Pallborðið

Pallborðið

Pallborðið er umræðuþáttur fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þar sem helstu málefni eru krufin til mergjar með viðmælendum.

Fréttamynd

Nei-hliðin kallar „Já til að sjá“ markaðs­brellu

Nei-arar kölluðu „Já til að sjá“ markaðsbrellu hátt í fimm sinnum á nokkrum mínútum þegar fulltrúar já- og nei-hliðarinnar mættust í Pallborði þar sem ungt fólk var í brennidepli. Já-ari sagði sérfræðinga tala í kross og það væri eflaust mörgu ungu fólki sem fyndist það vera bestu útkomuna úr atkvæðagreiðslunni í lok ágúst að fá að sjá með eigin augum hvað fælist í samningi.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst?

Ungt fólk verður í brennideplinum í Pallborðinu á Vísi í dag. Húsnæðismál, atvinnuleysi, efnahagsmál og fleiri mál verða rædd með það að markmiði að ungt fólk sé einhverju nær um hvað það á að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi. 

Innlent
Fréttamynd

Fimm­tíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu

Hart var tekist á um kostnað Íslands við mögulega ESB-aðild í Pallborðinu á Vísi í dag. Áfram Ísland segir árlegan kostnað geta numið fimmtíu milljörðum króna en fulltrúar já-hreyfinganna hafna þeirri tölu alfarið og segja villandi að setja hana fram án þess að mögulegur ávinningur sé tekinn með.

Innlent
Fréttamynd

„Ás­dís, stattu með samgöngusáttmálanum!“

Fulltrúar framboðanna í Kópavogi, næststærsta sveitarfélaginu, sjö talsins, mættust í Pallborði Sýnar í gær og þar skópust fjörugar umræður. Meðal annars var tekist á um hina svokölluðu Reykjavíkur-Grýlu en Kópavogsbúar vilja ekki láta kenna sig við höfuðborgina. „Kópavogsbúar eru stoltir,“ sagði bæjarstjórinn. Oddvitar tveggja stærstu flokkanna voru um fæst sammála.

Innlent
Fréttamynd

Rifjaði upp erfitt augna­blik frá 1994 til að skjóta á mót­herja

Regn­bogafánar og lausa­ganga flokks­gæðinga komu við sögu þegar odd­vitar flokkanna sex sem bjóða fram fyrir sveitar­stjórnar­kosningarnar í Hafnarfirði mættust í fjörugum um­ræðum við kosninga­pall­borð frétta­stofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í gær. Skotið var á oddvita fyrir brotthvarf úr ráðherrastól fyrir rúmlega þrjátíu árum.

Innlent
Fréttamynd

Kosningapallborð frétta­stofu: Glæ­ný skoðana­könnun kynnt fyrir Hafnar­fjörð

Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina. Oddvitar sex framboðslista sem bjóða fram í Hafnarfirði koma saman í kosningapallborði fréttastofu klukkan tvö í dag á Vísi til að ræða helstu málefni sem eru undir í kosningunum. Þá verður ný skoðanankönnun birt um fylgi flokkanna.

Innlent
Fréttamynd

Kosningapallborð frétta­stofu: Mun Sjálf­stæðis­flokkurinn halda velli í Garða­bæ?

Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og eins og stendur eru þrjár vikur þangað til landsmenn ganga til kosninga. Við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina og því munu oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Garðabæ koma saman í kosningapallborði fréttastofu til að ræða þau helstu málefni sem eru undir í kosningunum.

Innlent
Fréttamynd

Hælis­leit­enda­málin settu þrýsting á Reykja­nes­bæ

Oddvitar flokkanna í Reykjanesbæ höfðu ekki um margt að rífast. Þau voru sammála um að starfsfólk sveitarfélagsins væri harðduglegt, það hafi tekið á vanda sem ríkið velti yfir á sveitarfélagið – að því forspurðu – á kassann, greitt þar úr og leyst.

Innlent
Fréttamynd

Karla­byltingin hefst í Mos­fells­bæ

Oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar tókust á í fyrsta kosningapallborði fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar áðan. Þeir eru allir karlar sem má heita nýtt í sveitarstjórnarmálum á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Ingi­björg fljót að rífa upp boxhanskana

Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Bar­áttan um for­manns­em­bætti Fram­sóknar

Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar um helgina. Tvær eru í framboði til formanns og berjast um að verða arftakar Sigurðar Inga Jóhannssonar núverandi formanns.

Innlent
Fréttamynd

Ó­birt svör og starfs­lokin tekin fyrir

Frambjóðendur til oddvita Viðreisnar í Reykjavíkurborg tókust á í Pallborðinu í dag. Farið var yfir óbirta spurningu í skoðanakönnun og Airbnb-mál fyrrverandi bæjarstjóra. Enginn frambjóðandi gat valið hvern hann myndi velja í oddvitasætið fyrir utan sig sjálfan.

Innlent
Fréttamynd

Svona var Pall­borðið með Heiðu Björgu og Pétri

Klukkan 13 mætast Heiða Björg Hilmisdóttir og Pétur Marteinsson, sem bæði sækjast eftir oddvitasæti Samfylkingarinnar í borginni, í Pallborðinu á Vísi. Þetta er í síðasta sinn sem oddvitaframbjóðendurnir mætast fyrir prófkjörið sem fer fram á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Mætast í Pallborðinu á loka­sprettinum

Þau tvö sem sækjast eftir oddvitasætinu hjá Samfylkingunni í borginni í sveitarstjórnarkosningum mætast í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi á morgun. Lesendur Vísis eru hvattir til að beina spurningum til frambjóðendanna. 

Innlent
Fréttamynd

Pall­borðið: Dómgreindarbrestur hjá CoolBet

Íslendingar eyða tugum milljarða á ári á ólöglegum veðmálasíðum. Eigendur þeirra greiða enga skatta eða gjöld hér á landi vegna úreltra laga sem hefur ekki verið breytt síðan árið 2005. Dómsmálaráðherra vill breytingar en í hvaða átt skal fara? Leyfa eða banna? Málið var rætt í Pallborðinu á Vísi í dag. 

Innlent
Fréttamynd

Svona var EM-Pallborðið

Íslenska landsliðið hefur leik á EM í körfubolta í hádeginu á morgun með leik gegn Ísrael. Hitað var upp fyrir leik morgundagsins og mótið allt í EM-Pallborðinu sem var í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14:00. Sigurður Pétursson og Ólafur Ólafsson mættu í settið.

Körfubolti