Lægsti stuðullinn á Katrínu Á veðmálasíðu Betsson er veðjað um allt milli himins og jarðar og auðvitað eru komandi forsetakosningar undir. Innlent 16. apríl 2024 15:32
Þorði loks á 22, gekk að Felix og sagði hæ Stjórnmálafræðiprófessorinn Baldur Þórhallsson vill verða næsti forseti Íslands en hann og Felix Bergsson hafa eftir mikla umhugsun með fjölskyldunni tekið þessa ákvörðun. Lífið 16. apríl 2024 14:07
Halla Hrund tvö- til þrefaldar fylgi sitt Halla Hrund Logadóttir tvö til þrefaldar fylgi sitt milli kannana á fylgi forsetaframbjóðenda og virðist helst höggva í fylgi Katrínar Jakobsdóttur. Enn er þó ómarktækur munur á fylgi Katrínar og Baldurs Þórhallssonar samkvæmt könnun Prósents fyrir Morgunblaðið sem birt var í dag. Innlent 15. apríl 2024 19:20
Baldur og Katrín halda forystunni Þrír frambjóðendur til embættis forseta Íslands eiga fremur öðrum möguleika á að ná kjöri samkvæmt þremur könnunum sem gerðar hafa verið að undanförnu. Katrín Jakobsdóttir hefur mælst með mest fylgi í tveimur þeirra en Baldur Þórhallsson í þeirri þriðju og nýjustu. Innlent 15. apríl 2024 12:32
Lykilfólkið á bak við tjöldin hjá forsetaefnunum Kanónur sem hafa áralanga reynslu af kosningabaráttum í bland við vini og fjölskyldu er uppistaða lykilfólks að baki forsetaframbjóðendum þetta árið. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum forsetaframboða til Vísis. Lífið 15. apríl 2024 11:00
Hélt fram á síðasta dag að framboð Katrínar væri della Jón Gnarr segir nýjar dyr hafa opnast í lífi sínu þegar hann uppgötvaði leiklist. Jón, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segir að fram að því hafi hann verið orðinn úrkula vonar um að eitthvað yrði úr honum og að hann gæti yfir höfuð gert eitthvað af viti í lífinu. Hann lét framboð Katrínar Jakobsdóttur til forseta pirra sig. Lífið 15. apríl 2024 07:01
Baldur með forskot á Katrínu í nýjustu skoðanakönnuninni Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, nýtur mests stuðnings frambjóðenda til forseta Íslands samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Prósent framkvæmdi fyrir Morgunblaðið. Innlent 15. apríl 2024 06:40
Bein útsending: Fer yfir hennar sýn á hlutverk forseta Halla Hrund Logadóttir, forsetaframbjóðandi, ætlar í dag að fara yfir hvers vegna hún býður sig fram og hver hennar sýn er á hlutverk forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi. Innlent 14. apríl 2024 15:31
Harðari orðræða um útlendinga stilli VG upp við vegg Harðari orðræða formanns Sjálfstæðisflokksins í garð útlendinga, sér í lagi hælisleitenda, stillir Vinstri grænum upp við vegg. Þetta segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor að loknum opnum fundi Sjálfstæðisflokksins í kjölfar hrókeringa innan ríkisstjórnar. Innlent 13. apríl 2024 20:05
Eldri kjósendur hallast að Katrínu Litlu munar á fylgi forsetaframbjóðendanna Katrínar Jakobsdóttur og Baldurs Þórhallssonar samkvæmt nýrri könnun. Prófessor í stjórnmálafræði segir geta skipt sköpum að kjósendahópur Katrínar sé líklegri til að mæta á kjörstað þar sem um eldra fólk sé að ræða. Innlent 13. apríl 2024 11:32
Mjótt á munum á milli Katrínar og Baldurs Lítill munur er á fylgi Katrínar Jakobsdóttur og Baldurs Þórhallssonar í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup um fylgi forsetaframbjóðenda. Innlent 13. apríl 2024 07:52
Sara Lind settur orkumálastjóri í kosningabaráttunni Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur nú sett Söru Lind Guðbergsdóttur tímabundið í embætti orkumálastjóra fram til 2. júní. 2024. Þetta er gert vegna óskar Höllu Hrundar Logadóttur um að taka sér tímabundið leyfi frá embætti vegna framboðs síns til embættis forseta Íslands. Innlent 12. apríl 2024 13:15
Herskátt myndband Ástþórs vekur athygli Nú er tekið að hitna í baráttunni um Bessastaði og ljóst að Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi ætlar ekki að hverfa úr þeirri baráttu hægt og hljótt. Óhætt er að segja að nýtt myndband Ástþórs hafi vakið athygli þar sem tónlist Hatara hljómar undir í ósátt hljómsveitarinnar. Innlent 12. apríl 2024 09:00
Katrín afsalar sér biðlaunum á meðan forsetaslag stendur Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi forsetaframbjóðandi, hefur ákveðið að afsala sér biðlaunum sínum sem forsætisráðherra á meðan hún er í kosningabaráttu. Bergþóra Benediktsdóttir, kosningastjóri hennar, gerir það líka en hún starfaði sem aðstoðarmaður Katrínar á meðan hún var forsætisráðherra. Innlent 12. apríl 2024 08:55
