Brynjar Þór samdi við KR Brynjar Þór Björnsson, lykilmaður í Íslandsmeistaraliði KR, gerði í gær nýjan tveggja ára samning við félagið. Það er þó með þeim fyrirvara að hann fari mögulega erlendis en hann er að þreifa fyrir sér þar. Körfubolti 27. maí 2011 06:00
Ætlum okkur titilinn "Við ætlum okkur titilinn og ekkert kjaftæði,“ sagði ákveðinn formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, Magnús Andri Hjaltason, en félagið gekk í gær frá samningum við þá Sigurð Þorsteinsson og Jóhann Árna Ólafsson. Körfubolti 26. maí 2011 06:30
Sigurður Gunnar og Jóhann Árni í Grindavík Grindvíkingar eru að fá stóran liðstyrk í körfunni því samkvæmt heimildum Víkurfrétta þá munu þeir Sigurður Gunnar Þorsteinsson og Jóhann Árni Ólafsson skrifa undir samning við Grindavík í kvöld. Sigurður Gunnar kemur frá Keflavík en Jóhann Árni frá Njarðvík. Körfubolti 25. maí 2011 16:37
Guðmundur fer frá Njarðvík til Þorlákshafnar Guðmundur Jónsson, bakvörður Njarðvíkinga, hefur ákveðið að yfirgefa Njarðvíkurliðið og spila með nýliðum Þórs úr Þorlákshöfn í Iceland Express deild karla í körfubolta á næsta tímabili. Þetta kom fram á karfan.is. Körfubolti 23. maí 2011 09:15
Fyrirliðarnir áfram hjá Snæfelli næsta vetur Pálmi Freyr Sigurgeirsson og Alda Leif Jónsdóttir, fyrirliðar meistaraflokka Snæfells í Iceland Express deildunum í körfubolta, skrifuðu í kvöld undir nýjan samning við Snæfellsliðið. Körfubolti 19. maí 2011 20:26
Valur Orri samdi við Keflavík - 12 leikmenn sömdu við liðið Karlalið Keflavíkur í körfubolta fékk liðsstyrk í gær þegar Valur Orri Valsson samdi við félagið en hinn 17 ára gamli leikstjórnandi er einn efnilegasti leikmaður landsins. Körfubolti 16. maí 2011 12:30
Ægir og Tómas fara í sama skóla í Bandaríkjunum Fjölnisstrákarnir Ægir Þór Steinarsson og Tómas Heiðar Tómasson hafa ákveðið að fara í sama háskóla í Bandaríkjunum næstu fjögur árin en þeir hafa samþykkt að spila með Newsberry college í Norður-Karólínu sem er í 2. deild bandaríska háskólaboltans. Körfubolti 16. maí 2011 11:00
Keflvíkingar missa besta miðherja deildarinnar Keflvíkingar tilkynntu það á heimasíðu sinni í dag að ísfirski miðherjinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson muni ekki endurnýja samning sinn við félagið. Sigurður Gunnar hefur verið í stóru hlutverki hjá Keflvíkingum undanfarin fimm ár og var á dögunum valinn í úrvalslið ársins í annað skiptið á þremur árum. Körfubolti 10. maí 2011 13:00
Teitur verður áfram með Stjörnuliðið - samdi til 2013 Teitur Örlygsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna um tvö ár og verður því áfram við stjórnvölinn í Garðabænum. Þetta kemur fram á heimasíðu Stjörnunnar.Teitur hefur þjálfað Stjörnuna síðan í ársloks 2008 og hefur síðan þá komið liðinu í hóp bestu liða deildarinnar. Körfubolti 4. maí 2011 10:45
Pavel og Margrét Kara valin best KR-ingarnir Pavel Ermolinskij og Margrét Kara Sturludóttir voru í gærkvöldi valin bestu leikmenn Iceland Express-deildanna í körfubolta á lokahófi KKÍ sem haldið var á Broadway. Körfubolti 1. maí 2011 11:32
Ingi Þór búinn að semja við Snæfell til ársins 2014 Ingi Þór Steinþórsson framlengdi í gær samning sinn við Snæfell um tvö ár og mun því þjálfa karla- og kvennalið félagsins til ársins 2014. Ingi Þór var að klára sitt annað tímabil í Hólminum en hann gerði karlaliðið að tvöföldum meisturum á sínu fyrsta ári og í vetur vann liðið Lengjubikarinn og Meistarakeppnina. Körfubolti 30. apríl 2011 09:00
Sigurður tekur við Keflavíkurliðinu Sigurður Ingimundarson hefur gert tveggja ára samning við Keflavík um að taka við karlaliði félagsins. Sigurður var látinn fara frá Njarðvík á miðjutímabili en snýr nú aftur á heimaslóðirnar. Þetta kemur fram á Víkurfréttum. Körfubolti 29. apríl 2011 15:54
Einar Árni og Friðrik verða áfram með Njarðvík Njarðvík tilkynnti í dag að þeir Einar Árni Jóhannsson og Friðrik Ragnarsson myndu stýra körfuboltaliði félagsins næstu þrjú árin. Körfubolti 26. apríl 2011 14:00
Marcus tók stigametið af Damon Marcus Walker verður örugglega á milli tannanna hjá íslensku körfuboltafólki um ókomna tíð eftir magnaða frammistöðu sína í úrslitakeppninni. Þegar menn fóru að skoða sögubækurnar betur kom líka í ljós að spilamennska þessa eldfljóta og stórskemmtilega bakvarðar væri einstök í 28 ára sögu úrslitakeppninnar. Körfubolti 21. apríl 2011 07:00
KR átti fjóra bestu leikmenn úrslitaeinvígisins Fjórir KR-ingar voru efstir á listanum yfir hæsta framlagið í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla sem lauk með öruggum sigri KR-inga í fjórða leiknum í Garðabænum í gær. KR vann einvígið 3-1. Körfubolti 20. apríl 2011 16:45
