Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Félagsskiptaglugginn lokar á þriðjudaginn og eru liðin í ensku úrvalsdeildinni að keppast um að klára leikmannaskipti áður en hann klárast. Margir leikmenn á Englandi eru orðaðir við lið og hefur myndast ákveðin hringrás í leikmannaskiptum. Enski boltinn 30.8.2026 13:15
Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Everton hefur hafnað tilboði Nottingham Forest í unga miðjumanninn Harrison Armstrong. Ástæðan fyrir því er að stuðningsmenn Everton voru brjálaðir yfir því að hann væri að fara. Enski boltinn 30.8.2026 11:31
Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Alisson, markvörður Liverpool, sparkaði í spjald og braut það í bræði sinni eftir 2-2 jafnteflið við Nottingham Forest á Anfield í dag. Mörkin og helstu atvik úr öllum fjórum leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá á Vísi. Enski boltinn 29.8.2026 19:33
Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn 23.8.2026 08:00
Kaupa George frá Chelsea Everton hefur fest kaup á enska kantmanninum Tyrique George frá Chelsea fyrir 18 milljónir punda en kaupverðið kann að hækka í 24 milljónir. George lék sem lánsmaður í Bítlaborginni á síðari hluta síðasta tímabils. Enski boltinn 6. júlí 2026 18:03
Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Enska fótboltafélagið Burnley hefur fengið kröfu sína um skaðabætur frá Everton samþykkta eftir að síðarnefnda félagið braut fjárhagsreglur ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 10. júní 2026 17:30
Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Líða fer að kveðjustund í enska boltanum þennan veturinn. Lokaumferð deildarinnar fer fram á sunnudag þar sem Arsenal mun lyfta langþráðum bikar og annað hvort Tottenham eða West Ham mun falla í B-deildina. Sýn Sport verður með puttann á púlsinum. Enski boltinn 22. maí 2026 11:00
Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn Bruno Fernandes jafnaði stoðsendingamet, Manchester United festi sér 3. sætið og West Ham tók stórt skref í átt að næstefstu deild með tapi gegn Newcastle. Mörkin úr öllum leikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá á Vísi. Enski boltinn 18. maí 2026 09:31
Jafntefli Brentford og tap Brighton gefa Sunderland séns Fjórir leikir fóru fram síðdegis í ensku úrvalsdeildinni en þar misstu Brentford, Everton, Brighton og Fulham af mikilvægum stigum í baráttunni um Evrópusæti. Sunderland blandaði sér hins vegar í þá baráttu. Enski boltinn 17. maí 2026 16:03
Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Ashley Young kvaddi fótboltaferil sinn formlega á samfélagsmiðlum í gær. Þessi fertugi fyrrum leikmaður lauk honum með því að fara upp um deild. Enski boltinn 14. maí 2026 15:01
Mistókst að lyfta sér upp fyrir Liverpool Þremur leikjum er lokið í dag í ensku úrvalsdeildinni og öllum lauk þeim með jafnteflum. Falldraugurinn vofir enn yfir Nottingham Forest og Aston Villa mistókst að gera fjórða sætið að sínu. Enski boltinn 10. maí 2026 15:01
Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Tveir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Örlögin eru úr höndum Manchester City eins og er hvað varðar baráttuna um Englandsmeistaratitilinn eftir sex marka jafntefli liðsins gegn Everton. Sjáðu mörkin úr leikjum gærdagsins hér neðar í fréttinni. Enski boltinn 5. maí 2026 07:02
Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Manchester City fór illa að ráði sínu í titilbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið glutraði niður forystu endaði á því að gera 3-3 jafntefli gegn Everton á útivelli. Arsenal er í bílstjórasætinu, með örlögin í sínum höndum, fyrir lokaumferðir deildarinnar en jöfnunarmark Doku á lokasekúndunum gæti skipt miklu máli. Enski boltinn 4. maí 2026 21:00
Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Dramatíkin var allsráðandi í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Baráttan bæði á toppi og botni deildarinnar virðist ætla að teygja sig allt til loka tímabilsins. Hér neðar í fréttinni má sjá öll mörk gærdagsins, allt það helsta. Enski boltinn 26. apríl 2026 09:00
Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Þrátt fyrir að vinna loks sinn fyrsta deildarleik á árinu 2026 í dag er Tottenham enn í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar. Sigurmark Callums Wilson fyrir West Ham United gegn Everton skyggði á gleði Tottenham-manna. Enski boltinn 25. apríl 2026 16:04
Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Virgil Van Dijk stangaði boltann í netið í uppbótartíma og tryggði Liverpool 1-2 sigur í nágrannaslag gegn Everton í 32. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 19. apríl 2026 12:31
Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði á blaðamannafundi fyrir leik helgarinnar að brotthvarf Liverpool úr Meistaradeildinni gæti hjálpað liðinu í baráttunni um að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni aftur á næsta tímabili. Enski boltinn 19. apríl 2026 07:00
Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi Draumar liða Brentford, Everton og Brighton um Meistaradeildarsæti lifa góðu lífi. Fyrstnefndu liðin tvö skildu jöfn í dag en Brighton vann góðan sigur. Enski boltinn 11. apríl 2026 15:58
Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Everton er komið af fullum þunga í baráttuna um Meistaradeildarsæti eftir frábæran 3-0 sigur á heimavelli gegn Chelsea í kvöld. Beto skoraði tvennu í leiknum. Enski boltinn 21. mars 2026 19:19
Mörkin úr enska: Sextán ára skrifaði söguna með Arsenal Gærdagurinn var sögulegur fyrir Max Dowman og Arsenal. Þessi sextán ára strákur varð yngsti markaskorari sögunnar í ensku úrvalsdeildinni er hann skoraði seinna mark Arsenal í sigri gegn Everton. Toppliðin áttu bæði leik í gær og þá var Anthony Gordon hetja Newcastle gegn Chelsea. Enski boltinn 15. mars 2026 09:33
Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Topplið Arsenal vann dramatískan sigur á Everton er liðin mættust á Emirates leikvanginum í Lundúnum í kvöld. Lokatölur 2-0 sigur Arsenal, bæði mörk leiksins komu á lokamínútum hans. Hinn sextán ára gamli Max Dowman gulltryggði sigurinn og varð þar með yngsti markaskorarinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 14. mars 2026 19:31
Moyes varði Arteta: Efast frekar um þá sem gagnrýna Arsenal David Moyes, stjóri Everton, sparaði ekki hrósið í garð kollega síns hjá Arsenal, Mikels Arteta, fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Enski boltinn 13. mars 2026 14:30
Gleði og sorg í Bítlaborginni í gærkvöldi: Sjáðu mörkin Fjórir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi og það var skorað í þremur þeirra. Nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi. Enski boltinn 4. mars 2026 08:45
Everton tengir saman sigra og Sunderland hafði betur gegn Leeds United Everton og Sunderland unnu sína leiki í 29.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta sem hófst í kvöld. Enski boltinn 3. mars 2026 21:35
Carrick er enn ósigraður og Sesko aftur hetjan Manchester United er komið upp í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 útisigur á Everton í baráttuleik á Hill Dickinson-leikvanginum í kvöld í lokaleik 27. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 23. febrúar 2026 21:55
Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn