Þyrlan kölluð út vegna ferðamanns sem féll við Glym Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglunnar á Vesturlandi eftir að tilkynning barst um að maður hafi fallið og slasast nærri fossinum Glym í Hvalfirði um klukkan 10:30 í morgun. Innlent 22. mars 2023 11:52
Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir skotmanninum Lögregla á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum sem hleypti af skoti inni á skemmtistaðnum The Dubliner í miðborg Reykjavíkur sunudagskvöldið 12. mars síðastliðinn. Innlent 22. mars 2023 10:48
Svört skýrsla um rasisma og kvenfyrirlitningu hjá Lundúnarlögreglunni Lundúnarlögreglan er ónýt, rúin trausti og þjáist af kerfisbundnum rasisma, kvenfyrirlitningu og fordómum gegn samkynhneigðum. Þetta segir í nýrri 363 blaðsíðna skýrslu um stöðu lögreglunnar, sem unnin var undir forystu barónessunnar Louise Casey. Erlent 21. mars 2023 07:33
Ekið á barn á reiðhjóli Ekið var á barn á reiðhjóli á höfuðborgarsvæðinu um klukkan 18 í gær. Barnið slasaðist ekki en engar frekari upplýsingar um atvikið er að finna í yfirliti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Innlent 21. mars 2023 06:02
Lýsa yfir áhyggjum af vegferð lögreglunnar Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur samþykkt ályktun þar sem hún fordæmir að enn einn blaðamaðurinn hafi hlotið stöðu sakbornings í tengslum við Samherjamálið svokallaða. Innlent 20. mars 2023 18:29
Nafn mannsins sem lést í Ásahreppi Karlmaðurinn sem lést eftir að hafa klemmst við vinnu við dráttarvél á sveitabýli í Ásahreppi hét Guðjón Björnsson. Hann var fæddur árið 1983 og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Haldin var bænastund í hreppnum í gær. Innlent 20. mars 2023 15:24
Mönnunum sleppt úr haldi Mönnunum tveimur sem handteknir voru eftir að karlmaður fannst látinn í húsi í Þingholtunum hefur verið sleppt úr haldi. Er það mat lögreglu að þeir hafi ekki átt þátt í dauða mannsins. Innlent 20. mars 2023 11:46
Fjögur innbrot og eignaspjöll Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og nótt en henni bárust meðal annars fjórar tilkynningar um þjófnað úr verslunum auk tilkynninga um íkveikju og eignaspjöll. Innlent 20. mars 2023 06:23
Reyna að yfirheyra mennina aftur í fyrramálið Lögreglu hefur enn ekki tekist að yfirheyra mennina sem handteknir voru í morgun vegna andláts í Þingholtunum. Ítrekaðar tilraunir hafa verið gerðar til að yfirheyra mennina en það hefur ekki tekist sökum ástands þeirra. Gerð verður tilraun til að yfirheyra mennina aftur í fyrramálið. Innlent 19. mars 2023 22:40
Hafa ekki enn náð að yfirheyra mennina sökum ástands Tilraunir lögreglu til að yfirheyra mennina sem handteknir voru í morgun vegna andláts í Þingholtunum hafa ekki borið árangur sökum ástands þeirra. Takist það ekki seint í kvöld þurfi að skoða aðrar ráðstafanir þar sem lögregla hefur aðeins heimild til að halda einstaklingum í sólarhring. Innlent 19. mars 2023 19:29
Eldur kviknaði í ísskáp Eldur kviknaði í ísskáp á höfuðborgarsvæðinu í dag. Lögreglan fór á vettvang ásamt slökkviliði í kljölfar þess sem tilkynning um eldinn barst. Eldurinn var farinn að dreifa sér um eldhúsið en slökkviliði tókst að slökkva eldinn. Tæknideild lögreglu mætti einnig á vettvang. Innlent 19. mars 2023 18:45
Telja ólíklegt að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Ekki var hægt að yfirheyra mennina tvo, sem handteknir voru í morgun í tengslum við andlát í Þingholtunum í Reykjavík, fyrr en síðdegis sökum ástands þeirra. Lögregla segir það ekki talið líklegt að svo stöddu að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti en það mun skýrast betur í dag. Innlent 19. mars 2023 14:44
Klemmdist og lést í vinnuslysi Karlmaður lést eftir að hafa klemmst við vinnu við dráttarvél á sveitabýli í Ásahreppi á föstudag. Innlent 19. mars 2023 13:32
Tveir handteknir í tengslum við andlát í miðbænum Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við andlát í Þingholtunum í Reykjavíkur í morgun. Tilkynning barst á sjöunda tímanum í morgun um hávaða og háreysti í húsi en þegar lögregluþjóna bar að garði var þar maður meðvitundarlaus. Innlent 19. mars 2023 11:13