Vinna bara á oddaárunum eins og San Antonio Spurs KR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í gær með því að vinna fjórða leikinn í úrslitaeinvígi sínu á móti Stjörnunni. Þetta er í þriðja sinn frá og með árinu 2007 sem Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, lyfti Íslandsbikarnum glæsilega en líkt og hjá NBA-liðinu San Antonio Spurs þá hafa KR-ingar bara unnið titilinn á oddaárum síðan að Fannar kom í Vesturbæinn. Körfubolti 20. apríl 2011 16:00
Hrafn og Fannar fetuðu í fótspor Gunnars og Einars Bolla Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, og Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, fetuðu í gærkvöldi í fótspor Gunnars Gunnarssonar og Einars Bollasonar þegar KR-ingar urðu Íslandsmeistarar. Þetta er nefnilega í fyrsta sinn í 32 ár sem KR vinnur tvöfalt í karlakörfunni, það er verður Íslandsmeistari og bikarmeistari á sama tímabilinu. Körfubolti 20. apríl 2011 14:15
KR Íslandsmeistari 2011 - myndir Það var glatt á hjalla hjá KR-ingum í Ásgarði í gær en þá varð körfuboltalið félagsins Íslandsmeistari eftir afar sannfærandi sigur á Stjörnunni. KR vann einvígi liðanna, 3-1. Körfubolti 20. apríl 2011 08:00
Finnur: Það var komin tími á mig „Þetta er yndisleg tilfinning, ég er búin að horfa á bræður mína báða taka þennan titil, en núna var komið að mér,“ sagði Finnur Atli Magnússon, leikmaður KR, eftir leikinn í kvöld. KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn gegn Stjörnunni í Ásgarði í kvöld eftir að hafa unnið einvígið 3-1. Körfubolti 19. apríl 2011 23:12
Marcus: Frábært að spila fyrir framan þetta fólk „Ég get ekki útskýrt hvernig mér líður,“ sagði Marcus Walker, leikmaður KR, eftir sigurinn gegn Stjörnunni í kvöld. KR varð Íslandsmeistari eftir að hafa unnið Stjörnuna 3-1 í einvíginu. Körfubolti 19. apríl 2011 22:58
Pavel: Ég á heiminn „Manni líður bara eins og ég eigi heiminn,“ sagði Pavel Ermolinskij, leikmaður KR, eftir að lið hans hafði hampað Íslandsmeistaratitlinum í Iceland-Express deild karla. KR vann Stjörnuna 3-1 í einvíginu um titilinn stóra. Körfubolti 19. apríl 2011 22:49
Brynjar Þór: Auðveldasti titillinn Brynjar Þór Björnsson varð í kvöld Íslandsmeistari í þriðja sinn með KR og segir hann þennan titil hafa verið þann auðveldasta á ferlinum. Körfubolti 19. apríl 2011 22:47
Teitur: KR-ingarnir bara betri Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, segir að betra liðið hafi unnið rimmuna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta en KR varð í kvöld meistari eftir sigur á Stjörnunni, 3-1, í lokaúrslitunum. Körfubolti 19. apríl 2011 22:46
Fannar: Tilfinningin alltaf betri og betri Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, lyfti í kvöld Íslandsmeistarabikarnum á loft í þriðja sinn á ferlinum - ávallt með KR. Hann varð Íslandsmeistari í fimmta sinn alls en hann náði þeim áfanga tvívegis er hann spilaði með Keflavík. Körfubolti 19. apríl 2011 22:38
Hrafn: Ég svíf um á skýi „Ég er bara í skýjunum og svíf bara um,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir að lið hans hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deilda karla. Körfubolti 19. apríl 2011 22:34
Brynjar um Walker: Stórkostlegur "Hann er stórkostlegur og það var ótrúlegt að fylgjast með því hvernig honum óx ásmegin eftir því sem leið á tímabilið.“ Körfubolti 19. apríl 2011 21:52
Umfjöllun: KR Íslandsmeistari eftir sannfærandi sigur í Garðabænum KR-ingar eru Íslandsmeistarar í körfubolta karla í þriðja sinn á fjórum árum og í tólfta sinn frá upphafi eftir sannfærandi fjórtán stiga sigur á Stjörnunni í kvöld, 109-95, í fjórða leik liðanna úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla í Ásgarði í Garðabæ. KR vann því úrslitaeinvígið 3-1. Körfubolti 19. apríl 2011 21:04
Brjóta KR-ingar hundrað stiga múrinn áttunda leikinn í röð? KR-ingar geta sett nýtt met í úrslitakeppninni í kvöld skori liðið hundrað stig eða meira í fjórða leik lokaúrslitanna á móti Stjörnunni. KR-ingar geta því ekki aðeins tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn því með því að skora hundrað stig bæta þeir met Keflvíkinga frá 2003. Körfubolti 19. apríl 2011 18:15
Marcus Walker: Mamma er besti vinur minn Marcus Walker er lykilmaður í liði KR sem í kvöld getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta með sigri á Stjörnunni í fjórða leik liðanna í lokaúrslitum Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 19. apríl 2011 16:00
Teitur: Fór aðeins yfir strikið Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, viðurkennir að hann hafi farið yfir strikið í gagnrýni sinni á dómara eftir síðasta leik sinna manna gegn KR í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn um körfubolta. Körfubolti 19. apríl 2011 13:30