ágúst 2022 14:30
Reyndi að ráða þjóðaröryggisráðgjafa Trumps af dögum Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákært íranskan hermann fyrir ráðabrugg um að að ráða John Bolton, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna af dögum. Talið er að morðið hafi átt að vera hefndaraðgerð eftir að Bandaríkjamenn felldu íranskan herforingja í loftárás í Írak. Erlent 10. ágúst 2022 15:59
Neitaði að svara spurningunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, neitaði að svara spurningum rannsakenda ríkissaksóknara New York við vitnaleiðslur í dag. Til þess nýtti hann rétt Bandaríkjamanna til þess að sakbenda sjálft sig ekki. Erlent 10. ágúst 2022 14:39
Trump ber vitni í New York Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, mun bera vitni í í New York í dag. Umræddur vitnisburður er ótengdur húsleit sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna húsleit gerðu á heimili hans í Flórída á mánudaginn og snýr að því hvernig Trump hefur verðmetið eignir sínar í New York í gegnum árin. Erlent 10. ágúst 2022 10:50
Trump-liðar kvarta undan „vopnvæðingu“ dómsmálaráðuneytisins Rannsakendur Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) gerðu í gær húsleit í Mar-a-Lago sveitaklúbbinum í Flórída en Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, býr þar. Fjölmiðlar vestanhafs segja útlit fyrir að atlagan, sem stóð yfir frá morgni til kvölds í gær, tengist meðhöndlun Trumps og starfsmanna hans á opinberum og leynilegum gögnum. Erlent 9. ágúst 2022 10:29
Alríkislögreglan gerði húsleit heima hjá Trump Donald Trump sagði í yfirlýsingu í dag að Alríkislögregla Bandaríkjanna hefði gert árás á heimili hans í Mar-a-Lago í Palm Beach í Flórída og tekið það yfir. Hann segir húsleitina hluta af árásum „róttækra vinstri Demókrata“ sem vilji ekki að hann bjóði sig aftur fram til forseta árið 2024. Erlent 8. ágúst 2022 23:56
Vildi herforingja eins og Hitler Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa spurt aðstoðarmann sinn af hverju herforingjar hans gætu ekki verið eins og herforingjar Adolfs Hitler. Þeir hefðu verið algjörlega hliðhollir Hitler og gert það sem hann sagði þeim að gera. Erlent 8. ágúst 2022 15:03
Trump hæstánægður með LIV-mótaröðina og vini sína í Sádí-Arabíu Ekki eru allir par hrifnir af sádí-arabísku LIV-mótaröðinni í golfi. Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er ekki í þeim hópi. Golf 29. júlí 2022 15:01
Dómsmálaráðuneytið rannsakar aðild Trumps að áhlaupinu á þinghúsið Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur til rannsóknar aðild Donalds Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta að tilraunum til að snúa við niðurstöðu forsetakosninganna þar í landi árið 2020. Alríkissaksóknarar eru sagðir hafa spurt vitni beint út í hegðun forsetans fyrrverandi í tengslum við málið. Erlent 27. júlí 2022 15:40
Bannon sekur um vanvirðingu gegn þinginu Steve Bannon, fyrrverandi aðstoðarmaður Donald Trump, hefur verið dæmdur sekur um vanvirðingu gegn bandaríska þinginu. Hann gæti þurft að sitja í fangelsi í allt að tvö ár. Erlent 22. júlí 2022 19:09
Vitnisburður staðfesti aðgerðarleysi Trump Seinustu réttarhöld vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna í Washington D.C. þangað til í september voru haldin í gær. Þingnefndin nýtti réttarhöldin til þess að sýna fram á aðgerðarleysi Trump þegar það kom að árás stuðningsfólks hans á þinghúsið. Einblínt var á þær 187 mínútur sem liðu milli þess að Trump hvatti stuðningsfólk sitt til að ráðast að þinghúsinu og þegar hann sagði þeim að fara heim. Erlent 22. júlí 2022 11:40
Ivana Trump er látin Ivana Trump, fyrrverandi eiginkona Donald Trump, er látin, 73 ára að aldri. Með Donald eignaðist hún þrjú börn, þau Donald yngri, Ivanka og Eric. Erlent 14. júlí 2022 19:55
BNA klofin þjóð og ótryggur bandamaður Árásarstríð Pútíns á Úkraínumenn hefur vakið upp spurninguna um varnir og öryggi annarra Evrópu-landa, líka þá auðvitað okkar Íslendinga. Skoðun 13. júlí 2022 08:00
Fleiri Repúblikanar ósáttir við Trump Stór hluti kjósenda Repúblikanaflokksins segist tilbúinn til að snúa bakinu við Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Hann er sagður íhuga að bjóða sig aftur fram til embættis forseta Bandaríkjanna í kosningunum 2024 en staða hans innan Repúblikanaflokksins hefur versnað að undanförnu. Erlent 12. júlí 2022 14:15
Stefna bandamönnum Trumps vegna sakamálarannsóknar í Georgíu Nokkrum af ráðgjöfum og bandamönnum Donalds Trump hefur verið stefnt vegna sakamálarannsóknar sem stendur nú yfir í Georgíuríki vegna viðleitni Trumps við að breyta úrslitum forsetakosninganna 2020. Meðal þeirra sem búið er að stefna eru Rudy Giuliani, fyrrverandi einkalögmaður Trumps, og Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður. Erlent 5. júlí 2022 22:15
Trump hótaði Svíþjóð viðskiptastríði vegna rappara Donald Trump hótaði Svíum viðskiptastríði vegna fangelsunar bandaríska rapparans A$AP Rocky árið 2019 segir Morgan Johansson, dómsmálaráðherra Svía, í viðtali við Dagens Nyheter. Erlent 2. júlí 2022 15:13
Helmingur vill ákæra Trump fyrir aðkomu hans að óeirðunum í þinghúsinu Um helmingur Bandaríkjamanna er á þeirri skoðun að ákæra eigi Donald Trump fyrrverandi forseta fyrir aðild hans að óeirðunum í bandaríska þinghúsinu 6. janúar í fyrra. Þetta eru niðurstöður könnunar sem AP fréttaveitan lét framkvæma. Erlent 30. júní 2022 07:08