Opna Grindavíkurveg fyrir íbúa, starfsfólk og viðbragðsaðila Vegagerðin opnaði Grindavíkurveg frá Reykjanesbraut eða Grindavík þeim sem eiga erindi þar í dag. Aðeins Grindvíkingar, viðbragðsaðilar og starfsfólk fyrirtækja í bænum og við Svartsengi mega aka veginn. Innlent 11. apríl 2024 21:45
Upplifir stjórnleysi í málefnum Grindvíkinga Um tvö hundruð manns með lögheimili í Grindavík búa nú í Vogum án lögbundinna réttinda og þjónustu. Bæjarstjóri Voga segir innviði bæjarins að þolmörkum komna og stutt í að neyðst verði til að grípa til aðgerða sem enginn vilji grípa til. Innlent 11. apríl 2024 13:00
„Það má ekki missa kjarkinn“ Átta manns fengu heiðursviðurkenningu frá bæjarstjórn Grindavíkur í dag í tilefni þess að fimmtíu ár er frá því bærinn fékk kaupstaðarréttindi. Þeirra á meðal er Alli á Eyri sem hvetur Grindvíkinga til að missa ekki kjarkinn. Lífið 10. apríl 2024 20:01
Afmælishátíð í skugga hamfara Alltof margar fjölskyldur í Grindavík eru enn á hrakhólum. Þetta var meðal þess sem kom fram á afmælishátíð bæjarins sem var haldin í skugga hamfara. Forseti Íslands hvetur fólk til að gefast ekki upp og sýna áfram kjark. Innlent 10. apríl 2024 19:01
Byggja þurfi upp örugga framtíð fyrir börnin í Grindavík Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir brýnt að leita allra leiða til að tryggja að börnin í Grindavík geti snúið þangað aftur og litið glaðan dag. Grindvíkingar kunni vel að meta samhuginn sem þjóðin hefur sýnt undanfarna mánuði. Innlent 10. apríl 2024 13:49
Vilja flytja heilt raðhús úr Grindavík í Garðinn Verktakafyrirtækið Kimar ehf. hefur óskað eftir lóð í Garði fyrir nýtt fimm íbúða einingaraðhús, sem yrði flutt af grunni úr Grindavík á nýja lóð. Innlent 9. apríl 2024 16:53
Hraunbreiðan orðin rúmir sex ferkílómetrar Þrátt fyrir að dregið hafi úr krafti eldgossins eru ekki merki um að heildar kvikuflæði frá dýpi sé að minnka. Það er samanlagt magn sem safnast saman undir Svartsengi auk þeirra kviku sem flæðir upp á yfirborð í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 9. apríl 2024 15:46
Byrja að kaupa fasteignir Grindvíkinga í vikunni Fasteignafélagið Þórkatlar byrjar að kaupa íbúðarhúsnæði í Grindavík í þessari viku. Stefnt er að því að klára afgreiðslu þorra á sjöunda hundrað umsókna sem hafa borist í þessum mánuði. Innlent 9. apríl 2024 14:01
Lítil gasmengun mælst um helgina Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina mallar áfram og er nú einn gígur virkur. Hraunflæði er nú aftur farið að renna að megninu til suðurs eftir að það flæddi til norðurs um tíma í gær. Lítil gasmengun hefur mælst um helgina. Innlent 8. apríl 2024 16:27
Gígbarmurinn brostinn og hraun rennur í norðurátt Barmur eina gígsins sem enn gýs úr milli Hagafells og Stóra-Skógfells virðist hafa brostið norðanmegin í kvöld. Innlent 7. apríl 2024 23:42
Hraunfossinn í nærmynd Hraunfoss rennur nú yfir gígbarminn í eina gígnum sem enn lifir í eldgosinu við Sundhnúka. Björn Steinbekk flaug dróna yfir gosið fyrr í dag og fangaði sjónarspilið í nærmynd. Innlent 7. apríl 2024 22:44
Hraun flæðir úr gígnum við Sundhnúka Mikið yfirfall er nú úr gígnum við Sundhnúka og tilkomumikið sjónarspil sést á vefmyndavélum. Innlent 7. apríl 2024 16:27
„Aldrei teflt í tvísýnu með öryggi gesta eða starfsfólks“ Fyrstu gestirnir í þrjár vikur dýfðu tánum í Bláa lónið klukkan tólf á hádegi. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu fagnar opnuninni og segir fyllsta öryggis gætt. Innlent 6. apríl 2024 13:23
Tímaspursmál hvenær hraun fari að renna til norðurs Aðeins gýs í einum gíg við Sundhnúka. Fjarað hefur út í syðri og smærri gígnum. Sá sem enn gýs í hækkar jafnt og þétt og gnæfir um 25 metra yfir hraunbreiðunni. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segir það vera tímaspursmál hvenær hraun fer að renna til norðurs. Innlent 6. apríl 2024 10:46
Opna Bláa lónið þrátt fyrir hættu á gasmengun Bláa lónið opnar dyr sínar á ný á hádegi á morgun. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir ákvörðunin alfarið forsvarsmanna fyrirtækisins. Áfram sé hætta á gasmengun á svæðinu. Innlent 5. apríl 2024 14:50
„Takk Þórkatla fyrir ekki neitt“ Soffía Snædís Sveinsdóttir er fyrrverandi íbúi í Grindavík er ósátt hvernig gengur að gera upp við eigendur húsnæðis í Grindavík - hún vandar Þórkötlu ekki kveðjurnar. Innlent 5. apríl 2024 10:32
