Um 400 fyrirtæki séu hætt eða að hætta að nota Rapyd vegna sniðgöngu Hundruð fyrirtækja hafa síðustu mánuði hætt að nota greiðslumiðlun Rapyd vegna þrýstings frá Sniðgönguhreyfingunni fyrir Palestínu. Þá hefur innflutningur á ávöxtum og grænmeti frá Ísrael minnkað verulega á milli ára. Sniðgangan 2024 verður gengin á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri í dag. Gangan er farin til að vekja athygli á sniðgöngu fyrir Palestínu. Innlent 14. september 2024 10:01
Ver vaxtahækkunina: Ekki hægt að selja brauðið ódýrara en hveitið Bankastjóri Arion banka segir að þegar stýrivextir lækki ekki í takt við lækkandi verðbólgu þá hækki verðtryggðir vextir. „Þess vegna þurftum við nýverið að hækka vexti verðtryggðra lána.“ Viðskipti innlent 13. september 2024 15:21
Ekki króna í þrotabúi Base parking Ekki króna fékkst upp í lýstar kröfur í þrotabú Siglt í strand ehf., sem hét áður Base parking ehf.. Lýstar kröfur námu tæpum 59 milljónum króna. Viðskipti innlent 13. september 2024 11:29
Fær bætur vegna brúnu blettanna í mottunni Fyrirtæki sem býður upp mottuhreinsun hefur verið gert að greiða viðskiptavini sínum 75 prósent af kaupverði gólfmottu eftir að skemmdir urðu á einni slíkri við hreinsun. Brúnir blettir höfðu þar myndast við hreinsun sem ekki reyndist unnt að ná úr. Neytendur 12. september 2024 12:26
Með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi Vilhjálmur Birgisson segir ákvörðun Arion banka um að hækka vexti á verðtryggðum lánum með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi, sem hann segir hafa fengið að viðgangast á íslenskum fjármálamarkaði um árabil. Neytendur 11. september 2024 16:39
Arion banki hækkar vexti hressilega Útlánavextir Arion banka hækka talsvert frá og með deginum í dag. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir hafa ekki tilkynnt vaxtahækkun. Neytendur 11. september 2024 10:19
Greiðslubyrði gæti farið hríðlækkandi á næsta ári Samkvæmt greiningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins gæti greiðslubyrði þrjátíu milljóna króna óverðtryggðs íbúðaláns á breytilegum vöxtum lækkað um fimmtíu þúsund króna á mánuði á næsta ári. Neytendur 10. september 2024 10:32
Ellefu fyrirtæki til skoðunar vegna bílastæðagjalda Neytendastofa hefur ákveðið að skoða heildstætt merkingar og framkvæmd gjaldtöku bílastæða hjá ellefu fyrirtækjum. Þetta kemur fram í svari stofnunarinnar við fyrirspurn fréttastofu. Neytendur 9. september 2024 07:48
Söluhagnaður af ólöglegri sjónvarpssölu eldsneyti glæpahópa Rúm þrjátíu prósent Íslendinga nota ólöglega sjónvarpsþjónustu. Forstjóri norrænna samtaka um hugverkavernd segir söluhagnað af ólöglega streyminu meðal annars fara í að fjármagna skipulagða glæpastarfsemi eins og vændi, fíknefnasölu og smygl. Innlent 6. september 2024 19:40
Skinkan langódýrust í Prís Prís er enn ódýrasta matvöruverslunin tæpum fjórum vikum eftir opnun. Það er niðurstaða nýjasta verðlagseftirlits ASÍ. Frá upphafi ágústmánaðar hafa fjórar stærstu matvöruverslanir landsins lækkað verð sín. Verðlag á matvöru lækkaði um 0,5 prósent á milli júlí og ágúst. Neytendur 6. september 2024 12:01
Fasteignasali gaf rangar upplýsingar og situr uppi með reikninginn Fasteignasali þarf að bera tjón kaupanda sem þurfti að greiða þinglýsingargjöld tvisvar vegna rangra upplýsinga sem fasteignasalinn veitti honum. Neytendur 5. september 2024 13:20
Kílómetragjaldið verst fyrir þá tekjulægri Sérfræðingur hjá Alþýðusambandinu telur frumvarp fjármálaráðherra um upptöku kílómetragjalds koma verst niður á tekjulægri hópum. Þá hefur hún áhyggjur af því að olíufélögin nýti tækifærið til að auka gróðann. Neytendur 3. september 2024 12:32
Óttast að fólk kaupi eitruð barnaföt fyrir jólin Kínverskir markaðsrisar líkt og Temu og Shein hika ekki við að selja föt sem í eru skaðleg efni. Mastersnemi í líf- og læknavísindum segir það sérstakt áhyggjuefni hvað varðar börn og segist neminn óttast að fólk versli jólagjafir á síðunum. Neytendur 3. september 2024 10:18
Gert að fjarlægja stórt auglýsingaskilti við Miklubraut Lónseyri ehf., eigandi lóðar við Miklubraut 101, verður gert að fjarlægja stórt auglýsingaskilti við akbrautina. Á lóðinni er Orkan og bílaapótek Lyfjavals en byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar krafðist þess að skiltið yrði fjarlægt vegna skorts á byggingarleyfi fyrir uppsetningu skiltis. Viðskipti innlent 2. september 2024 20:38
Blekking við neytendur eða leið til að halda „þægilegri verðpunkti“? Neytendur eru sífellt meðvitaðri um svokallaða shrinkflation, magnskerðingu, sem matvælaframleiðendur hafa gripið til svo hægt sé að forðast beinar verðhækkanir. Framkvæmdastjóri Bónuss segir erfitt að bregðast við magnskerðingu; helsta vopnið sé að halda vöruúrvali fjölbreyttu. Neytendur 31. ágúst 2024 11:02
