Maður hótaði fólki með öxi á Bíladögum á Akureyri Sérsveitin var kölluð út í kvöld á Akureyri vegna manns sem hótaði fólki með öxi á tjaldsvæði Bíladaga sem nú standa þar yfir. Var maðurinn yfirbugaður og vistaður í fangaklefa Innlent 17. júní 2023 22:30
Tveir í haldi grunaðir um manndráp í Hafnarfirði Tveir menn eru í haldi lögreglu grunaðir um manndráp í Drangahrauni í Hafnarfirði í nótt eða í morgun. Hinn látni var á fimmtugsaldri. Innlent 17. júní 2023 15:48
Ungmenni til vandræða í Kópavogi Töluverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Meðal 97 skráðra mála voru tvö atvik þar sem ungmenni voru til vandræða við skóla í Kópavogi og/eða Breiðholti. Innlent 17. júní 2023 07:56
Myndbirtingar af þjófum geta spillt fyrir lögreglu Borið hefur á því að fólk sem lent hefur í þjófnaði birti myndir af meintum þjófum á samfélagsmiðlum. Persónuvernd hefur reynt að fá fólk til að senda myndir og myndbönd til lögreglu og taka úr birtingu. Innlent 17. júní 2023 07:00
Gæsluvarðhald framlengt um tvær vikur Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í dag karlmann, sem er grunaður um að hafa orðið 29 ára konu að bana á Selfossi, í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald. Bæði lögregla og maðurinn hafa kært úrskurðinn til Landsréttar. Innlent 16. júní 2023 18:39
Símastulds- og byrlunarmál í saltpækli fyrir norðan Að sögn Eyþórs Þorbergssonar varasaksóknara hjá lögregluembættinu á Norðurlandi eystra verður ekkert að frétta af rannsókn á máli sem tengist meintri byrlun og símastuldi af Páli Steingrímssyni skipstjóra fyrr en í allra fyrsta lagi í haust. Málið liggur því í saltpækli þó langt sé síðan það kom upp. Innlent 16. júní 2023 15:40
Rannsókn á manndrápi á Selfossi gengur vel Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur krafist áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir manni sem grunaður er um manndráp á Selfossi. Sá hefur meiri aðkomu að málinu en annar maður sem var handtekinn við upphaf rannsóknar en sleppt. Innlent 16. júní 2023 14:13
Stígamót kæra tvö tilfelli ofbeldis til lögreglu Samtökin Stígamót vilja taka skýrt fram að hótanir, ógnanir, áreiti eða umsáturseinelti gegn starfsfólki Stígamóta verði ekki liðið og hafa tvö tilfelli af því tagi verið kærð til lögreglu. Innlent 16. júní 2023 10:46
Grímuklæddir menn brutu rúður á skemmtistað í miðborginni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gær um fjóra svartklædda menn með grímur sem fóru að skemmtistað í miðborginni og brutu þar fimm rúður. Innlent 16. júní 2023 06:23
Leita enn að Sigrúnu Arngrímsdóttur Lögreglan á Suðurnesjum leitar enn að Sigrúnu Arngrímsdóttur sem fyrst var lýst eftir fyrir tveimur dögum síðan, þann 13. júní. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Verið er að endurskipuleggja leitarsvæðið og leit mun halda áfram. Innlent 15. júní 2023 16:01
Notuðu þyrlu, dróna og sporhund við leit að sofandi dreng Lögregla og björgunarsveitarfólk kom að umfangsmikilli leit að níu ára dreng í Vatnaskógi í nótt. Sá hafði horfið frá sínum stað í sumarbúðunum KFUM og KFUK í Vatnaskógi en fannst svo nokkrum klukkustundum síðar undir sæng hjá vini sínum. Innlent 15. júní 2023 15:14
Hafa lokið rannsókn á Dubliner málinu Rannsókn lögreglu á atviki þar sem maður hleypti af skoti á Dubliner í Reykjavík í mars er lokið. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, situr áfram í gæsluvarðhaldi en það var framlengt þann 6. júní síðastliðinn. Innlent 15. júní 2023 10:14
Spilafíkill hafði fjármuni af þroskaskertum mönnum Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir konu sem grunuð er um að hafa svikið 25 milljónir af að minnsta kosti ellefu karlmönnum, þar af sex með þroskaskerðingu. Konan segist haldin alvarlegri spilafíkn. Innlent 14. júní 2023 18:37
Lýsa eftir Sigrúnu Arngrímsdóttur Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Sigrúnu Arngrímsdóttur. Innlent 13. júní 2023 17:25
„Ég buffa þig og þennan drulludela“ Pólskur karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir hótanir, umferðalagabrot og fjársvik, meðal annars með því að hafa stolið bensínlykli og notað hann án heimildar. Maðurinn rauf reynslulausn en hann hefur ítrekað verið dæmdur fyrir ýmis hegningarlagabrot. Innlent 13. júní 2023 15:59
