Erótísk skáldsaga með grafískum kynferðislegum lýsingum „Það er búið að vera draumur hjá mér í mörg ár að skrifa skáldsögu en efnið var lengi að koma til mín. Sennilega er þetta búið að gerjast í einhvern tíma í undirmeðvitundinni. Loksins settist ég niður og ákvað að það væri áskorun að dansa aðeins á línunni og skrifa erótískar senur inn í söguna og draga þar ekkert undan,“ segir Fanney Sif Gísladóttir í samtali við Makamál. Makamál 21. desember 2020 20:09
Mikill áhugi á kynlífsklúbbum Skilgreiningin á kynlífsklúbb eru staðir eða klúbbar sem virka eins og dæmigerðir skemmtistaðir en eiga það sameiginegt að bjóða upp á einhverskonar aðstöðu fyrir fólk til að stunda þar kynlíf. Þessir klúbbar geta verið mjög fjölbreyttir, ætlaðir mismunandi kynhegðun og kynhneigðum og gilda ólíkar húsreglur eftir því. Makamál 20. desember 2020 19:55
Móðurmál: Gaf kærastanum pakka með óléttuprófi á bóndadaginn „Covid hefur haft áhrif á líf mitt eins og annarra en þegar kemur að meðgöngu og tilkomu dóttur minnar þá hefur það einna helst haft þau áhrif að ég hef þurft að sækja flestar skoðanir ein. Ég þurfti að fara í sónar ein, í mæðraverndina og svo hóf ég fæðingarferlið ein en kærastinn minn fékk ekki að koma fyrr en ég var komin af stað í virka fæðingu. Þá hafa mun færri af fjölskyldu og vinum hitt dóttur mína þrátt fyrir að hún sé orðin tveggja mánaða gömul. Mér þykir það mjög leitt,“ segir Sigríður Þóra í viðtalsliðnum Móðurmál. Makamál 19. desember 2020 08:25
Spurning vikunnar: Veldur jólaundirbúningurinn álagi á sambandið? Jólin eru tími kærleiks og friðar. Er það ekki annars? Af einhverjum óútskýranlegum ástæðum þá finnum við okkur mörg hver knúin til að skrifa niður ævintýralega langan verkefnalista fyrir jólin. Það þarf að þrífa ofan af skápunum, mála baðherbergið, hengja upp myndir í stofunni, baka fimm sortir, grafa lax, skreyta heimilið, búa til jólasultuna og kaupa allar jólagjafirnar. Makamál 18. desember 2020 07:58
„Langar á deit með sætum íslenskum manni“ „Ég er búin að fá ótrúlega mikil viðbröð, þetta sprakk eiginlega pínulítið í höndunum á mér og núna er ég búin að fá fullt af skilaboðum og vinabeiðnum,“ segir Ólöf Rut Fjeldsted í samtali við Makamál. Ólöf vakti mikla athygli fyrir innlegg sitt síðastliðið mánudagskvöld í Facebook-hópnum Íslendingar í Danmörku þar sem hún óskaði eftir því að komast á stefnumót með íslenskum manni. Makamál 16. desember 2020 20:00
Þriðjungur segist sakna fyrrverandi maka Í síðustu viku spurðum við lesendur Vísis hvort að þeir söknuðu fyrrverandi maka. Eftir sambandsslit er ekki óalgengt að annar eða báðir aðilar finni fyrir söknuði, sérstaklega ef sambandið hefur varað lengi. Stundum er það þessi söknuður sem getur gert fólk ringlað og valdið því að það efast um að sambandsslitin hafi verið rétt ákvörðun. Makamál 13. desember 2020 21:35
Einhleypan: „Kynvilla og kampavín“ Hlýr, hýr og hrókur alls fagnaðar eru orð sem vinir Einhleypu vikunnar myndu nota til að lýsa honum. Sjálfur segist hann fyrst og fremst titla sig sem Ólafsfirðing sem elskar að fara í sjósund, ferðast og ganga á fjöll. Kynnumst Vilhjálmi Þór Davíðssyni aðeins betur. Makamál 13. desember 2020 19:51
Móðurmál: „Ég og pabbi framkvæmdum endurlífgun og náðum henni til baka“ „Ég fór með hana þrisvar upp á Barnaspítalann hérna heima og var alltaf send heim aftur. Síðan fórum við til Bretlands að hitta fjölskylduna okkar. Á síðasta degi ferðalagsins hætti hún að anda. Ég og pabbi framkvæmdum endurlífgun og náðum henni til baka. Við munum hvorugt mikið eftir þessum degi þar sem óttinn tók yfir.“ Þetta segir Aníta Björk Káradóttir í viðtalsliðnum Móðurmál. Makamál 12. desember 2020 08:01
