Spurninga­leikir

Spurninga­leikir

Allar Fréttatíur og Krakkatíur, auk Hvað veistu um...? á einum og sama staðnum.

Fréttamynd

Hvað veistu um… pitsur?

Pitsa, eða pizza, er einn vinsælasti réttur heims og á uppruna sinn á Ítalíu þar sem nútímapizzan tók á sig mynd á 18. og 19. öld.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Frétta­tía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel

Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis.

Lífið
Fréttamynd

Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin?

Nóbelsverðlaunin eru meðal virtustu alþjóðlegu verðlauna sem veitt eru fyrir framúrskarandi framlag til vísinda, bókmennta og friðar. Þau byggja á erfðaskrá sænska uppfinningamannsins og iðnjöfursins Alfreds Nobel og voru fyrst veitt árið 1901. Verðlaun eru veitt í eðlisfræði, efnafræði, lífeðlisfræði eða læknisfræði, bókmenntum og friðarstarfi.

Lífið
Fréttamynd

Hvað veistu um... ís­lenska hönnun?

Íslensk hönnun hefur á undanförnum áratugum vakið sífellt meiri athygli, bæði hér heima og erlendis. Hún einkennist meðal annars af hugmyndaauðgi, einfaldleika og sterkum tengslum við íslenska náttúru og menningu.

Lífið
Fréttamynd

Hvað veistu um... Mean Girls?

Bandaríska unglingagamanmyndin Mean Girls frá árinu 2004 sem hefur fyrir nokkru síðan öðlast hálfgerða „költstöðu“ meðal þeirra sem voru ungir á þeim tíma sem myndin kom út.

Lífið
Fréttamynd

Hvað veistu um… kvik­mynda­hátíðir?

Kvikmyndahátíðir eru mikilvægur vettvangur fyrir kvikmyndagerðarfólk víðs vegar að úr heiminum til að sýna verk sín, hitta samstarfsfólk og kynna nýjar hugmyndir og sjónarhorn.

Lífið
Fréttamynd

Hvað veistu um… Djúpa­vog?

Djúpivogur er lítið og fallegt þorp á sunnanverðum Austfjörðum, þekkt fyrir rólegt yfirbragð, fallegt umhverfi og sterka tengingu við sjávarútveg.

Lífið
Fréttamynd

Hvað veistu um… Titanic?

Titanic var breskt farþegaskip sem talið var eitt það stærsta og glæsilegasta á sínum tíma. Skipið lagði af stað í sína jómfrúarsiglingu árið 1912 og eins og endaði á því að sökkva á Norður-Atlantshafi.

Lífið
Fréttamynd

Hvað veistu um... göngu­leiðir?

Líklegt má telja að fjöldi fólks hafi lagt land undir fót í sumar og notið íslenskrar náttúru á einni af þeim fallegu, merktu gönguleiðum sem er að finna víða um land. Gönguferðir eru enda vinsæl leið til að upplifa landið, fá frí frá amstri dagsins, hvort sem það er í einveru eða góðum félagsskap.

Lífið
Fréttamynd

Hvað veistu um… textana hans Bubba?

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er einn áhrifamesti texta- og tónlistarmaður Íslendinga. Textar hans eru margir fyrir löngu orðnir ódauðlegir þar sem hann fjallar meðal annars um ástina, söknuð, einmanaleika, samfélagið og lífsbaráttuna almennt.

Lífið