Sveitarstjórnarkosningar 2026

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttir og greinar tengdar kosningum til sveitarstjórna sem fram fara 16. maí 2026.

Fréttamynd

„Ég elska þennan flug­völl“

Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir er yfirskrift fundar sem hófst nú síðdegis á Hótel Loftleiðum á vegum Flugmálafélags Íslands. Þar voru fulltrúar allra framboða spurðir um afstöðuna sína til flugvallarins.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgar­stjóra en Björgu

Töluvert fleiri vilja sjá Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Vinstrisins sem borgarstjóra en Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu um hug borgarbúa til þess hver oddvitanna eigi að verða borgarstjóri.

Innlent
Fréttamynd

„Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kalda­kol“

Formaður Kennarafélags Reykjavíkur segir að bera þurfi virðingu fyrir fagmennsku kennara í stað þess að segja þeim hvernig þeir eigi að kenna og hvaða aðferðir þeir eigi að nota. Kennarar og skólastjórnendur boðuðu frambjóðendur í Reykjavík á sinn fund í dag þar sem menntamálin voru rædd.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkur eykur for­skotið á Sam­fylkingu í Reykja­vík

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með tíu prósentustiga forskot á Samfylkinguna í nýrri Maskínu-könnun í Reykjavík. Flokkarnir voru nánast jafnir í mars en síðan þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn bætt verulega við sig á sama tíma og Samfylkingin hefur dalað. Vinstrið sækir jafnframt mest fram milli mælinga.

Innlent
Fréttamynd

Gera at­huga­semdir við að borgar­búar kjósi í Kópa­vogi

Borgarráð gerir alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu að bjóða einungis upp á einn stað fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu í komandi sveitarstjórnarkosningum. Aðgengi sé þannig skert verulega á tímum þar sem kjörsókn hafi dregist saman. Borgarbúum stendur aðeins til boða að kjósa í Kópavogi, líkt og öðrum íbúum höfuðborgarsvæðisins.

Innlent
Fréttamynd

Gjör­sam­lega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu

Ólafur Þ. Harðarson og Bogi Ágústsson segja þingmenn bera alla ábyrgð á því hve miklar tafir séu á talningu atkvæða á kjördegi í kosningum hér á landi. Ýmsar breytingar hafi verið lagðar til sem gætu flýtt öllu ferlinu sem þingmenn hafi ekki orðið við. Þá segist Bogi myndu stefna ríkinu og fara með það alla leið hefði hann tök á því til að fá misvægi atkvæða milli kjördæma leiðrétt.

Innlent
Fréttamynd

„Ás­dís, stattu með samgöngusáttmálanum!“

Fulltrúar framboðanna í Kópavogi, næststærsta sveitarfélaginu, sjö talsins, mættust í Pallborði Sýnar í gær og þar skópust fjörugar umræður. Meðal annars var tekist á um hina svokölluðu Reykjavíkur-Grýlu en Kópavogsbúar vilja ekki láta kenna sig við höfuðborgina. „Kópavogsbúar eru stoltir,“ sagði bæjarstjórinn. Oddvitar tveggja stærstu flokkanna voru um fæst sammála.

Innlent
Fréttamynd

Sanna hét áður Díana

Sanna Magdalena Mörtudóttir hét eitt sinn Díana Magdalena Mörtudóttir en ákvað að breyta um nafn. Eitt sinn furðaði kjósandi sig á því að hún kæmi ekki fram undir réttu nafni en í ljós kom að Íslendingabók hafði aldrei uppfært skráningu nafns hennar.

Lífið
Fréttamynd

Setja skýr skil­yrði fyrir meiri­hluta­sam­starfi í Reykja­vík

Samkvæmt nýjustu kosningaspá Vísis er Sjálfstæðisflokkurinn líklegastur til að fá sjö borgarfulltrúa og Samfylkingin sex. Vinstrið mælist áfram þriðji stærsti flokkurinn og gæti fengið þrjá menn, en þar fyrir neðan er hörð barátta um þriðja fulltrúann hjá Viðreisn og Miðflokki. Þorvaldur Davíð Kristjánsson í þriðja sæti Viðreisnar mælist með 46 prósent líkur á kjöri en Lárus Blöndal í þriðja sæti Miðflokksins með 43 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Oddvitaáskorunin: Nína ekki eins mið­aldra

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.

Lífið
Fréttamynd

Úti­loka ekki sam­starf en sjá djúpa gjá í mál­efnunum

Eini tveggja flokka meirihlutinn sem nú blasir við í Reykjavík er meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Hvorugt framboðið vill setja slíkt samstarf fremst á blað, en hvorugt lokar heldur dyrunum alveg. Svör oddvitanna sýna þó að bilið á milli flokkanna er talsvertog snýst ekki síst um leikskóla, samgöngur, húsnæði og sjálfa stefnu borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

„Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“

Í Grímsnes- og Grafningshreppi eiga tæplega 700 manns löghemili. Þar er einnig stærsta sumarbústaðabyggð landsins en á fjórða þúsund frístundahús eru skráð í sveitarfélaginu. Stærsta kosningamálið í hreppnum tengist einmitt frístundahúsum og þar eru ekki allir sammála.

Innlent