Spurning vikunnar: Hefur þú farið á kynlífsklúbb? Fyrr í vikunni tók Makamál viðtal við mann sem sagði frá upplifun sinni af kynlífsklúbbum á Kanarí. Áður hafa Makamál birt viðtöl við konu og hjón sem lýsa reynslu sinni af swing-senunni. Öll hafa þau reynslu af kynlífsklúbbum. Makamál 11. desember 2020 08:01
„Hann er einfaldlega bestur og ég bið ekki um meira“ „Það er ómetanlegt hvað fólk sýnir manni stuðning í því sem maður gerir og ég er mjög þakklát fyrir viðbrögðin sem ég hef fengið,“ segir Sólrún Diego í viðtali við Makamál. Makamál 10. desember 2020 09:58
Kynlífsklúbbar á Kanarí: „Það er mjög mikið hægt að prakkarast hérna“ „Mér finnst gaman að vera allsber og fer mikið á nektrarstrendurnar hér á Kanarí. Mér líður vel þegar ég er nakinn og það er ákveðið frjálsræði sem fylgir því. Svo snýst þetta líka eitthvað um ákveðna sýniþörf (exhibitionisma), mér finnst líka gaman þegar ég finn að það er verið að horfa á mig. Stór partur af þessu er líklega spennan.“ Makamál 8. desember 2020 20:02
Aftur í gamla sambandið? Brotin sjálfsmynd eftir skilnað truflar dómgreind Endalok geta verið erfið, missir er yfirleitt alltaf erfiður. Þegar eitthvað endar sem hefur verið stór hluti af lífi okkar þá upplifum við flest þungbærar og flóknar tilfinningar. Tilfinningar okkar eftir sambandsslit eða skilnað eru oft á tíðum þær erfiðustu sem við þurfum að takast á við. Makamál 7. desember 2020 20:00
Rósa vill unaðsbyltingu:„Sjálfsfróun er hugleiðsla sjálfsástarinnar“ Rósa María Óskarsdóttir er 37 ára íslensk kona sem starfar sem Bodysex leiðbeinandi og fullnægingarráðgjafi. Ásamt því stundar hún fjarnám í líkamsmiðaðri kynfræðslu í skólanum Institude for the Study of Somatic Sex Education í Kanada. Makamál 6. desember 2020 21:11
Meirihluti kýs vináttuna fram yfir ástina Stundum hefur verið sagt að ástin geti villt okkur sýn. Ákvarðanir sem teknar eru undir áhrifum hennar eru kannski ekki alltaf þær skynsamlegustu. Við getum hreinlega orðið blinduð af ást og þegar við verðum ástfangin þá skiptir fátt meira máli en að fá að svífa um á bleika skýinu. Makamál 6. desember 2020 19:18
Spurning vikunnar: Sérðu eftir fyrrverandi maka? Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla sagði skáldið. Þegar samband endar, samband sem að öllum líkindum var ekki nógu gott, þá situr yfirleitt annar aðilinn eftir í sárum. Eftirsjá, söknuður og tómleiki eru tilfinningar sem oft á tíðum fylgja sambandsslitum. Makamál 4. desember 2020 07:55
Einhleypan: „Einstaklega krefjandi að búa ein á þessum skrýtnu tímum“ Vinir hennar myndu kalla hana gula partý-viðvörun og hrók alls fagnaðar en sjálf titlar hún sig sem landsbyggðarkonu, ástríðufullan kökubakara og stemmningskonu með hússtjórnarpróf uppá vasann. Jóhanna Stefánsdóttir er Einhleypa Makamála þessa vikuna. Makamál 1. desember 2020 21:14
Stefnumótaáskorun á aðventunni Sumir eru mjög iðnir við að finna sér tilefni til þess að gera sér dagamun. Fólkið sem heldur upp á alla dagana og öll afmælin. Valentínusardaginn, konu- og bóndadaginn eða mæðra- og feðradaginn og guð má vita hvað. Svo eru það aðrir sem fussa og sveia yfir svona óþarfa tilstandi. Makamál 30. nóvember 2020 21:25
Ef þú og maki vinar þíns eða vinkonu yrðuð ástfangin, hvað myndir þú gera? Stundum er sagt að ástin sé blind. Svo blind að að við tökum ákvarðanir sem ekki alltaf eru þær skynsamlegustu. Við tökum ákvarðanir sem við myndum aldrei annars taka nema undir áhrifum ástarinnar. Makamál 27. nóvember 2020 10:01
