Handtekinn grunaður um stunguárás í miðborginni Lögreglan handtók í gærkvöldi einstakling sem grunaður er um að hafa stungið annan með hnífi í miðborg Reykjavíkur. Innlent 25. ágúst 2024 06:23
Alvarleg líkamsárás í miðborginni Mikill viðbúnaður lögreglu og slökkviliðs var í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í kvöld. Samkvæmt heimildum fréttastofu var það vegna alvarlegrar líkamsárásar. Innlent 25. ágúst 2024 00:31
Lögregla hafði afskipti af „ungum jedi-riddara“ sem skelfdi vegfarendur Lögregla hafði afskipti af „ungum jedi-riddara“ við æfingar með geislasverð á gangstétt í Reykjavík þar sem æfingar hans voru að skelfa gangandi vegfarendur. Lögregla ræddi við manninn og hann lofaði að finna æfingum sínum betri stað. Innlent 24. ágúst 2024 17:26
Kviknaði í rútu við akstur á Ólafsfjarðarvegi Ólafsvegi, norðan við Hvamm, hefur verið lokað tímabundið eftir að eldur kom upp í rútu. Lukkulega var ökumaðurinn einn í ökutækinu þegar að eldur kom upp og náði að koma sér undan ómeiddur. Innlent 24. ágúst 2024 16:13
Húsbíll valt í hvassviðri í Kömbunum Þrír sluppu ómeiddir þegar húsbíll valt og hafnaði utan þjóðvegarins ofarlega í Kömbunum í kvöld. Gul viðvörun vegna hvassviðris tók gildi á Suðurlandi klukkan níu og segir aðalvarðstjóri hjá lögreglunni ekki stætt á Hellisheiði. Innlent 23. ágúst 2024 22:33
Ók fram af kanti og lenti ofan á þaki á öðrum bíl Engan sakaði þegar ökumaður ók fram af háum kanti í bílastæði þannig að bíll hans hafnaði ofan á þakinu á annarri bifreið sem var lagt fyrir neðan. Töluverðar skemmdir urðu aftur á móti báðum bílum. Innlent 23. ágúst 2024 17:23
Skoða kreditkortagögn og rannsaka tengsl grunaða við hjónin Tengsl voru milli hins grunaða og eldri hjóna sem fundust látin á Neskaupstað í gær. Notast er við gögn um kreditkortanotkun og ferðir hins grunaða til að reyna að ná utan um atburðarásina. Innlent 23. ágúst 2024 16:00
Úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. ágúst Fallist hefur verið á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um gæsluvarðhald og einangrun til 30. ágúst yfir manni sem handtekinn var í tengslum við andlát hjóna á Neskaupstað. Krafan var tekin fyrir í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 23. ágúst 2024 13:45
Fótbrotnaði í nótt á leið að gosstöðvum Lögeglan á Suðurnesjum sinnti í nótt útkalli vegna manns sem hafði lagt af stað að upptökum eldgossins frá Reykjanesbraut og fótbrotnaði í gjótu. Innlent 23. ágúst 2024 13:30
Rannsókn miðar vel og gæsluvarðhaldskrafa lögð fram í dag Lögregla segir rannsókn máls hjóna sem fundust látin í Neskaupstað í gær miða vel. Maður var handtekinn í Reykjavík í gær og verður krafa um gæsluvarðhald yfir honum lögð fram síðar í dag. Krafan verður gerð fyrir héraðsdómi Reykjavíkur Innlent 23. ágúst 2024 10:19
Sá grunaði tengist hjónunum ekki fjölskylduböndum Yfirlögregluþjónn segir manninn sem handtekinn var í dag í Reykjavík ekki tengjast hjónunum sem fundust látin í Neskaupsstað fjölskylduböndum. Aðeins einn liggur undir grun og eru sterkar vísbendingar um að hann tengist málinu. Innlent 22. ágúst 2024 18:28
Velti bíl sínum með lögregluna á hælunum á Reykjanesbraut Karlmaður á þrítugsaldri var fluttur á slysadeild í Reykjavík eftir að hann velti bíl sínum á flótta undan lögreglunni á Reykjanesbraut nú síðdegis. Bíllinn valt yfir vegrið á milli akreina. Innlent 22. ágúst 2024 17:57
„Aldrei verið eins mikilvægt að standa saman“ Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar segir aldrei hafa verið eins mikilvægt og núna að Norðfirðingar og Íslendingar allir standi saman og styðji hvert annað. Innlent 22. ágúst 2024 16:47
Maðurinn handtekinn eftir að honum var veitt eftirför Viðbúnaður lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra á Snorrabraut í dag þar sem maður var handtekinn tengist atburði í Neskaupstað þar sem tveir fundust látnir í heimahúsi í nótt. Innlent 22. ágúst 2024 16:24
