Segja baráttuna bara rétt að hefjast Þær Helga Þórisdóttir og Ásdís Rán Gunnarsdóttir, forsetaframbjóðendur, segja kosningabaráttuna rétt að byrja og þær muni láta ljós þeirra skína. Ásdís er nýbúin að safna nægilega mörgum undirskriftum og Helga segist á lokametrunum með það. Innlent 22. apríl 2024 22:47
Katrín og Baldur takast enn á um forystuna Flestir ætla að kjósa Katrínu Jakobsdóttur og Baldur Þórhallsson samkvæmt fimm skoðanakönnunum sem birtar hafa verið síðast liðinn hálfan mánuð. Halla Hrund Logadóttir er farin að narta í hælana á Jóni Gnarr í þriðja sætinu. Innlent 22. apríl 2024 19:41
Katrín, Halla og Steinunn Ólína mætast í Pallborðinu Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að bjóða til sín forsetaframbjóðendum í Pallborðið, sem sýnt er í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi. Innlent 22. apríl 2024 19:00
Halla telur langt í að fólk sé búið að ákveða sig Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var á ferð um Suðurnes þegar Vísir náði í hana. Hún var að ganga inn á kosningafund á Hótel Keflavík. Hún sagði viðtökurnar á Suðurnesjum slíkar að ef væri miðað við þær væri hún með miklu meira fylgi en menn almennt ætla. Innlent 22. apríl 2024 17:18
Ásdís Rán búin að safna undirskriftum Ásdís Rán Gunnarsdóttir, einnig þekkt sem Ísdrottningin, hefur safnað tilskildum fjölda undirskrifta til þess að geta formlega boðið sig fram til forseta. Innlent 22. apríl 2024 15:47
Andleg heilsa unga fólksins og áhrif samfélagsmiðla Fyrir nokkrum árum hringdi dóttir mín í mig, þá á fyrsta ári í háskólanámi og sagði mér að hún hygðist skipta um námsbraut. Hún ætlaði að læra sálfræði því átta af hverjum tíu vinum hennar væru að kljást við kvíða, þunglyndi og aðrar áskoranir hvað varðaði andlega heilsu. Skoðun 22. apríl 2024 15:01
Skerjafjarðarskáldið segir Höllu Hrund eina með öllu Kristján Hreinsson skáld er einn eindregnasti stuðningsmaður Höllu Hrundar Logadóttur í baráttunni um Bessastaði og hann virkjar skáldagáfu sína henni til dýrðar. Innlent 22. apríl 2024 13:31
Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi skýtur föstum skotum á Katrínu Jakobsdóttur meðframbjóðanda sinn í nýjum pistil. Innlent 22. apríl 2024 13:16
Þegar enginn heldur utan um þig Í réttnefndu velferðarsamfélagi þurfa stjórnmálaflokkar að sameinast um að tryggja velferð alls fólks sem í samfélaginu býr. Á undanförnum áratug hafa hagsmunir landsmanna ekki verið valdhöfum ofarlega í huga. Skoðun 22. apríl 2024 13:00
Öryggi – Forvitni – Gleði Á fimmtugsafmælisdeginum mínum, 12. janúar 2024, steig ég skref út í óvissuna og tilkynnti forsetaframboð. Þar sem ég hef aldrei verið í pólitík, en oft spurð hvort ég hafi áhuga á því, var ég búin að kynna mér hvernig framboð eru framkvæmd. Skoðun 22. apríl 2024 12:31
Stefnir í spennandi forsetakosningar Halla Hrund Logadóttir bætir við sig miklu fylgi samkvæmt nýrri könnun Prósents fyrir Morgunblaðið þar sem Baldur Þórhallsson nýtur mest fylgis. Stjórnmálafræðingur segir hægt að lesa það eitt út úr könnunum undanfarnar vikur að forsetakosningarnar verði mjög spennandi. Innlent 22. apríl 2024 12:25
Vaknaði í angist alla morgna Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir segist á mjög friðsælum og góðum stað í lífinu, eftir áraraðir af kvíða áhyggjum og áfallastreitu. Steinunn, sem er gestur í nýjasta þætti af podcasti Sölva Tryggvasonar, segist hafa lært að dómharka sé tilgangslaus og að þjáning sé eðlilegur hluti af tilverunni. Lífið 22. apríl 2024 11:31
Baldur fremstur í nýrri könnun og Halla Hrund skákar Jóni Baldur Þórhallsson mælist með mest fylgi í nýrri könnun Prósents, eða 27,2 prósent. Katrín Jakobsdóttir mælist með 23,8 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 18 prósent. Innlent 22. apríl 2024 06:33
Kjaftasögur koma á yfirborðið fyrir kosningar Kjaftasögur – sannar eða lognar – geta haft áhrif á komandi kosningar og hafa reglulega komið á kreik í kringum forsetakosningar. Innlent 21. apríl 2024 22:42
Þess vegna mun ég kjósa Katrínu Vegna þess að hún yrði góður forseti og þar sem Kata er þar er skemmtilegt. Hún er eldklár, hrikalega dugleg, með góða nærveru og ákveðnar skoðanir en samt ávallt tilbúin til þess að hlusta. Hún hefur alltaf málefni kvenna og minnihlutahópa í huga i öllu sem hún fæst við og kemur því ákveðið að í ræðu eins oft og mögulegt er. Skoðun 21. apríl 2024 22:00
Ásdís á „innan við hundrað“ undirskriftir eftir Undirskriftasöfnun forsetaframbjóðendanna Helgu Þórisdóttur og Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur virðist ganga vel en þær segjast báðar vera á lokametrunum í söfnuninni. Sigríður Hrund Pétursdóttir kveðst ekki ætla að kíkja á stöðu söfnunar sinnar fyrr en á morgun. Innlent 21. apríl 2024 10:49