Landskjörstjórn tekur við framboðum í Hörpu þann 26. apríl Landskjörstjórn mun koma saman til fundar og taka á móti framboðum til forseta Íslands frá klukkan 10 til 12 föstudaginn 26. apríl næstkomandi, í fundarherberginu Stemmu í Hörpu. Innlent 12. apríl 2024 08:49
Guðbergur býður sig fram og hyggst nýta embættið betur Guðbergur Guðbergsson, fasteignasali og fyrrum áhættuleikari, býður sig fram til embættis forseta Íslands. Hann segir embættið vannýtt og hyggst beita því til að koma í veg fyrir einkavæðingu raforkuinnviða. Innlent 11. apríl 2024 20:38
Framboð Katrínar tekur á sig mynd Aðstoðarkona Katrínar Jakobsdóttir þegar hún var forsætisráðherra verður kosningastjóri forsetaframboðs hennar sem er nú byrjað að taka á sig mynd. Kosningastjóri Vinstri grænna í Reykjavík í síðustu þingkosningum verður samskiptastjóri framboðsins. Innlent 11. apríl 2024 17:57
Kveðjugjöf Katrínar Það er hefð fyrir þvi á vinnustöðum landsins að gefa kveðjugjöf þegar aðili sem staðið hefur vaktina í lengri tíma kveður, hvort sem við taka eftirlaun eða nýjar áskoranir á nýjum vinnustað. Í síðustu viku tilkynnti Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra til rúmlega sex ára og formaður Vinstri Grænna, um framboð sitt til embættis forseta Íslands. Skoðun 11. apríl 2024 17:01
Ávarpaði þjóðina vegna „breyttrar stöðu“ Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi og bílainnflytjandi, birti ávarp á samfélagsmiðlum í kvöld þar sem hann sagði styrjöld hafna milli Íslands og Rússlands. Hann segist hafa í aðdraganda forsetakosninganna 2016 varað við að slíkt væri yfirvofandi. Innlent 10. apríl 2024 16:47
Katrín miklu fljótari en Baldur og Jón Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi, opnaði fyrir meðmælasöfnun á Íslandi.is klukkan 13. Klukkan 13:54 hafði hún náð tilskildum fjölda meðmæla. Hún var því tæpum klukkutíma fljótari að ná lágmarkinu en þeir Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr. Innlent 10. apríl 2024 14:51
Katrín opnar fyrir undirskriftir Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, er númer 74 á lista yfir þá sem nú safna meðmælendum vegna fyrirhugaðra forsetakosninga. Innlent 10. apríl 2024 13:10
Besti flokkurinn út fyrir Jón forseta Jón Gnarr hefur breytt Facebook síðu Besta flokksins í framboðssíðu fyrir forsetakosningar. Síðan ber nú nafnið „Jón forseti 2024“ í stað „Besti flokkurinn.“ Innlent 10. apríl 2024 12:48
Helga vonar að allir gæti að persónuverndarlögum Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi, og forstjóri Persónuverndar, lét ekki segja sér það tvisvar að láta rannsaka framboð sitt að teknu tilliti til persónuverndarákvæða. Innlent 10. apríl 2024 10:35
Dvölin í Búlgaríu dýrmæt reynsla á Bessastöðum Ásdís Rán Gunnarsdóttir forsetaframbjóðandi, einnig þekkt sem ísdrottningin, segir dvöl sína í Búlgaríu hafa veitt henni dýrmæta reynslu í landkynningum. Hún hafi starfað sem eins konar heiðursráðsmaður Íslands þar úti og telur að það hafi þjálfað hana vel til að gegna embætti forseta. Innlent 9. apríl 2024 22:39
Katrín á leið í „óvissuferð“ Katrín Jakobsdóttir fráfarandi forsætisráðherra gekk út af ríkisráðsfundi eftir að hafa verið í ríkisstjórn með hléum frá árinu 2009. Hún segir tilfinninguna stórkostlega og að hún sé alsæl við að fara í það sem hún kallar „dálitla óvissuferð.“ Innlent 9. apríl 2024 20:36
Ávarp Guðna: Greinamunur á að vera skráður á Ísland.is og vera í framboði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ávarpaði fjölmiðla að loknum fyrri ríkisráðsfundi af tveimur sem fara fram á Bessastöðum í kvöld. Innlent 9. apríl 2024 20:28
Sverðin slíðruð í orku, útlendinga- og lögreglumálum Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir endurnýjaða ríkisstjórn ætla að fara að krafti í orkumálin og aðlaga útlendingalöggjöfina að því sem þekkist á Norðurlöndunum. Bjarni og ráðherrar í ráðuneyti hans voru settir í embætti á ríkisráðsfundi á Bessastöðum sem hófst klukkan sjö í kvöld. Innlent 9. apríl 2024 19:20
Forstjóri Persónuverndar brýtur persónuverndarákvæði Forstjóri Persónuverndar er með Facebook-auglýsingu þar sem flest persónuverndarákvæði sem hugsast getur eru brotin. Innlent 9. apríl 2024 16:03
Vaktin: Ný ríkisstjórn tekur við í kvöld Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Guðmundur Ingi Guðbrandsson kynntu nýja ríkisstjórn og áherslumál hennar á blaðamannafundi í Hörpu í dag. Innlent 9. apríl 2024 08:40
Bjarni forsætisráðherra og Sigurður Ingi fjármálaráðherra? Rætt hefur verið að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verði forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn og að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins verði fjármálaráðherra. Innlent 9. apríl 2024 06:17