Verðlaunaljósmyndari gáttaður á takmörkunum við Grindavík Verðlaunaljósmyndarinn Carsten Peter, sem myndað hefur náttúruhamfarir um heim allan, er staddur á Íslandi til að mynda atburðina á Reykjanesskaga. Hann kveðst gáttaður á skorti á upplýsingum frá íslenskum stjórnvöldum og takmörkunum gegn fjölmiðlum en honum hefur ekki verið hleypt inn til Grindavíkur og fær engin svör frá lögreglu. Innlent 17. nóvember 2023 16:32
„Ástandið er að breytast úr sorg í reiði“ Maður úr Grindavík segir íbúa bæjarins tifandi tímasprengju. Fólki sé að verða ljóst að það sé ekki á leiðinni heim til sín á næstunni og að bankarnir muni ekki koma því til aðstoðar. Innlent 17. nóvember 2023 14:54
Ekki líkamlega erfið verkefni en reyna mjög á andlega Aðgerðarstjóri björgunarsveitarinnar Suðurnes segir verkefnin í Grindavík síðustu daga hafa reynt mikið á björgunarsveitafólk. Verkefnin séu ekki erfið líkamlega en reyni mikið á andlegu hliðina. Hann á von á að ástandið verði viðvarandi næstu mánuðina. Innlent 17. nóvember 2023 13:57
Fyrirtæki sem þiggi stuðning greiði ekki út arð Forsætisráðherra segir að frumvarp um laun til handa Grindvíkingum sé sambærilegt lögum um laun í sóttkví sem notuð voru í heimsfaraldri. Verið sé að kortleggja laust húsnæði. Fyrirtæki sem þiggi stuðning geti ekki greitt út arð nema að þau endurgreiði ríkinu. Innlent 17. nóvember 2023 13:55
Stofnun viðbragðsteymis við vá Samkvæmt almannavarnalögum er það Ríkislögreglustjóri sem fer með málefni almannavarna í umboði ráðherra og lögreglan ber ábyrgð á leitar- og björgunaraðgerðum á landi en óumdeilt er að Slysavarnafélagið Landsbjörg (SL) gegnir lykilhlutverki í öllum vegameiri leitar- og björgunarstörfum hérlendis. Skoðun 17. nóvember 2023 13:01
Starfshópur skipaður til að finna lausnir á húsnæði fyrir Grindvíkinga Innviðaráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að greina og kynna lausnir fyrir húsnæði fyrir Grindvíkinga, með áherslu á uppbyggingu nýrra húsnæðiseininga, vegna afleiðinga náttúruhamfara við Grindavík. Innlent 17. nóvember 2023 12:56
Telur gos ennþá yfirvofandi: Yrði ekki stórt en staðsetning erfið Jarðeðlisfræðingur segir enn líklegustu sviðsmyndina að það muni gjósa á Reykjanesskaga, fyrst kvika streymi enn í kvikuganginn. Þó yrði það gos líklega ekki stórt og meira í líkingu við gos undanfarinna ára. Innlent 17. nóvember 2023 12:12
Enn töluverðar líkur á eldgosi norðan Grindavíkur „Út frá samtúlkun á nýjustu gögnum og útreikningum með líkönum eru áfram eru taldar miklar líkur á eldgosi og mestar líkur eru á að það eigi upptök norðan Grindavíkur nálægt Hagafelli.“ Innlent 17. nóvember 2023 12:10
Gosið í Eyjum 1973: Hittust á Hlemmi til að vita hvar þeir myndu æfa Grindavíkurliðin spila bæði næsta heimaleik sinn í Subway-deildunum í körfubolta í Smáranum í Kópavogi á laugardaginn en það verður ekki spilað í Grindavík á næstunni enda bærinn í miðju umbrotanna á Reykjanesinu. Fótbolti 17. nóvember 2023 12:01