Blöskrar fordómafull ummæli um pabba sinn Álfrún Perla Baldursdóttir, dóttir Baldurs Þórhallssonar forsetaframbjóðanda, segir að sér hafi blöskrað ummæli og almenn leiðindi byggð á fordómum í kosningabaráttunni. Þetta segir Áfrún í pistli á Facebook. Innlent 20. apríl 2024 19:14
Fyrirliði Íslands Fátt sameinar okkur Íslendinga meira, í gleði og sorg, en að fylgjast með og styðja íþróttafólkið okkar á stórmótum á alþjóðavettvangi. Við vitum hvað þau hafa lagt ótrúlega mikið á sig til að ná í fremstu röð. Við erum stolt af þeim sem einstaklingum en kannski ekki síður sem Íslendingum því þau eru glæsilegir fulltrúar litla Íslands á stóra sviðinu. Skoðun 20. apríl 2024 10:30
Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi sagðist ekki vilja tjá sig um Katrínu Jakobsdóttur, sem einnig gefur kost á sér til embættisins, þegar hún væri ekki viðstödd. Jón Gnarr, sem er líka að bjóða sig fram, segir smá meðvirkni í því að tjá sig ekki um aðra frambjóðendur þegar þeir gætu alveg verið á staðnum. Innlent 20. apríl 2024 10:11
Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Halla Hrund Logadóttir, Baldur Þórhallsson, og Jón Gnarr, forsetaframbjóðendur voru spurð í Pallborðinu á Vísi í dag út í það hvern þau myndu kjósa til embættis forseta Íslands ef þau væru ekki sjálf í framboði. Halla benti á að það væri einkamál hvers og eins hvern maður kysi. Innlent 19. apríl 2024 21:01
Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi telur að allir sem sækist eftir embættinu megi búast við því að skrökvað verði um sig. Facebook-síðan Bessastaðabaráttan, sem nú hefur verið tekin niður, hélt úti rætinni herferð gegn Baldri. Innlent 19. apríl 2024 14:18
Um sjálfstæði þjóðar Forsetakosningar á Íslandi eru nú pólitískari en áður hefur þekkst. Skoðun 19. apríl 2024 13:36
Átta forsetaefni klár með listana Erfiðara hefur reynst en margur vildi ætla að safna undirskriftum en farið var að ræða stjórnarskrárbreytingar af því tilefni. Það er bara alls ekki eins einfalt og ætla mætti. En eftir því sem Vísir kemst næst eru átta forsetaefni komin með tilskildar undirskriftir. Innlent 19. apríl 2024 13:20
Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Forsetaframbjóðendurnir Baldur Þórhallsson stjórnmálaprófessor, Jón Gnarr listamaður og Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri verða gestir Pallborðsins í dag, þar sem til umræðu verða niðurstöður skoðanakannana og fyrstu vikur kosningabaráttunnar. Þátturinn er í beinni útsendingu og lifandi textalýsingu. Innlent 19. apríl 2024 11:10
Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi kallar eftir stuðningi landsmanna. Helga segist jarðtengd, hún viti að vonin sé ekki mikil en hún er ekki tilbúin að henda inn handklæðinu alveg strax. Innlent 19. apríl 2024 09:58
Katrín á toppnum um allt land Katrín Jakobsdóttir er með nokkuð örugga forystu meðal frambjóðenda til embættis forseta Íslands samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Innlent 18. apríl 2024 21:01
Forsetaframbjóðendur í Pallborðinu klukkan 13 á morgun Forsetaframbjóðendurnir Baldur Þórhallsson stjórnmálaprófessor, Jón Gnarr listamaður og Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri verða gestir Pallborðsins á morgun, þar sem til umræðu verða niðurstöður skoðanakannana og fyrstu vikur kosningabaráttunnar. Innlent 18. apríl 2024 12:06
Katrín leiðir og hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, mælist með 31,4 prósent stuðning í nýrri skoðanakönnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þar sem spurt var hvern fólk vildi sjá sem næsta forseta Íslands. Hún hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor sem nú mælist með 24 prósent fylgi. Innlent 18. apríl 2024 09:31
Monica Lewinsky fór flatt á því að segja satt Jón Gnarr hefur hrist upp í annars áferðarfallegum forsetakosningum. Helst ber á nöldri um hversu margir eru að sækjast eftir undirskriftum – þeir eru 81 þegar þetta er skrifað – en annars er kurteisin í fyrirrúmi. Þar til nú. Innlent 17. apríl 2024 12:00
Stuðningur úr óvæntri átt „Ég trúði þessu ekki og hélt fram á síðasta dag að þetta væri della. Ég gaf þessu ekki neinn séns og þetta pirraði mig í raun og veru. Mér finnst þetta bara skrítið í alla staði. Upplifunin mín er að þetta sé eiginlega ekki sanngjarnt.“ Þetta hafði Vísir.is eftir Jóni Gnarr forsetaframbjóðanda fyrr í vikunni um framboð Katrínar Jakobsdóttur en fréttin var unnin upp úr viðtali í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar. Skoðun 17. apríl 2024 09:00