„Þessum pistli er ætlað að vera hvatningarpistill til karla“ Andrea er félagsfræðingur og lektor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Hún ásamt samstarfskonu sinni Valgerði S. Bjarnadóttir, nýdoktor við Háskóla Íslands hefur að undanförnu verið að vinna að rannsókn á breytingum á heimilislífi á tímum Covid-19 sérstaklega hvað varðar áhrif samkomutakmarkana á fjölskyldulíf og verkaskiptingu. Makamál 26. nóvember 2020 21:28
Fjölástir á Íslandi algengari en fólk heldur „Ég elska alla“ söng Shady Owens söngkona Hljóma svo eftirminnilega á sjöunda áratugnum. Í hefðbundnum sambandsformum og því sambandformi sem við þekkjum best í vestrænum heimi, þá eru tveir aðilar í ástarsambandi, tveir í hjónabandi. Makamál 25. nóvember 2020 22:18
Einhleypan Helgi Jean: Segir draumastefnumótið enda með óléttu Þúsundþjalasmiðurinn, ævintýramaðurinn og hlaðvarpskóngurinn Helgi Jean er Einhleypa Makamála þessa vikuna. Sjálfur lýsir hann sér sem hógværum, brilljant snilling en vinir hans segja hann besta vin heimsins. Makamál 25. nóvember 2020 21:02
Dóra Júlía og Bára: „Ást er allskonar“ Plötusnúðurinn og tískudrottningin Dóra Júlíaivar lengi ein af eftirsóttustu einhleypu konum landsins en í byrjun árs fann hún ástina og geislar nú af hamingju með kærustu sinni Báru Guðmundsdóttur. Makamál 21. nóvember 2020 19:01
„Allir hræddir í fyrstu bylgjunni, graðir í þeirri seinni og núna þunglyndir“ Það verður seint sagt að árið 2020 sé ár stefnumóta og óvæntra skemmtistaðasleika. Þó vilja sumir segja að Covid ástandið hafi haft góð áhrif á stefnumótalífið að því leiti að nú sé fólk knúið til að hugsa út fyrir boxið og finna nýjar leiðir til að kynnast. Makamál 20. nóvember 2020 20:01
Spurning vikunnar: Heldur þú upp á sambands- eða brúðkaupsafmælin? Er hægt að fagna ástinni of oft? Það er misjafnt hversu rómantísk við erum og hversu mikla þörf við höfum til að halda upp á eða fagna dögum eins og brúðkaups- eða sambandsafmælum. Makamál 20. nóvember 2020 09:02
Segir stripp aðeins niðurlægjandi ef manneskja er neydd til þess „Nektardans eða stripp er atvinnugrein sem mér finnst að ætti að vera í boði á Íslandi hjá þeim sem kjósa að stunda hana.“ Þetta segir sviðslistakona sem kýs að kalla sig Carmen Dea Untamed í viðtali við Makamál. Makamál 19. nóvember 2020 20:10
Óvænt bónorð í Köben: „Hún grét og hló og grét svo ennþá meira“ „Að fá lánaða kirkju undir bónorð að kvöldi föstudagsins þrettánda var svolítið maus,“ segir Máni Snær Hafdísarson í viðtali við Makamál. Makamál 18. nóvember 2020 12:30
Einhleypan: „Hver elskar ekki smá athygli?“ „Ég finn engan mun á því að vera single núna og fyrir Covid. Ég hef ekkert farið á stefnumót í marga, marga mánuði svo að ég er frekar rólegur í þessu,“ segir Halldór Ingi Skarphéðinsson í viðtali við Makamál. Makamál 17. nóvember 2020 19:57
Níu hugmyndir að rómantískum stefnumótum heima Að gera sér dagamun er eitthvað sem við flest þráum þessa dagana, sérstaklega núna í skammdeginu. Ef einhvern tíma er þörf á því að hugsa út fyrir boxið varðandi afþreyingu og stefnumót, þá er það einmitt núna. Makamál 15. nóvember 2020 22:17
Móðurmál: Ófrísk, einhleyp og óhrædd „Ég og barnsfaðir minn hættum saman í sumar svo að það hefur verið mjög krefjandi að fara í gegnum það ferli ólétt í miðjum heimsfaraldri,“ segir Stefanía Svavarsdóttir söngkona í viðtali við Makamál. Makamál 15. nóvember 2020 19:00
Mikill áhugi á swing-senunni Í kjölfar umfjöllunar um makaskipti voru lesendur Vísis spurðir hvort þeir hefðu áhuga á swing-senunni í Spurningu vikunnar. Makamál 14. nóvember 2020 07:56