Kom að húsnæði í rúst eftir innbrot Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um innbrot í Hafnarfirði. Þegar eigandi húsnæðisins kom heim var búið að brjótast inn og skemma þar mikið af húsgögnum og munum. Innlent 19. mars 2023 07:35
Tveir fluttir slasaðir eftir snjóflóðið Snjóflóð féll í fjallshlíð suður af Ólafsfirði á fyrsta tímanum í dag með þeim afleiðingum að tveir úr hópi skíðafólks slösuðust. Björgunarsveitir eru mættar á vettvang ásamt þyrlusveit Landhelgisgæslunnar. Innlent 18. mars 2023 14:07
Reyndi að komast inn í íbúð sem hann bjó ekki í Lögregluþjónar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu höfðu í nótt afskipti af manni sem var að reyna að komast inn í íbúð í Breiðholti sem hann bjó ekki í. Aðstoðarbeiðni hafði borist til lögreglunnar en maðurinn var það ölvaður að hann get ekki sagt hvar hann byggi. Innlent 18. mars 2023 08:18
Framlengja gæsluvarðhald yfir byssumanninum Gæsluvarðhald yfir karlmanni um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur framlengt til miðvikudagsins 22. mars. Innlent 17. mars 2023 15:49
Lögreglan lýsir eftir manni sem framselja á til Lettlands Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Harijs Graikste. Fyrir liggur staðfest ákvörðun um að verða við beiðni um afhendingu á honum til Lettlands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar. Innlent 17. mars 2023 15:06
Slagsmál, eldur og innbrot Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna slagsmála í Kópavogi í gærkvöldi. Tveir einstaklingar voru handteknir og vistaðir í fangageymslum vegna rannsóknar málsins. Innlent 17. mars 2023 06:51
Staðnir að verki grunaðir um innbrotin Þrír voru handteknir í Gerðunum í dag grunaðir um innbrot í geymslur á svæðinu. Einstaklingarnir voru vistaðir í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins. Meintu þýfi hefur verið skilað til eigenda. Innlent 16. mars 2023 18:05
Ingi Freyr með stöðu sakbornings Ingi Freyr Vilhjálmsson, blaðamaður Heimildarinnar, hefur fengið stöðu sakbornings í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna umfjöllunar fjölmiðla um „skæruliðadeild“ Samherja. Innlent 16. mars 2023 11:03
Kastaði munum úr íbúð sinni Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um mann sem var að kasta munum úr íbúð sinni í fjölbýlishúsi. Innlent 16. mars 2023 07:31
Þóra aftur kölluð í yfirheyrslu Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks á Ríkisútvarpinu, var yfirheyrð af lögreglu á þriðjudag í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna umfjöllunar fjölmiðla um „skæruliðadeild“ Samherja. Innlent 16. mars 2023 06:27
Svipti sálfræðing starfsleyfi sem gaf út marklausar ADHD-greiningar Heilbrigðisráðuneytið staðfesti ákvörðun landlæknis um að svipta sálfræðing sem skrifaði upp á ADHD-greiningar sem hvergi voru teknar gildar og gaf sjúklingum lyf án lyfseðils starfsleyfi sínu. Sálfræðingurinn braut lög og er talinn óhæfur til að gegna starfi sínu. Innlent 15. mars 2023 21:09
Halda leitinni áfram á morgun Leit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að Stefáni Arnari Gunnarssyni hefur ekki borið árangur. Lögreglan er ekki viss hvort reiðhjól sem fannst í leitinni sé í eigu Stefáns. Leitinni verður haldið áfram á morgun og notast verður við dróna. Innlent 15. mars 2023 10:25
Í gæsluvarðhaldi fram að helgi Karlmaðurinn sem grunaður eru um að hafa skotið af byssu inni á skemmtistaðnum The Dubliner við Naustina í miðbæ Reykjavíkur verður í gæsluvarðhaldi fram til klukkan fjögur á föstudaginn. Innlent 14. mars 2023 17:42
Fara fram á vikulangt gæsluvarðhald yfir byssumanninum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á vikulangt gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um að hafa skotið af byssu inni á skemmtistaðnum The Dubliner í miðborg Reykjavíkur á sunnudagskvöld. Innlent 14. mars 2023 17:05
Fær ekki að áfrýja dómi vegna skotárásarinnar á Egilsstöðum Hæstiréttur telur ekki ástæðu til að veita Árnmari Jóhannesi Guðmundssyni leyfi til að áfrýja átta ára fangelsisdómi fyrir skotárás á Egilsstöðum í ágúst árið 2021. Innlent 14. mars 2023 14:03
Hafa ekki tekið ákvörðun um gæsluvarðhald yfir byssumanninum „Það er eiginlega ekkert nýtt. Ég hugsa að það skýrist seinna í dag hvort það verði gerð krafa um gæsluvarðhald,“ segir Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn í samtali við Vísi. Innlent 14. mars 2023 14:00