Óttast að raforkuverð fjórfaldist án inngrips Formaður Neytendasamtakanna óttast að raforkuverð allt að fjórfaldist verði ekkert gert. Hann segir dæmi um það víða um heim að þak sé sett á raforkuverð fyrir heimilin. Neytendur 31. ágúst 2024 08:30
Réttur og öryggi leigjenda aukast á sunnudaginn Á sunnudaginn taka gildi ný lög um breytingar á húsaleigulögum, en markmið breytinganna er að bæta réttarstöðu leigjenda og auka húsnæðisöryggi. Með breytingum verður vísitölutenging styttri samninga óheimil, auk þess sem skilyrði verða sett fyrir því að leigjendur eða leigusalar geti farið fram á breytingar á leigufjárhæð. Neytendur 29. ágúst 2024 13:31
„Prísáhrif“ í verðbólgutölum Verð á matvöru lækkaði á milli mánaða í fyrsta sinn í þrjú ár samkvæmt nýrri mælingu Hagstofunnar og verðbólga mjakast niður á við. Formaður Neytendasamtakanna fagnar þessu en hefur þungar áhyggjur af þróun raforkuverðs. Viðskipti innlent 29. ágúst 2024 12:24
Verð á matvöru lækkar í fyrsta sinn í þrjú ár Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,09 prósent milli mánaða en lækkaði um 0,16 prósent ef húsnæðisliðurinn er tekinn út. Viðskipti innlent 29. ágúst 2024 09:17
Mótmæla samráðsummælum Breka og segja þau „haldlaus“ Samtök verslunar og þjónustu hafa mótmælt ummælum formanns Neytendasamtakanna um að „nokkurs konar þögult samkomulag“ hafa hlutina eins og þeir eru á dagvörumarkaði. Segja SVÞ ummæli formannsins vera „haldlaus“ og er bent á að formaðurinn hafi ekki fært nokkur rök máli sínu til stuðnings. Slíkt sé alvarlegt og feli í sér harkalega ásökun sem eigi ekki við rök að styðjast. Neytendur 23. ágúst 2024 11:47
Verslanir hafi haft með sér „þögult samkomulag“ um verð Formaður Neytendasamtakanna segir útlit fyrir að lágvöruverðsverslanir hér á landi hafi haft með sér þögult samkomulag um verð. Hann fagnar aukinni samkeppni með tilkomu nýrrar verslunar, sem ætti að draga vöruverð niður um allt land. Neytendur 22. ágúst 2024 20:32
Prís hrærir í pottinum: „Ekkert of langt gengið að kalla þetta verðstríð“ Lágvöruverðsverslunin Prís hefur hrist upp í markaðnum og mælist oftast með lægra vöruverð en Bónus. Af um 280 vörum sem Verðlagseftirlit ASÍ skoðaði í dag voru um 200 ódýrari í Prís. Neytendur 22. ágúst 2024 17:09
Gúrkusalatið ekki eina ástæða gúrkuskortsins Þórhallur Bjarnason, garðyrkjubóndi á Laugalandi í Borgarfirði segir gúrkuskort viðvarandi og framleiðendur ekki hafa undan. Það sé samt ekki eitthvað nýtt. Þórhallur ræddi gúrkuskort í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Viðskipti innlent 21. ágúst 2024 21:11
Neyðarástand í boði Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar Þá hafa „snillingarnir“ á Svörtuloftum haldið upp á eins árs afmæli okur-stýrivaxtanna og klappað sjálfum sér á bakið með því að ákveða að viðhalda þeim um fyrirsjáanlega framtíð. Skoðun 21. ágúst 2024 19:31
Verðlag á matvöru lækkar í fyrsta sinn frá því í mars Verðlag á matvöru hefur lækkað, samkvæmt greiningu verðlagseftirlits ASÍ, í fyrsta sinn frá því að nýir kjarasamningar voru undirritaðir í mars. Þróunin var komin vel á leið fyrir opnun lágvöruverðsverslunarinnar Prís um helgina. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ. Neytendur 20. ágúst 2024 14:28
Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Kortavelta Íslendinga jókst um 3,1 prósent milli ára að raunvirði. Innanlands jókst hún um 1,2 prósent en erlendis um 9,8 prósent. Kortaveltan hefur aukist í hverjum einasta mánuði þetta árið. Neytendur 19. ágúst 2024 10:48
Ónotuð hraðtískuföt hrannast upp hjá Rauða krossinum Fatasöfnun Rauða krossins hefur tekið ákvörðun um að selja ekki vörur frá netverslunum eins og Shein og Temu í búðum sínum á Íslandi. Teymisstjóri söfnunarinnar segir gríðarlegt magn af slíkum fötum rata í söfnunargáma og oft séu þau jafnvel ónotuð. Innlent 18. ágúst 2024 19:10
Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Fjöldi fólks lagði leið sína í nýja lágvöruverðsverslun sem opnaði í Kópavogi í dag. Verkefnastjóri hjá ASÍ segir að grannt verði fylgst með Prís, og vonar að aðrar líti á verð hennar sem áskorun. Neytendur 17. ágúst 2024 19:22
Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Prís, ný lágvöruverðsverslun, opnaði í dag á Smáratorgi 3 í turninum. Prís er fyrsti nýi aðilinn til að koma inn á lágvöruverðsmarkað í 24 ár. Neytendur 17. ágúst 2024 11:48
Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Sálfræðingur segir nýjar sölusíður líkt og Temu og Shein sem nýlega hafa rutt sér til rúms hér á landi hæglega geta orðið til þess að valda kaupfíkn. Síðurnar herji á notendur sem upplifi vellíðan við að versla sem mest á síðunum. Neytendur 15. ágúst 2024 11:23