Þórkatla heldur Grindvíkingum í heljargreipum Í dag eru fjórar vikur liðnar frá því að opnað var fyrir umsóknir um uppkaup eigna Grindvíkinga. Frumvarpið er auðvitað ekki gallalaust og margir sitja eftir með sárt ennið og tapa öllu sínu. Enginn græðir á þessari sölu og fæstir fá til baka þær fjárfestingar sem settar hafa verið í heimilin. Skoðun 5. apríl 2024 09:30
Tveir gígar enn virkir Tveir gígar eru enn virkir í eldgosinu á Reykjanesskaga og er sá nyrðri stærri. Áfram mælast gildi brennisteinsdíoxíðs í kringum eldgosið og í byggð á Reykjanesskaga há. Innlent 4. apríl 2024 16:52
Funda um opnun Bláa lónsins í fyrramálið Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum fundaði með forsvarsmönnum Bláa lónsins í dag og mun gera það aftur í fyrramálið til að taka ákvörðun um starfsemi lónsins. Hættuleg gasmengun hefur komið í veg fyrir opnun lónsins frá því að eldgos hófst á Reykjanesskaga í síðasta mánuði. Innlent 4. apríl 2024 16:01
Blaðamenn fá sama aðgengi og aðrir viðbragðsaðilar í hættuástandi Blaðamannafélag Íslands og ríkið hafa komist að samkomulagi að aðgengi blaðamanna að vettvangi þegar hættuástand kemur upp. Með samkomulaginu er blaðamönnum tryggt jafn mikið aðgengi og öðrum viðbragðaðilum á vettvangi. Innlent 4. apríl 2024 11:09
Af neyðarstigi á hættustig vegna eldgossins Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig Almannavarna vegna eldgossins á Reykjanesskaga. Innlent 3. apríl 2024 21:40
Ekkert ferðamannagos Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að ferðamönnum verði ekki hleypt að gosstöðvunum við Sundhnúk á næstunni. Nokkur áhugi er meðal ferðamanna að komast að gosinu. Þeir hafa bókað til þess þyrluferðir og verið snúið við þegar þeir hafa reynt að komast inn á lokað svæði. Innlent 3. apríl 2024 21:31
Eldgosið í beinni Enn er kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og Stóra-Skógfells. Dregið hefur úr virkninni en þetta gos hefur þó staðið lengur en þrjú síðustu gos á undan. Innlent 3. apríl 2024 13:15
Otti Rafn segir af sér formennsku í Landsbjörg Otti Rafn Sigmarsson hefur tilkynnt að hann hyggist segja formlega af sér sem formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Það gerði hann á stjórnarfundi Landsbjargar í kvöld. Innlent 2. apríl 2024 21:50
„Upp með hökuna og áfram gakk“ Skipstjóri fyrsta frystitogarans sem landaði í Grindavík í morgun í fyrsta sinn í fimm mánuði segir blendnar tilfinningar fylgja tímamótunum. Hann fékk ryk í augun þegar skipið sigldi að landi. Útgerðarstjóri segir tilfinninguna gríðarlega góða og gleðilegt að líf sé að færast í bæinn. Innlent 2. apríl 2024 21:13
Mögulega komið á jafnvægi undir Svartsengi Mögulega er komið á jafnvægi í aðstreymi kviku inn undir Svartsengi og upp úr gígum eldgossins. Þetta gætu jarðefnafræðimælingar staðfest á næstunni. Landris í Svartsengi hefur ekki mælst síðustu daga sem bendir einkum til þess að kvikan safnist síður fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi en flæði frekar beint út um gosopin. Innlent 2. apríl 2024 13:26
Virkni enn stöðug og fátt bendir til gosloka Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn nokkuð stöðug og segir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands engin merki um að gosinu sé að ljúka þó slokknað hafi í einum af gígunum þremur. Fréttir 2. apríl 2024 12:01
„Við erum með tvo trukka og þeir fara mjög hægt yfir“ Slökkvilið í Grindavík berst enn við gróðurelda við gosstöðvarnar við Sundhnjúkagíga. Slökkviliðsstjórinn segir svæðið afar torfærið og að slökkviliðstrukkar fari hægt yfir svæðið. Innlent 1. apríl 2024 13:42
„Annað hvort að rífa upp tröppurnar eða leyfa þessu að vera“ Pípari sem skoðað hefur skemmdir á húsum í Reykjanesbæ eftir eldgosið í febrúar segir það verða eigendum dýrt að laga fasteignir sínar. Hann telur ábyrgðina liggja hjá þeim sem byggi húsin. Innlent 31. mars 2024 20:01
Telja að eldgosinu sé líklega að ljúka Gervitunglamyndir frá NASA og ESA benda til þess að kvikustreymi í eldgosinu við Sundhnúk hafi dregist saman um allt að helming síðasta sólarhringinn. Mögulega þýðir það að eldgosinu lýkur fljótlega. Það hófst þann 16. mars og hafði því staðið í tvær vikur í gær. Innlent 31. mars 2024 15:49