Á slysadeild eftir líkamsárás fjögurra á aldrinum 17 til 20 Sautján ára drengur var í gærkvöldi fluttur á slysadeild vegna líkamsárásar í Mjóddinni í Reykjavík, af hendi fjögurra annarra á aldrinum 17 til 20 ára. Mennirnir fjórir voru handteknir í dag og verða yfirheyrðir í kjölfarið. Innlent 13. júní 2023 12:20
Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárás Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust þrjár tilkynningar um líkamsárásir í nótt. Í einu tilvikinu voru fjórir handteknir og málið í rannsókn fram eftir kvöldi og nóttu. Kært fyrir líkamsárás, vopnalagabrot og vörslu fíkniefna, segir í yfirliti lögreglu. Innlent 13. júní 2023 06:38
Stúlkan sem lögregla lýsti eftir er fundin heil á húfi Stúlka sem lögregla á Suðurnesjum lýst eftir fyrr í morgun eftir að hún hafði ekki skilað sér heim er fundin heil á húfi. Innlent 12. júní 2023 08:50
Skoðunar- og nagladekkjatrassar í sigti lögreglu Vaktin í gærkvöldi og nótt virðista hafa verið með rólegra móti hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem fór þó eftirför á eftir ökumanni stolinnar bifreiðar. Innlent 12. júní 2023 06:17
Spyr hver beri ábyrgð á bílhræi Kona sem rekur ferðaþjónustufyrirtæki spyr sig hver beri ábyrgð á bílhræi, sem legið hefur í vegkanti í sveitinni síðan á aðfaranótt laugardags. Hún segir vegfarendur um fjölfarinn veginn stöðva við hræið og það valdi þannig slysahættu. Innlent 11. júní 2023 21:59
Þrír handteknir af sérsveit í morgunsárið Í umdæmi lögreglustöðvarinnar á Vínlandsleið í Reykjavík var tilkynnt um hnífstungu í morgunsárið. Sá sem fyrir árásinni varð náði að koma sér sjálfur út úr íbúðinni, þar sem hún var framin, og óskaði eftir aðstoð. Innlent 11. júní 2023 19:09
Komst undan lögreglu á hlaupum Lögregluþjónar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ætluðu í gærkvöldi að hafa afskipti af ökumanni bíls í miðbænum. Sá komst undan lögreglu en bíllinn fannst mannlaus í lausagangi. Vegfarandi benti lögreglu á að ökumaðurinn hefði hlaupið inn í garð þar skammt frá og komist undan. Innlent 11. júní 2023 07:36
Lýst eftir 46 ára karlmanni í tengslum við rannsókn lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Krzystof Dariusz Krzeminski, 46 ára, vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Innlent 10. júní 2023 14:56
Íslendingur ákærður fyrir líkamsárás og rán í Danmörku 33 ára Íslendingur var handtekinn vegna líkamsárásar og ráns í dönsku borginni Hróarskeldu þann 8. júní síðastliðinn. Innlent 10. júní 2023 13:43
Maður handtekinn vegna hótana Maður var vistaður í fangageymslu lögreglunnar í nótt vegna hótana. Talið er að hann hafi verið vopnaður. Fréttir 10. júní 2023 10:10
Borgari elti uppi stút á stolnum bíl Í dag barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann í annarlegu ástandi ganga á milli bíla og reyna að komast inn í þá. Svo fór að hann komst inn í bíl einn og ók af stað, þrátt fyrir ástand sitt. Sá sem tilkynnti elti manninn þar til lögregla náði að stöðva för hans. Innlent 9. júní 2023 17:34
Reyndi ítrekað að flýja land: „I think I killed her“ Demetrius Allen, bandarískur karlmaður sem spilað hefur amerískan fótbolta hér á landi, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun. Allen kynntist brotaþola, íslenskri konu, á Tinder tíu dögum fyrir brotið og reyndi ítrekað að flýja land í kjölfarið. Innlent 9. júní 2023 14:48
Rannsókn á Vítalíu fyrir fjárkúgun felld niður Héraðssaksóknari hefur fellt niður rannsókn sína á Vítalíu Lazarevu og Arnari Grant fyrir tilraun til fjárkúgunar. Vítalía fagnar niðurstöðunni sem sé staðfesting á því að um þöggunartilburði hafi verið að ræða af hálfu þriggja karlmanna í viðskiptalífinu. Innlent 9. júní 2023 13:01
Ný ákæra í hryðjuverkamálinu Héraðssaksóknari hefur ákveðið að gefa út nýja ákæru í hryðjuverkamálinu svokallaða, þar sem tveir menn voru grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Fyrri ákæru var vísað frá dómi, bæði í héraði og fyrir Landsrétti. Innlent 9. júní 2023 09:58
Slagsmál, „blæðandi“ einstaklingar og yfir hundrað notaðar sprautunálar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur útköllum í gær þar sem tilkynnt var um „blæðandi“ einstaklinga. Í öðru tilvikinu hafði einstaklingur verið stunginn með hníf og var hann fluttur á bráðamóttöku en gerandinn handtekinn. Innlent 9. júní 2023 06:42