Rólegri eftir fregnir af syninum Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segist rólegri um sinn eftir að hafa fengið fregnir af afdrifum sonar síns. Alþjóðalögreglan Interpol lýsti eftir Þóri Kolka Ásgeirssyni eftir að fjölskyldan leitaði til lögreglu en þá hafði hún ekki heyrt frá honum í nokkrun tíma. Innlent 22. ágúst 2024 15:45
Tvennt látið í Neskaupstað og einn handtekinn Lögreglan á Austurlandi rannsakar nú alvarlegt atvik í heimahúsi í Norðfirði. Eldri hjón voru úrskurðuð látin og einn handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. Innlent 22. ágúst 2024 15:23
Sjö slasaðir vegfarendur á sex dögum á höfuðborgarsvæðinu Í síðustu viku slösuðust sjö vegfarendur í sex umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Alls var tilkynnt um 33 umferðaróhöpp í umdæminu. Innlent 22. ágúst 2024 13:19
Ekki spurst til Þóris síðan í júlí Alþjóðalögreglan Interpol hefur auglýst á vef sínum eftir Þóri Kolka Ásgeirssyni, 24 ára Íslendingi. Að sögn lögreglu hefur ekki spurst til Þóris frá 27. júlí síðastliðnum. Innlent 22. ágúst 2024 10:19
Rústaði heimahúsi og beit lögreglumann Karlmaður var handtekinn eftir að lögregla kom að honum að „rústa heimahúsi“ eins og það er orðað í tilkynningu lögreglunnar. Innlent 22. ágúst 2024 06:54
Fær Amsterdam-reiðuféð ekki til baka frá lögreglu Landsréttur hefur hafnað kröfu manns um afhendingu reiðufjár upp á sex þúsund evrur, sem lögregla lagði hald á í Leifsstöð. Peninginn hafði maðurinn meðferðis á leið til Amsterdam með félögunum. Innlent 21. ágúst 2024 13:38
Eitrað fyrir ketti í Sandgerði Rétt rúmlega eins árs gamall köttur drapst í Sandgerði fyrir tveimur vikum eftir að hafa innbyrt mikið magn frostlagar. Talið er að eitrað hafi verið fyrir kettinum. Innlent 21. ágúst 2024 12:26
Faraldur innbrota í hjólreiðabúðir Fjölmörg innbrot í hjólabúðir hafa verið gerð undanfarnar vikur og mánuði. Þjófar virðast samt hafa lítið upp úr innbrotunum. Innlent 21. ágúst 2024 11:27
Þrír handteknir eftir tilraun til að rukka skuld með ofbeldi Lögregla var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna átaka í heimahúsi en í ljós kom að þar höfðu þrír einstaklingar komið að til að rukka skuld með ofbeldi. Innlent 21. ágúst 2024 06:23
Ökumaður stöðvaður á nagladekkjum og fékk engan afslátt Ökumaður var stöðvaður í Reykjavík í dag þar sem bifreið hans var á nagladekkjum. Í dagbók lögreglunnar segir að ökumaðurinn hafi reynt að nota allar bestu afsakanirnar í bransanum, en lögreglumennirnir hafi engan afslátt gefið, þar sem þeir væru ekki fæddir í gær. Innlent 20. ágúst 2024 17:40
Lést af völdum voðaskots á gæsaveiðum Karlmaðurinn sem lést í alvarlegu slysi nærri Hálslóni miðlunarlóni Kárahnjúkavirkjunar norðan Vatnajökuls í morgun var íslenskur karlmaður á fertugsaldri. Hann var ásamt fleirum á gæsaveiðum og lést af völdum voðaskots. Innlent 20. ágúst 2024 15:21
Hnífi beitt í árás í Skeifunni Tveir voru í dag handteknir grunaðir um að hafa sært annan mann með hnífi á bílastæði í Skeifunni. Maðurinn er ekki með lífshættulega áverka en var fluttur á slysadeild. Innlent 20. ágúst 2024 15:17
Lögregla leitar manna vegna ráns í Skeifunni Lögregla leitar nú manna vegna ráns í Skeifunni í morgun. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar vegna ránsins. Innlent 20. ágúst 2024 12:14
Lést í slysi við Hálslón Einn lést í alvarlegu slysi við Hálslón norðan Vatnajökuls. Lögreglu barst tilkynning um slysið laust fyrir klukkan átta í morgun. Innlent 20. ágúst 2024 12:01
Netþrjótar þykjast vera frá Strætó Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varað netverja við netsvindli þar sem óprúttnir aðilar þykjast vera frá Strætó og séu að gefa ókeypis kort í almenningssamgöngur. Fólk er hvatt til að vera á varðbergi gagnvart svindlinu og öðrum álíka. Innlent 20. ágúst 2024 10:41
Fengu ábendingu um Guðlaug, Halldór og Svedda Tönn Lögreglu grunar að Guðlaugur Agnar Guðmundsson, Halldór Margeir Ólafsson og Sverrir Þór Gunnarsson séu lykilmenn í stóra kókaínmálinu sem nú er til aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Enginn þeirra hefur þó verið ákærður í málinu. Innlent 20. ágúst 2024 09:00