Fyrirtækjum hleypt inn í morgun þrátt fyrir skilaboð um annað „Íbúarnir eru í algjörum forgangi hjá okkur og hafa verið. En síðan erum við með fjöldann allan af fyrirtækjum sem meðal annars eru inni á þessu rauða svæði, á þessu korti sem fór út frá okkur áðan, og þetta er bara svo svakalega stórt og umfangið svo mikið.“ Innlent 17. nóvember 2023 10:55
Haraldur telur flekahreyfingar en ekki kviku orsaka umbrotin Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur telur flekahreyfingar orsök umbrotanna á Reykjanesskaga. Hann segir kviku, sem kunni að vera að gutla á um eins kílómetra dýpi í kvikuganginum, sennilega ekki nægjanlega til að valda eldgosi. Innlent 17. nóvember 2023 09:49
Gæti kvikugangur leitað undir Reykjanesbæ? Grindavík liggur innan sprungusveims og sprungusveimur eldstöðvarkerfis Krýsuvíkur liggur um austustu úthverfi Reykjavíkur, Kópavogs og Garðabæjar. Reykjanesbær liggur hins vegar utan sprungusveima. Innlent 17. nóvember 2023 09:44
Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Hagfræðideild Landsbankans spáir því að Seðlabankinn muni halda stýrivöxtum óbreyttum á vaxtaákvörðunardegi næstkomandi miðvikudag. Stýrivextir eru nú 9,25 prósent, en peningastefnunefnd ákvað síðast að halda vöxtunum óbreyttum. Viðskipti innlent 17. nóvember 2023 08:28
Íbúar níutíu heimila fá að fara inn frá klukkan níu Líkt og í gær er búið að hafa samband við þá íbúa sem fá að fara heim til Grindavíkur í dag. Þeir einir fá að fara sem aðgerðastjórnin í Reykjanesbæ hefur haft samband við. Innlent 17. nóvember 2023 08:00
Vaktin: Nýtt kerfi fyrir Grindvíkinga Um 1400 jarðskjálftar hafa mælst við kvikuganginn á Reykjanesinu frá miðnætti. Mest er um smáskjálfta undir 1 að stærð, en í morgun kl. 6.35 mældist skjálfti við Hagafell sem var 3.0 að stærð. Innlent 17. nóvember 2023 06:34
„Sveiattan við því að gera ekki betur en þetta“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins fór ófögrum orðum um fjármálageirann og lífeyrissjóðina í Reykjavík síðdegis í dag fyrir skort þeirra á stuðningi við Grindvíkinga. Innlent 16. nóvember 2023 23:44
Börnin frá Grindavík Í nígerískum málshætti segir: „Það þarf heilt þorp til að ala upp barn“. Í flestum samfélögum Afríku er til hugtakið Ubuntu sem þýðir ýmist mennska, mannleg reisn, samhjálp eða samfélag og þessi málsháttur er sprottinn úr þeim hugsunarhætti. Skoðun 16. nóvember 2023 22:40
Drónamyndband sýnir eyðilegginguna í Grindavík Myndefni úr dróna sem var flogið yfir Grindavík í dag sýnir eyðilegginguna á bænum úr lofti. Innlent 16. nóvember 2023 21:19
Kvikugasið staðfesti að kvikan liggi grunnt Benedikt Gunnar Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur, segir að kvikugasið sem mældist í borholu í Svartsengi staðfesti að kvika sé staðsett grunnt austan við Þorbjörn. Innlent 16. nóvember 2023 19:36
Eyjakona í Grindavík búin að flýja ógn jarðelds í annað sinn á ævinni Kona úr Vestmannaeyjum sem settist að í Grindavík eftir að hafa flúið Heimaeyjargosið fyrir hálfri öld hefur núna upplifað það í annað sinn á ævinni að flýja undan ógn jarðelds. Hún segir ómetanlegt að sjá hvað landsmenn eru tilbúnir að gera til að hjálpa Grindvíkingum en sjálf býr hún núna í íbúð sem ókunnugt fólk lánaði henni. Innlent 16. nóvember 2023 19:19
