Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Hugtakið hatursorðræða er oft notað í opinberri umræðu, en sjaldan útskýrt með skýrum hætti. Það er búið að vera athyglisvert að fylgjast með samfélagsmiðlum, þar sem spurt var hvort nútíma „hinsegin fáni“ væri viðeigandi á leik- og grunnskólum þar sem hann er nú orðinn fáni margra nýrra viðhorfa og væntinga til lífsins. Því er löngu orðin þörf á umræðu um hvar þessi fáni á erindi og hver mörk þessarar umræðu eru. Oft er því mætt með harðri viðspyrnu. Skoðun 30. apríl 2026 08:02
Íþróttir, lýðheilsa og forvarnir Íþróttahreyfingin hefur í áratugi verið einn mikilvægasti lykillinn að forvörnum á Íslandi og gegnt lykilhlutverki við að styðja foreldra í uppeldi og þroska ungmenna. Því er áhyggjuefni að sjá hvernig hluti íþróttastarfs á landinu hefur á síðustu misserum og árum færst nær afþreyingariðnaði og frá því sem dr. Þórólfur Þórlindsson, prófessor emeritus í félagsfræði, barðist fyrir um árabil, þ.e. heilsusamlegu lífi ungs fólks án vímugjafa. Skoðun 29. apríl 2026 08:16
„Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gærkvöldi eða nótt um hávaða og mögulegt heimilisofbeldi á heimili í Mosfellsbæ. Þegar betur var að gáð reyndist um að ræða ungan mann sem var að spila tölvuleik. Innlent 29. apríl 2026 06:27
Kerfið sem á að vernda börnin en bregst þeim Það er eitthvað alvarlegt að þegar foreldrar þurfa að óttast kerfið sem á að hjálpa börnunum þeirra. Félagslega kerfið og heilbrigðiskerfið eru að bregðast börnunum okkar. Það er eitthvað mikið að í samfélagi sem veitir ekki eigin börnum lífsnauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Skoðun 28. apríl 2026 23:01
Við erum að sýna börnunum okkar virðingarleysi – og þau finna það Það er eitthvað djúplega rangt við það hvernig við, sem samfélag, komum fram við börnin okkar. Þetta snýst ekki um einstök mistök eða einstaka starfsmenn. Þetta er kerfisbundið. Mynstur sem hefur verið að endurtaka sig í áratugi – og við vitum það. Skoðun 21. apríl 2026 08:32
Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Lítil flugvél endaði á hvolfi við lendingu við Tungubakka í Mosfellsbæ í kvöld. Einn flugmaður var í vélinni sem slapp óslasaður. Innlent 18. apríl 2026 22:21
Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Bjarni Hannesson yfirvallarstjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar hefur í mörg horn að líta. Nú er völlurinn einkar viðkvæmur því undir yfirborðinu sem er að bráðna er frost og þá verður grasið eins og búðingur. Bjarni varar við því að fólk sé að flækjast á vellinum nú um stundir. Innlent 17. apríl 2026 13:31
Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, hefur fest kaup á bæjarblaðinu Mosfellingi og tekur við rekstri þess með það að markmiði að byggja ofan á sterkan grunn blaðsins. Þá hefur nýr ritstjóri verið ráðinn til starfa samhliða kaupunum. Viðskipti innlent 16. apríl 2026 13:28
Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Tveggja bíla árekstur var á Mosfellsheiði síðdegis í dag og voru sjö einstaklingar fluttir á bráðamóttöku. Voru allir minniháttar slasaðir, að sögn slökkviliðs. Innlent 11. apríl 2026 18:27
Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest „Ég er svo þakklát fyrir allt sem ég á og allt sem hefur mætt mér á lífsleiðinni. En það var mikil gæfa að fá höfnun sem lét mig leggja harðar af mér frekar en að gefast upp þegar ég komst ekki inn í draumaskólann og missti ljósið mitt,“ segir Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026. Lífið 9. apríl 2026 09:02
Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar tókust á í fyrsta kosningapallborði fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar áðan. Þeir eru allir karlar sem má heita nýtt í sveitarstjórnarmálum á Íslandi. Innlent 8. apríl 2026 17:27
Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar mæta í fyrsta kosningapallborð fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar á slaginu 14.00 í dag. Innlent 8. apríl 2026 13:43
Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Nokkur snjóflóð hafa verið skráð af ofanflóðavaktinni í dag, meðal annars í Móskarðshnjúkum, en öll eru þau í minni kantinum. Talsverð snjókoma hefur verið víða á landinu, á Austfjörðum heldur áfram að snjóa og hvessir í kvöld. Veður 3. apríl 2026 20:01
Bíll í ljósum logum Eldur kviknaði í sendiferðabíl í Mosfellsbæ. Slökkvistarfi er lokið. Innlent 25. mars 2026 13:49
Rúta út af og Þingvallavegi lokað Lokað hefur verið fyrir umferð um Þingvallaveg vegna umferðarslyss á Mosfellsheiði en þar hafnaði rúta fyrir utan veginn eftir að ökumaður missti stjórn á ökutækinu. Innlent 15. mars 2026 15:58
Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Gunnar Þór Geirsson, formaður félags íslenskra heimilislækna, segir ekki raunsætt að fólk fái tíma hjá heimilislækni innan fimm daga eins og viðmið landlæknis geri ráð fyrir. Hann kallar eftir því að sérnám heimilislækna verði styrkt, gæði námsins sé í hættu. Innlent 13. mars 2026 08:52
Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Meðalbiðtími eftir næsta lausa tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu er að jafnaði 27 dagar samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Aðeins tvær heilsugæslur standast viðmiði landlæknis. Innlent 12. mars 2026 06:02
Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Framboðslisti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á félagsfundi síðdegis. Nýr oddviti flokksins í bænum er Ólafur Ingi Óskarsson, netkerfisfræðingur og varabæjarfulltrúi. Innlent 9. mars 2026 19:48
Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Gul viðvörun er í gildi vegna eldinga á Suðurlandi. Veðurfræðingur segir eldingarnar að mestu hafa verið bundnar við syðsta hluta landsins fyrir hádegi en veðrið sé að færast vestar. Fréttastofa hefur frétt af eldingum í Mosfellsbæ síðdegis í dag og þá var einnig greint frá rafmagnsleysi í Þorlákshöfn. Veður 6. mars 2026 15:03
Reyndi að kveikja í bíl Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um tilraun til íkveikju í bíl fyrir utan heimili. Innlent 4. mars 2026 17:30
Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. Veður 3. mars 2026 06:34
Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Gylfi Þór Þorsteinsson, sviðsstjóri hjá Rauða krossi Íslands, er oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ komandi sveitarstjórnarkosningum. Í öðru sæti er Valdimar Birgisson rekstrarráðgjafi og varaþingmaður og í þriðja sæti er Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur. Listinn var staðfestur á félagsfundi nú í morgun. Innlent 28. febrúar 2026 13:15
„Nú verður fjör” hjá Sjálfstæðismönnum sem kynna lista í Mosó Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ hefur nú svipt hulunni af sínum lista yfir frambjóðendur flokksins í sveitarfélaginu í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hilmar Gunnarsson, ritstjóri og Mosfellingur leiðir listann, en í öðru og þriðja sæti eru þær Jana Katrín Knútsdóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur, og Elísabet S. Ólafsdóttir sáttamiðlari. Innlent 27. febrúar 2026 20:13
Framsókn sviptir hulunni af framboðslista í Mosó Framsóknarflokkurinn í Mosfellsbæ hefur samþykkt framboðslista flokksins í sveitarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sævar Birgisson, viðskiptafræðingur og bæjarfulltrúi, leiðir listann og þau Halla Karen Kristjánsdóttir, íþróttakennari og formaður bæjarráðs og Leifur Ingi Eysteinsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur verma annað og þriðja sæti listans. Innlent 27. febrúar 2026 18:18
Bæjarstjóri Mosfelssbæjar á lista Samfylkingar í Reykjavík Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ og fyrrverandi bæjarstjóri Akraness, mun skipa sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi Sveitarstjórnarkosningar. Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi fékk ekki sæti á listanum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, munu skipa heiðurssæti á listanum. Innlent 26. febrúar 2026 19:21
Regína lætur staðar numið í Mosó Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri í Mosfellsbæ hefur ákveðið að hætta störfum að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor hver sem útkomin verði. Ákvörðunin sé ekki léttvæg en hún vilji að framboð viti að hverju þau gangi nú þegar kosningabaráttan fer í hönd. Innlent 20. febrúar 2026 12:29
Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni Oddviti Framsóknar segir af og frá að aðgerðir vegna mengunar á höfuðborgarsvæðinu hafi strandað á honum. Hann segir Pírata og Samfylkingu með fullkomlega óraunhæfar hugmyndir til að bregðast við. Kjörnir fulltrúar segjast í svörum til fréttastofu í dag líta málið alvarlegum augum, flestir segja í þetta skiptið nagladekk vera meginorsakavaldinn. Innlent 18. febrúar 2026 13:30
Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Meirihluti kjörinna fulltrúa telur að bætt götuhreinsun muni stemma stigu við mikilli svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu, miðað við svör til fréttastofu um málið. Fulltrúarnir skiptast í tvo hópa, þá sem telja að þrifin skipti máli og svo þá sem benda á að nagladekk og samgöngur séu helsta vandamálið. Sumir kenna meirihlutanum í borgarstjórn um vandann en aðrir íhaldsmönnum sem dragi lappirnar að taka á nagladekkjavanda. Öll líta málið alvarlegum augum. Innlent 17. febrúar 2026 15:40
„Það er ekki nokkur leið að reka Færeyinginn úr Mosfellsbæ“ Hjónin Jógvan Hansen og Hrafnhildur Jóhannesdóttir hafa sett íbúð sína að Súluhöfða 25 í Mosfellsbæ á sölu. Íbúðin er 139 fermetrar, skartar einu frægasta karlagreni landsins og er ásett verð 99,9 milljónir króna. Ekki sé nokkur leið til að reka Færeyinginn úr Mosfellsbæ og ætla þau hjónin sér að byggja nýtt hús í bænum. Lífið 16. febrúar 2026 16:26
Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. Innlent 16. febrúar 2026 13:10