Settu met á Myspace Nýjasta plata Guns N"Roses, Chinese Democracy, er orðin vinsælasta platan í sögu Myspace-síðunnar. Sveitin leyfði aðdáendum sínum að hlusta ókeypis á plötuna á síðunni á fimmtudag og voru viðbrögðin framúrskarandi. Þegar mest lét var platan spiluð 25 sinnum á sekúndu sem er vitaskuld mjög góður árangur. Tónlist 24. nóvember 2008 04:00
Red Hot besta sveitin Bandaríski rapparinn Kanye West segir að The Red Hot Chili Peppers sé uppáhaldshljómsveitin sín. Hann segir að góðar melódíur sveitarinnar hafi fyrst og fremst heillað sig. Tónlist 24. nóvember 2008 04:00
Dylan og Megas eru áhrifavaldar Tónlistarmaðurinn Sverrir Norland játar að meistararnir Bob Dylan og Megas séu báðir á meðal áhrifavalda á hans fyrstu plötu sem er nýkomin út. Tónlist 23. nóvember 2008 06:00
Upptökur á næstu plötu Gusgus hafnar Hljómsveitin Gusgus hefur hafið upptökur á sinni sjöttu plötu í Tankinum við Önundarfjörð. Sveitin dvelur í hljóðverinu í níu daga og er áætlaður útgáfudagur í byrjun næsta árs. Tónlist 22. nóvember 2008 04:30
Hjaltalín hita upp fyrir Cold War Kids Hjaltalín er leiðinni í tónleikaferð um Evrópu með bandarísku sveitinni Cold War Kids. Um vikulangan túr er að ræða sem hefst í Tórínó á Ítalíu á laugardagskvöld. Tónlist 21. nóvember 2008 07:00
Fólk sýni baráttuanda Mammút, Agent Fresco og fleiri hljómsveitir koma fram á tónleikum í Vetrargarðinum í Smáralind á laugardaginn. Tildrög tónleikanna eru þau að tónlistarmaðurinn Ká Eff Bé, Kristinn F. Birgisson, samdi lag til kærustu sinnar sem hefur glímt við heilakrabbamein síðastliðin fimm ár. Tónlist 21. nóvember 2008 06:00
Coldplay að hætta? Chris Martin, söngvari hljómsveitarinnar Coldplay, vill ekki verða gömul rokkstjarna. Söngvaranum, sem er 31 árs í dag, finnst ekki að hljómsveitir eigi að halda áfram eftir að meðlimir þeirra verða 33 ára. Tónlist 20. nóvember 2008 07:00
Ókeypis rafmúsik „Við höfum haldið mánaðarleg tónleikakvöld undir nafninu Weirdcore þar sem við höfum safnað saman þeim sem eru að gera eitthvað að viti í rafmúsík," segir Sveinbjörn Þorgrímsson, Biogen. Tónlist 20. nóvember 2008 06:00
Heildin skiptir höfuðmáli Þriðja sólóplata Beatmakin Troopa, Search For Peace, er komin út. Hljómsveitin er hugarfóstur Pans Thorarensen sem gaf á síðasta ári út plötuna Parallel Island með föður sínum Óskari. Tónlist 20. nóvember 2008 06:00
Óútgefið verk eftir The Beatles Fjórtán mínútna spunaverk sem Bítlarnir tóku upp við hljóðritun á Penny Lane í janúar 1967 undir stjórn Pauls McCartney veldur nokkrum deilum um þessar mundir í Bretlandi. Paul vill endilega að tilraunaverkið, sem ber heitið Carnival of light, verði gefið út, en það er frjáls spuni unninn áfram með aðferðum raftónskálda. Tónlist 20. nóvember 2008 04:45
Dikta fær aðstoð frá Svíþjóð Rokkararnir í Diktu eru að ljúka upptökum á nýju lagi, Let Go, sem fer líklega í spilun í byrjun desember. Fylgir það eftir vinsældum, Just Getting Started, sem kom út í sumar og fór á toppinn bæði hjá Rás 2 og X-inu. Svínn Jens Bogren mun hljóðblanda og leggja lokahönd á laginu en hann var upptökustjóri nýjustu plötu sænsku þungarokkssveitarinnar Opeth sem hefur getið sér gott orð að undanförnu. Tónlist 20. nóvember 2008 04:30
Afmælisbörn hætta við túr Rokkararnir í Brain Police, sem halda upp á tíu ára afmælið sitt á næstunni, hafa hætt við þriggja vikna tónleikaferð um Evrópu sem átti að standa yfir í nóvember og desember. Ástæðan er hrap íslensku krónunnar. Tónlist 20. nóvember 2008 04:00
Tveggja milljarða plata Axl Rose kemur loks út Á mánudaginn kemur nýja platan með Guns N‘ Roses, eða öllu heldur Axl Rose, loksins út. Platan Chinese Democracy er margboðuð, en nú virðist ekkert geta stöðvað útgáfu hennar nema ef til vill heimsendir. Tónlist 20. nóvember 2008 03:45
Hafdís Huld í breyttri útgáfu Bretinn Simon Latham hefur endurhljóðblandað lag Hafdísar Huldar, Tomoko, og verður það gefið út á Tónlist.is næstkomandi mánudag. Lagið verður gefið út erlendis í byrjun næsta árs. Tónlist 19. nóvember 2008 06:00
Battle of the Bands að hefjast Undankeppni alþjóðlegu hljómsveitakeppninnar Global Battle of the Bands fer fram í Hafnarfirði 18. til 22. nóvember. Sigursveitin tryggir sér þátttökurétt í úrslitakeppninni sem verður haldin á tónleikastaðnum Scala í hjarta Lundúna, Englandi 14. og 15. desember. Tónlist 17. nóvember 2008 03:00
Zeppelin-dúett breytir um nafn Led Zeppelin-goðsagnirnar Jimmy Page og John Paul Jones hafa ákveðið að halda í tónleikaferð um heiminn ásamt syni trommarans Johns Bonham, Jason. Robert Plant verður hins vegar víðs fjarri og því stendur ekki til að notast við nafnið Led Zeppelin. „Án Plants kemur ekki til greina að notast við nafnið. Zeppelin er ekki til án hans,“ segir talsmaður hinnar nýskipuðu sveitar. Leit stendur nú yfir að eftirmanni hans. Tónlist 17. nóvember 2008 03:00
Steed Lord í kvikmyndahúsi Stalíns Hljómsveit Svölu Björgvins og Einars Egilssonar, Steed Lord, kom fram á skemmtistaðnum Gradus í Moskvu í gærkvöldi. Staðurinn var áður einkakvikmyndahús Jósefs Stalín, einræðisherra Sovétríkjanna, en er nú einn vinsælasti skemmtistaður höfuðborgarinnar meðal hinna nýríku ólígarka. Ásamt Steed Lord steig Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi í Mínus, á stokk með sveitinni og tók með henni tvö eða þrjú lög. Tónlist 16. nóvember 2008 04:00
Þjóðverjar veita hjálparhönd Þýska fyrirtækið A Number of Small Things, sem selur plötur á heimasíðunni anost.net, ætlar að koma Íslendingum til bjargar með því að selja í tonnatali plötur frá íslenska útgáfufyrirtækinu Kimi Records. Tónlist 14. nóvember 2008 09:00
Sprengjuhöllin fagnaði í Óperunni Sprengjuhöllin hélt útgáfutónleika í Íslensku óperunni á þriðjudagskvöld til að fagna útkomu sinnar annarrar plötu, Bestu kveðjur. Hljómsveitin spilaði lög af nýju plötunni í bland við eldra efni við mjög góðar undirtektir. Kynnir kvöldsins var Árni Vilhjálmsson, söngvari í FM Belfast, og sá hljómsveitin Motion Boys um upphitun. Tónlist 14. nóvember 2008 07:00
Jóhann fær góða dóma Tónskáldið Jóhann Jóhannsson fær 6,7 í einkunn af tíu mögulegum á bandarísku tónlistarsíðunni Pitchforkmedia.com fyrir sína nýjustu plötu, Fordlândia. Tónlist 14. nóvember 2008 06:00
Marco V á árshátíð Hollenski plötusnúðurinn Marco V spilar á árshátíð Techno.is sem verður haldin á Nasa á laugardaginn. Einnig koma fram þetta kvöld vinsælir íslenskir plötusnúðar. Tónlist 13. nóvember 2008 06:00
Árituðu ólöglegar plötur Hljómsveitin Mezzoforte er nýkomin heim frá Minsk í Hvíta-Rússlandi þar sem hún spilaði í fyrsta sinn á ferli sínum. Tónleikahöllin í borginni tekur tvö þúsund manns í sæti og var fullt út úr dyrum. Tónlist 13. nóvember 2008 03:15
Íslenskar á by:Larm Hljómsveitirnar Hjaltalín og Retro Stefson spila á norsku tónlistarhátíðinni by:Larm sem verður haldin í Ósló í ellefta sinn í febrúar á næsta ári. Tónlist 12. nóvember 2008 06:00
Samstarf við Nova Scotia Fulltrúar frá Nova Scotia-fylki í Kanada sýndu mikinn áhuga á samstarfi við Ísland á tónlistarráðstefnunni Nova Scotia Music Week sem var haldin í Glasgow í Skotlandi á dögunum. Tónlist 12. nóvember 2008 06:00
Ágætt að vera Íslendingur „Þeim finnst voða spennandi að ég sé Íslendingur. Eins vont og það er að vera Íslendingur dag þá getur það verið ágætt líka,“ segir Akureyringurinn Rúnar F. Rúnarsson, eða Rúnar eff, sem tekur þátt í danska raunveruleikaþættinum All Stars. Tónlist 11. nóvember 2008 06:00
Kynna sína nýjustu plötu Sprengjuhöllin heldur útgáfutónleika í Íslensku óperunni í kvöld til að fagna annarri plötu sinni, Bestu kveðjur. Hljómsveitin mun leika lög af nýju plötunni í bland við eldra efni. Fjöldi aukahljóðfæraleikarar mun einnig stíga á stokk. Tónlist 11. nóvember 2008 06:00
Erlendir nafnar Lay Low Lay Low er án efa einn vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag, auk þess sem erlendir útgefendur slást um krafta hennar. Hún er þó ekki sú eina sem ber þetta sérstæða listamannsnafn því hún á sér að minnsta kosti fjóra nafna úr tónlistarbransaum vestanhafs. Tónlist 10. nóvember 2008 06:00
Aðdáendur upp á svið Rivers Cuomo, forsprakki hljómsveitarinnar Weezer, ætlar að bjóða aðdáendum sínum upp á svið með sér á tónleikum í Kaliforníu 25. nóvember. Cuomo er að kynna sína nýjustu sólóplötu, Alone II, og vill með þessu vekja enn meiri athygli á gripnum. Tónlist 10. nóvember 2008 02:00
Leika á Rosenberg Hljómsveitin Thin Jim and the Castaways heldur tónleika á Café Rosenberg við Klapparstíg á miðvikudagskvöld kl. 21. Tónlist 9. nóvember 2008 03:00