Kvikugas mælist í Svartsengi Í dag mældist kvikugas upp úr borholu í Svartsengi sem staðsett er rétt norðan Þorbjarnar. Frekari mælinar verði gerðar á morgun en það að kvikugas mælist úr borholunni er staðfesting á að kvika sé til staðar norðan Hagafells, líkt og talið hafði verið. Innlent 16. nóvember 2023 18:13
Grindvíkingum boðið í sund, á söfn og á íþróttaæfingar Borgarráð samþykkti í dag að greitt yrði fyrir aðgengi Grindvíkinga að fjölbreyttri þjónustu í Reykjavík. Þá var verkaskipting varðandi skólamál til umræðu. Fáni Grindavíkurbæjar var dreginn að húni við Ráðhúsið. Innlent 16. nóvember 2023 15:36
Ætla að tryggja Grindvíkingum laun næstu mánuði Félagsmála- og fjármálaráðherra vinna nú að frumvarpi sem á að leggja fyrir ríkisstjórn á morgun sem á að tryggja að Grindvíkingar fái laun næstu mánuði. Horft er til úrræða í kórónuveirufaraldri við gerð frumvarpsins. Innlent 16. nóvember 2023 14:21
Út og suður um samgöngur Í ljósi eldsumbrotanna á Reykjanesi sést enn betur en áður að fjárfesting í nýjum flugvelli í Hvassahrauni er hæpin í meira lagi. Ofan á aðrar efasemdir bætist að Reykjanesið verður að mati vísindamanna virkt eldsumbrota svæði næstu áratugi og jafnvel árhundruð og ekki er gott að hafa báða aðal flugvelli landsmanna á eldvirku nesi, sömu megin við Höfuðborgarsvæðið. Skoðun 16. nóvember 2023 14:02
Orkuverinu í Svartsengi verði fjarstýrt til áramóta Páll Kristinsson, rekstrarstjóri í orkuveri HS Orku í Svartsengi, segir að starfsmenn búist við því að þurfa að fjarstýra orkuverinu til áramóta hið minnsta. Reykjanesvirkjun geti framleitt rafmagn fari allt á versta veg en erfiðara verði með heitt og kalt vatn, þó unnið sé að lausnum. Innlent 16. nóvember 2023 13:27
Gleymdi hvað hann ætlaði að sækja vegna hryllingsins sem blasti við Baldvin Einar Einarsson, íbúi í Grindavík, segir hús sitt í norðurhluta bæjarins ónýtt. Óvissan sé algjör en hann búi nú hjá þriggja manna fjölskyldu sonar síns í fjörutíu fermetra íbúð. Hann flutti til Grindavíkur fyrir fjórum árum til að vera nærri foreldrum sínum sem nú eru fallnir frá. Innlent 16. nóvember 2023 12:46
Vonast til að koma rafmagni aftur á innan nokkurra klukkustunda Vinnuflokkar frá HS Veitum hafa verið í bænum fyrir hádegið en rafmagn fór af stórum hluta bæjarins í gær. Innlent 16. nóvember 2023 12:36
Líður ekkert alltof vel í Svartsengi Ingi Rúnar atvinnubílstjóri segir að bílstjórum sem vinna að gerð varnargarðanna líði ekkert alltof vel að vera á svæðinu. Unnið sé alla nóttina. Innlent 16. nóvember 2023 12:31
Aukið viðbragð í kjölfar grunsamlegra mannaferða Löggæsla í Grindavík hefur verið aukin eftir að tilkynningar bárust um grunsamlegar mannaferðir að næturlagi. Lögregla stendur nú vaktina allan sólarhringinn. Fjölmiðlum er hins vegar meinaður aðgangur að bænum í dag. Innlent 16. nóvember 2023 12:05
Beina sjónum sínum helst að miðju gangsins Smáskjálftavirkni í kvikuganginum við Sundhnúk heldur áfram og GPS gögn sýna að gliðnun heldur áfram. Jarðeðlisfræðingur og deildarstjóri hjá Veðurstofunni segir stöðuna svipaða og í gær og að þau eigi alveg eins von á gosi í dag, á morgun eða næstu daga. Innlent 16. nóvember 2023 11:55